Ekkert gæti aukið hróður Íslands í Kína jafn mikið og landsleikur milli landanna í knattspyrnu

Ef ég ætti að spá hvenær eitt­hvað ger­ist í opin­berum sam­skiptum Íslands og Kína myndi ég hik­laust segja: “Það verður í lok mars - byrjun apríl“. Svo virð­ist sem þá opn­ist leyni­legar dyr milli land­anna og leið­togar þeirra smjúga fram og til baka með her­skara af hátt­settum emb­ætt­is­mönnum og kaup­héðnum í eft­ir­dragi. Árið 2012 bank­aði þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Kína Wen Jiabao upp hjá okkur á þessum tíma. Árið eftir kíktu svo Jóhanna og Össur í heim­sókn hingað austur einnig á þessum tíma til að und­ir­rita frí­versl­un­ar­samn­ing.

[caption id="attachment_24531" align="alignnone" width="517"] Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu.[/caption]

Í fyrra var und­an­tekn­ingin sem sannar regl­una og dok­aði Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra þá við með Kínaferð sína fram í júní -- e.t.v. svo hún ræk­ist ekki á upp­lestur Sjóns úr Skugga-Baldri í Peking í mars. Ég ætla hins vegar að leyfa mér að full­yrða að „for­spár­gildi“ kenn­ingar minnar hafi verið gott í ár því einmitt nú í mars-apríl var að fara frá Peking opin­ber sendi­nefnd er gerði víð­reist um höf­uð­borg­ar­svæðið og skrif­aði undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um aukið sam­starf eins og títt er í vel­heppn­uðum ferðum. En af hverju opn­ast leynidyrnar á þessum tíma? Varla af því þessi tími sé svo hent­ugur fyrir okkur. Þvert á móti þá er venju­lega allt að verða vit­laust heima á þessum tíma. Það eru að koma páskar og vor og ekki búið að leggja nein mik­il­væg mál fyrir Alþingi. Við megum alls ekki við að missa okkar besta fólk úr landi í mars-apríl. Í Kína er þing­störfum hins vegar nýlokið. Leið­togar lands­ins eru búnir að láta end­ur­kjósa sig og fá öll sín mál sam­þykkt. Þetta er því að minnsta kosti heppi­legur tími fyrir þá til að sökkva sér sér í hið alþjóð­lega sam­kvæmislíf.

[caption id="attachment_11958" align="alignnone" width="624"] Illugi Gunn­ars­son, mennta og menn­ing­ar­mála­ráð­herra Íslands.[/caption]

Í ár var það Illugi Gunn­ars­son ráð­herra mennta­mála, íþrótta og knatt­spyrnu sem kom. Fetaði hann í fót­spor leið­toga ann­arar stórrar fót­bolta­þjóðar er var hér fyrir skemmstu, Vill­hjálms her­toga af Cambridge. Vill­hjálmur, sem er vernd­ari ensku knatt­spyrn­unnar, mun hafa náð tali af for­seta Kína Xi Jinping og er sagt að vel hafi farið á með þeim eftir að við­ræðum lauk um verndun fíls­ins sem her­tog­inn heldur einnig vernd­ar­hendi yfir. Þó að ástand fíla í Kína sé ágætt þá er Afr­íku­fíll­inn hins vegar í bráðri útrým­ing­ar­hættu vegna þess hve eft­ir­sótt bein hans eru til smíði kín­verskra skart­gripa. Xi mun hafa lofað að athuga hvað hann gæti gert í þessu og tók Vill­hjálmur þá upp létt­ara hjal.

Dásamaði hann dýpkun umbót­anna í kín­verska bolt­anum sem Xi hefur boðað og hét stuðn­ingi enska knatt­spyrnu­sam­bands­ins og bresku krún­unnar. Þótti strák­ur­inn lag­inn að koma áhuga­málum sínum á fram­færi og minnti alls ekki á diplómat­ískan stíl föður síns. Er ég hafði spurnir af komu Illuga hóf ég strax und­ir­bún­ing metn­að­ar­fullrar aðgerðar svo vegur hans eystra yrði ekki síðri en Vill­hjálms. Svo heppi­lega vildi til að sendi­ráðið hafði boðað til tón­leika á sal þannig að menn gætu sýnt sig og séð aðra. Ætlaði ég að mæta snemma og stilla mér upp í port­inu fyrir framan inn­gang­inn að sendi­ráðs­bygg­ing­unni -- undir fána Evr­ópu­sam­bands­ins (við erum með með ókeypis aðstöðu í sendi­ráði vina okkar Eista en þeir draga þann fána að húni ásamt sínum eig­inn). Ef Illugi heils­aði mér myndi ég dásama veðrið og segja síðan eins og út í blá­inn „það er bara alveg hægt að vera á skyrt­unni hérna undir þess­ari fána­borg“.

[quote font="0" align="right"]Meðan ráð­herr­ann væri að velta þessu fyrir sér léti ég vaða: Væri ekki ráð að hann tæki fót­boltalands­liðið með sér í næstu Kínaferð. Vell­irnir hér væru orðnir mjög grónir í mars-apríl og þetta væri leikur sem við gætum ekki tapað. Litla Ísland myndi standa uppi í hár­inu á ris­anum. Ekkert gæti aukið hróður þjóðar vorrar í austri jafn mikið. [/quote]

Meðan ráð­herr­ann væri að velta þessu fyrir sér léti ég vaða: Væri ekki ráð að hann tæki fót­boltalands­liðið með sér í næstu Kínaferð. Vell­irnir hér væru orðnir mjög grónir í mars-apríl og þetta væri leikur sem við gætum ekki tapað. Litla Ísland myndi standa uppi í hár­inu á ris­anum. Ekkert gæti aukið hróður þjóðar vorrar í austri jafn mikið.

En margt fer á annan veg en ætlað er. Ég fann ekki réttu fán­ana er ég mætti á stað­inn og hrökkl­að­ist því beint inn á sal­inn. Þar voru íslenskir mús­í­k­antar að hita upp trega­fulla ætt­jarð­arsálma. Þjónn kom aðvíf­andi og rétti mér hvítvíns­glas. Fljótt varð ég meyr eins og lamb. Ráðherra íslensku knatt­spyrn­unnar kom í hús. Hann heils­aði mér kump­án­lega. Allt í einu fannst mér orku­málin, sjáv­ar­út­veg­ur­inn, menntun og rann­sóknir miklu mik­il­væg­ara en fót­bolti. Ég fann mig alls ekki í því að vera að reka ein­hver per­sónu­leg erindi á þess­ari hátíð­ar­stundu. Áður en ég vissi af hafði ég misst af tæki­fær­inu. Það verður því lík­lega ekki lands­leikur við Kína á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár