RÚV fær 4,7 milljarða – Ekki gert ráð fyrir framlögum til annarra fjölmiðla

Fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir 534 milljón króna aukn­ingu á fram­lögum til fjöl­miðla. Öll aukn­ingin fer til RÚV og ekki er gert ráð fyrir fram­lögum til að styrkja rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla.

Í nýbirtu fjár­mála­frum­varpi fyrir árið 2019 kemur fram að fram­lag rík­is­sjóðs til fjöl­miðl­unar muni hækka um 534 millj­ónir króna á milli ára, eða um 12,8 pró­sent. Breyt­ing­una má rekja til 175 milljón króna hækk­unar á fram­lagi til RÚV vegna sjóðs sem ætlað er að kaupa efni frá sjálf­stæðum fram­leið­endum hér­lendis og 360 milljón króna hækk­unar á fram­lagi til RÚV „í sam­ræmi við tekju­á­ætlun um inn­heimtar tekjur af útvarps­gjaldi.“

[links]Ljóst er að miðað við þetta munu tekjur RÚV aukast umtals­vert á næsta ári. Þær voru 6,6 millj­arðar króna í fyrra en þar af voru 2,3 millj­arðar króna sam­keppn­i­s­tekjur, sem fel­ast fyrst og síð­ast í sölu aug­lýs­inga og kost­unar. RÚV. Rík­is­fjöl­mið­ill­inn var með einka­rétt sýn­ingum leikja á heims­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu í sumar og mið­il­inn var harð­lega gagn­rýndur af einka­reknum miðlum fyrir að sópa til sín aug­lýs­inga­mark­aðnum í tengslum við þann við­burð. Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri sagði í sam­tali við RÚV í júní að hann gerði ráð fyrir því að tekjur af aug­lýs­ingum í kringum HM yrðu rétt yfir 200 millj­ónir króna. Því má búast við að tekjur RÚV vegna sam­keppn­is­rekst­urs muni einnig aukast á næsta ári, til við­bótar við tekjur mið­ils­ins vegna fjár­fram­laga rík­is­ins. Alls vinna á annan tug manns í fullu starfi hjá RÚV við að sinna sölu á aug­lýs­ingum, sölu á efni og leigu á dreifi­kerfi.

Aukið rekstrarhæfi með sölu lóða og lengingu skulda

RÚV hefur getað aukið rekstr­ar­hæfi sitt með öðrum leiðum en auknum tekjum og fram­lögum á síð­ustu árum. Í fyrra var afkoma RÚV jákvæð um 321 milljón króna og þar skipti hagn­aður af sölu á bygg­inga­lóðum í Efsta­leiti sköpum, en heild­ar­sölu­verð þeirra var um tveir millj­arðar króna.

[adspot]Auk þess samdi RÚV í maí við Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins (LSR) um að breyta skil­málum á skulda­bréfi í eigu sjóðs­ins sem er til­komið vegna ógreiddra líf­eyr­is­skuld­bind­inga. Í sam­komu­lag­inu fólst að veru­lega er lengt í greiðslu­ferli bréfs­ins, en loka­gjald­dagi þess er nú 1. októ­ber 2057 í stað 1. apríl 2025. Sam­hliða er höf­uð­stóll hækk­aður og vextir lækk­aðir úr fimm pró­sentum í 3,5 pró­sent. Þetta mun gera það að verkum að greiðsla skuld­ar­innar mun teygja sig til nýrra kyn­slóða en fjár­magns­gjöld sem RÚV greiðir árlega munu lækka umtals­vert. Þau voru 282,5 millj­ónir króna í fyrra.

Tillögur kynntar fyrir ríkisstjórn á föstudag

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur unnið að til­lögum um aðgerðir í fjöl­miðla­málum sem í á að fel­ast að styrkja rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla.

Unnið var að söfnun gagna og því að leggja mat á til­lögur til að styrkja rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi síð­ast­liðið vor og sum­ar og Lilja kynnti til­lög­urnar á rík­is­stjórn­ar­fundi síð­ast­lið­inn föstu­dag. Þær hafa þó ekki verið gerðar opin­berar og ekki er sjá­an­legt að gert sé ráð fyrir sér­stökum útgjöldum vegna þeirra í fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í morgun. Þar segir þó að unnið sé „að aðgerðum á grund­velli úttekta og skýrslna um stöðu á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár