RÚV lengir í lífeyrisskuldinni um áratugi

Síðasti gjald­dagi skulda­bréfs sem LSR á vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga RÚV er nú í októ­ber 2057, eftir að end­ur­samið var um skil­mála þess. Áður var loka­gjald­dag­inn í apríl 2025.

RÚV hefur end­ur­samið við Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins (LSR) um að breyta skil­málum á skulda­bréfi í eigu sjóðs­ins sem er til­komið vegna ógreiddra líf­eyr­is­kuld­bind­inga.

[links]Verulega er lengt í greiðslu­ferli bréfs­ins, en loka­gjald­dagi þess er nú 1. októ­ber 2057 í stað 1. apríl 2025. Samhliða er höf­uð­stóll hækk­aður og vextir lækk­aðir úr fimm pró­sentum í 3,5 pró­sent.

Í til­kynn­ingu sem send var til kaup­hallar vegna sam­komu­lags­ins, og er dag­sett 23. apríl síð­ast­lið­inn, segir að sam­kvæmt nýju skil­mál­unum muni RÚV greiða skuld­ina í 79 greiðslum sem inna á af hendi á sex mán­aða fresti. Hver greiðsla með verð­trygg­ingu er, miðað við gild­andi vísi­tölu, 68,9 millj­ónir króna. Því borgar RÚV, miðað við núver­andi vísi­tölu, 137,8 millj­ónir króna á ári í næstu 39 árin. Heild­ar­greiðslan verður því 5.443 millj­ónir króna ef vísi­tala neyslu­verðs helst óbreytt. Í árs­reikn­ingi RÚV fyrir árið 2017 var skuldin bók­færð á tæp­lega 2,7 millj­arða króna.

RÚV er heim­ilt að greiða upp skuld­ina, að fullu eða að hluta, sam­kvæmt skulda­bréf­unum án við­bótar kostn­aðar eftir 1. apríl 2025.

Gamall vandi

Líf­eyr­is­skuld­bind­ing­arnar sem eru orsök skuld­ar­innar voru látnar fylgja með þegar RÚV var breytt úr stofnun í opin­bert fyr­ir­tæki. Árum saman voru greiðslur vegna þeirra fjár­magn­aðar með lán­tökum.

Árið 2014 náði RÚV sam­komu­lagi við LSR um að fresta greiðslum á bréf­inu án þess að drátt­ar­vextir myndu bæt­ast við. Á end­anum var ákveðið að slíkur frestur yrði gef­inn til 1. apríl 2016 en að í milli­tíð­inni yrði við­ræðum áfram­haldið. Með skil­mála­breyt­ingu þann 30. mars 2015 var skil­málum skulda­bréfa í skulda­bréfa­flokknum breytt þannig að til­teknar greiðslur voru höf­uð­stóls­færðar og láns­tími lengd­ist þannig að loka­gjald­dagi varð 1. apríl 2025 í stað 1. októ­ber 2023.

[adspot]Í mars 2016 var send til­kynn­ing til Kaup­hallar þar sem kom fram að við­ræður stæðu yfir milli RÚV og LSR um að breyta skil­málum skulda­bréfs­ins. Í þeirri til­kynn­ingu sagði m.a.: „Mark­miðið er að létta á greiðslu­byrði RÚV og jafna hana til lengri tíma. Við­ræð­urnar eru liður í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu RÚV[...]Á meðan á við­ræðum stendur mun RÚV greiða samn­ings­bundna vexti en ekki af afborg­anir af skulda­bréf­inu.“

Þann 23. apríl síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að RÚV og LSR hefðu lokið við að semja um skil­mála­breyt­ingu á skulda­bréf­inu sem felur í sér lækkun vaxta, breyt­ingu á greiðslu­ferli, hækkun á höf­uð­stól og færslu síð­asta gjald­daga láns­ins frá 2025 til 2057.

6,6 milljarða tekjur

Í árs­reikn­ingi RÚV vegna árs­ins 2017 kemur fram að hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins á árinu hafi verið 321,3 millj­ónir króna. Munar þar mest um við­bót­ar­hagnað sem fallið hefur til vegna sölu RÚV á bygg­inga­rétti á lóð fyr­ir­tæk­is­ins í Efsta­leiti, en hann nam 174 millj­ónum krónum í fyrra. Alls hefur sala á bygg­inga­rétti skilað RÚV um tveimur millj­örðum króna en meg­in­þorri þeirrar upp­hæðar var tekju­færður á árinu 2016.

Í árs­reikn­ingnum kemur fram að RÚV hafi fengið 4,1 millj­arða króna frá hinu opin­bera vegna almanna­þjón­ustu­hlut­verks síns á árinu 2017. Auk þess náði fyr­ir­tækið í 2,3 millj­arða króna í sam­keppn­i­s­tekjur, sem fel­ast fyrst og síð­ast í sölu aug­lýs­inga og kost­unar. Um 20 manns starfa við þá tekju­öflun hjá RÚV. Að við­bættum bók­færðum tekjum vegna sölu bygg­inga­réttar námu tekjur RÚV því um 6,6 millj­örðum króna í fyrra. Rekstr­ar­gjöld voru 5,9 millj­arðar króna og fjár­magns­gjöld, greiðslur af lánum RÚV, voru 282,5 millj­ónir króna. Þær greiðslur munu vænt­an­lega lækka umtals­vert á þessu ári í ljósi þess sam­komu­lags um leng­ingu skulda­bréfs­ins í eigu LSR sem greint er frá hér að ofan.

Skuldir RÚV voru 6,2 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og höfðu auk­ist um 221 milljón króna á milli ára. Óráð­stafað eigið fé, sem mætti nýta til að greiða niður skuldir, jókst þó sömu­leiðis á milli ára og er nú tæp­lega 1,1 millj­arður króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár