Aðgerðir í fjölmiðlamálum kynntar á ríkisstjórnarfundi

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra kynnti aðgerðir í fjöl­miðla­málum á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra kynnti aðgerðir í fjöl­miðla­málum, og hvernig styrkja eigi rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur til að kynna til­lög­urnar opin­ber­lega í byrjun næstu viku.

Unnið var að söfnun gagna og því að leggja mat á til­lögur til að styrkja rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi síð­ast­liðið vor og sumar. Fram kom í máli Elfu Ýrar Gylfa­dótt­ur fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­nefnd­ar í maí síð­ast­liðnum að leggja ætti fyrir ráð­herra hug­myndir um hvernig styrkja eigi rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Á meðal þeirra til­lagna sem voru til umfjöll­unar voru til­lögur varð­andi greiðslur vegna tal­setn­ingar og text­unar og til­lögur til að fjár­magna starf­semi rit­stjórna sem vinna frétta­tengt efni.

Þann 26. apríl síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að Gylfi Ólafs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði verið ráð­inn í tíma­bundið starf verk­efna­stjóra hjá fjöl­miðla­nefnd. Sam­kvæmt frétt á vef nefnd­ar­innar var Gylfa ætlað að „afla gagna og leggja mat á til­lögur nefndar um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, sem birtar voru í jan­úar sl..“ Byggt hefði verið á afrakstri þeirrar vinnu við und­ir­bún­ing að ákvörð­un­ar­töku stjórn­valda um hvernig hægt væri að styrkja rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Meðal ann­ars hefði verið byggt á mik­il­vægum upp­lýs­ingum í skýrslum fjöl­miðla sem þeir afhenda fjöl­miðla­nefnd árlega, sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla. Gert var ráð fyrir að fyrstu hug­myndir lægju fyrir í byrjun sum­ars en það ylti á því hversu vel myndi ganga að afla nauð­syn­legra upp­lýs­inga frá fjöl­miðl­unum sjálf­um.

Sjö tillögur um aðgerðir

Nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, sem Ill­ugi Gunn­ars­son skip­aði í lok árs 2016, skil­aði skýrslu með til­lögum um umbætur í lok jan­úar síð­ast­liðn­um. Nefndin gerði til­­lögur um aðgerðir í sjö liðum sem gætu bætt rekstr­­ar­skil­yrði fjöl­miðla.

Þær snéri meðal ann­­ars að stöðu Rík­­is­út­­varps­ins á aug­lýs­inga­­mark­aði, skatta­­legu umhverfi, textun og tal­­setn­ingu og end­­ur­greiðslu fram­­leiðslu­­kostn­aðar á fréttum og frétta­tengdu efni. Þá var einnig ítar­­leg sam­an­­tekt um opin­beran stuðn­­ing við fjöl­miðla í helstu nágranna­­ríkjum auk sér­­á­lits tveggja nefnd­­ar­­manna.

Í nefnd­inni sátu Björg­vin Guð­­munds­­son, for­­mað­­ur, með­­eig­andi KOM ráð­gjaf­­ar, Elfa Ýr Gylfa­dótt­ir, fram­­kvæmda­­stjóri fjöl­miðla­­nefnd­­ar, Hlynur Inga­­son, starfs­­maður í fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­i, Soffía Har­alds­dótt­ir, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri mbl.is, og Svan­­björn Thorodd­sen, með­­eig­andi KPMG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár