Efnahagur RÚV styrkist - Sala á byggingarrétti skipt sköpum

Rekstr­ar­af­koma var jákvæð um 321 milljón í fyrra. Miklu munar um sölu á bygg­ing­ar­rétti, en hagn­aður af sölu á bygg­ing­ar­lóðum hefur styrkt stöðu RÚV langt umfram áætl­anir félags­ins.

Afkoma RÚV var jákvæð um 321 milljón í fyrra, fyrir skatta, og munar þar ekki síst um 174 millj­óna króna hagnað vegna sölu á bygg­ing­ar­rétti. Hagnaður vegna sölu af bygg­ing­ar­réti var að mestur færðu í árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2016, en tekjur vegna söl­unnar voru langt um meiri en „var­legar áætl­anir“ RÚV gerðu ráð fyrir. „Tekjur af þess­ari sölu byggj­ast á end­an­legu bygg­inga­magni á lóð­inni og lá það fyrir í byrjun árs 2018. Heild­ar­sölu­verð er 1.966 m.kr., sem er umtals­vert meira en var­legar áætl­anir RÚV höfðu gert ráð fyrir í upp­hafi. Markmið RÚV með sölu bygg­ing­ar­rétt­ar­ins var að greiða niður skuldir félags­ins og hefur það gengið eftir og leitt til mestu skulda­lækk­unar í sögu félags­ins. Félagið hefur haldið áfram nið­ur­greiðslu skulda eftir að loka­greiðslur bár­ust í árs­byrjun 2018 og hefur einnig ráð­stafað hagn­aði árs­ins af reglu­legri starf­semi með sama hætti. Eftir sem áður er félagið mikið skuld­sett,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins til Kaup­hallar.

Rekstr­ar­gjöld án afskrifta námu 5,6 millj­örðum króna en 5,6 millj­örðum árið 2016.

Afskriftir voru 316 millj­ónir sam­an­borið við 308 millj­ónir árið 2016.

Heild­ar­eignir félags­ins í lok árs 2017 námu 8,4 millj­örðum króna, eigið fé var 2,2 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fall 26,1 pró­sent en var það var 23,8 pró­sent í lok árs 2016.

Eig­in­fjár­hlut­fall hefur hækkað mikið að und­an­förnu en það var 5,5 pró­sent í lok rekstr­ar­árs­ins 2013-2014, að því er segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Stöðu­gildi voru að með­al­tali 260 á árinu en fjöldi þeirra hefur verið svip­aður frá árinu 2015 eftir mikla fækkun á miss­er­unum þar á undan. „Útvarps­gjald var lækkað á nokk­urra ára tíma­bili ásamt því að mögu­leikar á öflun tekna í gegnum sölu aug­lýs­inga og kostana var tak­mark­aður,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár