Þingfundur enn ekki hafinn - ósætti vegna verkfallsfrumvarpa

Þing­fundur, sem áætlað var að hæf­ist á Alþingi klukkan tíu í morgun, er enn ekki haf­inn. Nú er áætlað að fund­ur­inn hefj­ist klukkan 11.30. Á fund­inum verður lagt fram frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um að verk­föllum hjúkr­un­ar­fræð­inga og félaga innan BHM verði frestað til 1. júlí næst­kom­andi.

Formenn allra þing­flokka og for­seti Alþingis fund­uðu í morgun um málið en stjórn­ar­and­staðan vildi ekki fall­ast á að þing­fundur hæf­ist klukkan tíu eins og boðað hafði verið. Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir í sam­tali við RÚV að engin svör hafi feng­ist um það hver for­gangs­mál þings­ins séu og því sé ekk­ert sam­komu­lag um það hvar á dag­skránni frum­varpið sem fresta á verk­föll­unum verður. Þetta stað­festi Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mun flytja frum­varpið að því er Morg­un­blaðið greindi fyrst frá í morgun. Þetta varð nið­ur­staðan eftir ágrein­ing milli odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins um það hvaða ráð­herra skyldi flytja frum­varpið. Ef það gengur eftir mun það vera í fyrsta sinn sem for­sæt­is­ráð­herra flytur ekki slíkt frum­varp, sem snertir margar starfs­stéttir.

Formenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafa tjáð sig um frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar á Facebook-síðum sínum í morgun. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir þar að það sé til að bíta höf­uðið af skömminni að neita fjöl­mennri kvenna­stétt um sam­bæri­lega leið­rétt­ingu og gró­inni karla­stétt, læknum, á 100 ára afmæli kosn­inga­réttar kvenna og 40 ára afmæli kvenna­frí­dags­ins. Heil­brigð­is­starfs­fólk sé allt með alþjóð­lega menntun sem spurn sé eftir erlendis, og aldrei hafi getað farið öðru­vísi en illa þegar samið var við lækna. „Við getum ekki brotið upp vinnu­mark­að­inn og veitt fámennum hópi for­rétt­inda­stöðu en látið fjöld­ann bera tjónið af krón­unni.“

„Í fjórða sinn á þessu kjör­tíma­bili leggur rík­is­stjórnin fram frum­varp um laga­setn­ingu á verk­fall. Á sama tíma og stjórn­völd telja sig ekki hafa svig­rúm til að semja við opin­bera starfs­menn boða þau skatta­lækk­anir í anda nýfrjáls­hyggj­unnar. Þetta sýnir for­gangs­röðun stjórn­valda,“ skrif­aði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG. Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, lagði til að frekar yrðu sett lög á rík­is­stjórn­ina.

Nokkur hund­ruð manns eru á mót­mæla­fundi vegna frum­varps­ins á Aust­ur­velli. Mót­mæl­endur hyggj­ast mæta á þing­palla þegar fund­ur­inn hefst.

Uppfært kl. 11.05: Búið er að ákveða að þing­fundur hefj­ist klukkan 11.30 og var þeim upp­lýs­ingum bætt inn í frétt­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár