Sigurður Ingi og Lilja Dögg hitta Obama í fyrsta sinn

For­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra Íslands hitta Banda­ríkja­for­seta í þeirra fyrstu opin­beru heim­sókn í dag. Dag­skráin er þétt og verður meðal ann­ars rætt um sam­starf Norð­ur­land­anna við Banda­ríkin.

Nýju ráðherrar ríkisstjórnarinnar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hitta Obama við hátíðlega athöfn í Hvíta húsinu í dag.
Nýju ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar, Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra hitta Obama við hátíð­lega athöfn í Hvíta hús­inu í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra mæta í sína fyrstu opin­beru heim­sókn í dag. Um er að ræða opin­bera heim­sókn leið­toga Norð­ur­land­anna í boði Barack Obama Banda­ríkja­for­seta. Fyrsta opin­bera heim­sókn íslensk ráð­manns til Banda­ríkj­anna var árið 1944 þegar Sveinn Björns­son, for­seti Íslands, fór ásamt þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra til Washington að hitta Franklin D. Roossevelt for­seta. 

Að þessu sinni munu for­seti Finn­lands og for­sæt­is­ráð­herrar hinna fjög­urra Norð­ur­land­anna funda með Obama og allir utan­rík­is­ráð­herr­arnir funda með John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Til stendur að ræða meðal ann­ars aukið sam­starf milli land­anna, aukna frí­verslun, sam­starf til að sporna gegn hryðju­verkaógn­inni og upp­gangi öfga­sinna, umhverf­is­mál, mál­efni Norð­ur­slóða og flótta­manna­mál.

Norrænir utanríkisráðherrar taka höndum saman

Utan­rík­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna birtu sam­eig­in­lega grein í Huffington Post í vik­unni þar sem rætt var um mik­il­vægi áfram­hald­andi sam­starfs ríkj­anna. Í grein­inni er áhersla lögð á að styrk­leikar land­anna beggja vegna Atlands­hafs­ins nái að njóta sín í sam­vinnu ríkj­anna. Ráð­herr­arnir segja að nor­ræna mód­elið hafi þjónað íbúum sínum vel, með efna­hags­legri vel­megun og góðu vel­ferð­ar­kerfi. Einkenni nor­ræna kerf­is­ins séu mikið traust almenn­ings á stjórn­málum og áhersla á jöfn tæki­færi.

Utan­ríks­ráð­herr­arnir hrósa Banda­ríkj­unum fyrir að veita öðrum þjóðum inn­blástur þegar það kemur að sterkum hugs­uðum og þróun nýrra hug­mynda. Töluverð áhersla er einnig lögð á jafn­rétti kynj­anna, en afstaða grein­ar­höf­unda að mik­il­vægt sé að konur séu hluti af frið­ar­um­leit­unum og sé tryggt sæti við borðið er ítrekuð. Þá er farið er yfir sam­eig­in­lega hags­muni ríkj­anna sex, áskor­anir og tæki­færi, þar sem sam­eig­in­legur ávinn­ingur af sam­starfi land­anna er und­ir­strik­aður.

Þétt dagskrá í dag

Fund­ur­inn í dag hefst með því að Obama tekur form­lega á móti leið­tog­unum við Hvíta húsið við hátíð­lega athöfn. Dag­skráin verður þétt, utan­rík­is­ráð­herrar snæða hádeg­is­verð í boði John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og endar dag­ur­inn á kvöld­verða­boði í boði for­set­ans og for­seta­frú­ar­innar, Michelle Obama. Frétta­rit­ari Kjarnans verður á staðnum og hægt verður að fylgj­ast með fram­gangi fund­ar­ins á Twitter undir myllu­merk­inu #heimsoknUSA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár