Leggja til að allar brottvísanir til Grikklands verði stöðvaðar

Nítján þing­menn vilja að brott­vís­anir fólks til Grikk­lands verði stöðv­aðar án tafar. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þing­mann­anna segir að hætta sé á að flótta­fólk í Grikk­landi verði fyrir með­ferð sem telj­ist ómann­úð­leg í laga­legum skiln­ingi.

Nítján þing­menn hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að dóms­mála­ráð­herra verði falið að tryggja að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd verði ekki sendir frá Íslandi til Grikk­lands, óháð því hvort við­kom­andi hafi hlotið alþjóð­lega vernd þar í landi eða ekki.

Í til­lög­unni segir að hætta sé á flótta­fólk í Grikk­landi verði fyrir með­ferð sem telj­ist ómann­úð­leg í skiln­ingi laga útlend­inga­laga og samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­ar­stöðu flótta­manna. Að til­lög­unni standa þing­menn Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Pírata, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Vinstri grænna og Andrés Ingi Jónsson sem stendur utan flokka.

„Flutn­ings­menn til­lög­unnar telja yfir vafa hafið að aðstæður í Grikk­landi gefi fullt til­efni til þess að stöðva allar brott­vís­anir og end­ur­send­ingar flótta­fólks þangað. UNICEF og Barna­heill hafa gagn­rýnt stjórn­völd harð­lega fyrir end­ur­send­ingar barna til Grikk­lands. Þá hefur Rauði kross­inn á Íslandi að auki ítrekað bent á að aðstæður þeirra sem þegar hafa hlotið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi séu síst skárri en þeirra sem hafi umsókn sína til með­ferðar þar í landi,“ segir í grein­ar­gerð með til­lög­unni.

Þing­menn­irnir lýsa yfir ein­dregnum stuðn­ingi við sjón­ar­mið Rauða kross­ins, sem á dög­unum mót­mælti áformum stjórn­valda um að senda fjöl­skyldur með börn héðan til Grikk­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár