Styðja við heimili sem eiga við greiðsluvanda að stríða

Rík­is­stjórnin hefur leitað heim­ildar Alþingis til að veita fyr­ir­tækjum í vanda við­bót­ar­lán, í sam­starfi við Seðla­banka Íslands.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fyr­ir­vara­lítið tekju­fall heim­ila skapar þeim vanda og mikla óvissu. Lán­veit­endur sem eiga aðild að Samtökum fjár­mála­fyr­ir­tækja eða Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða munu bregð­ast við með úrræðum til að styðja við heim­ili sem eiga við greiðslu­vanda að stríða. Vel verður fylgst með stöðu heim­ila og ein­stak­linga.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Í yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar frá 10. mars segir að stjórn­völd muni efna til virks sam­ráðs við Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja um við­brögð þeirra við fyr­ir­sjá­an­legum lausa­fjár- og greiðslu­örð­ug­leikum fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu. „Síðan yfir­lýs­ingin var gefin hefur útbreiðsla far­ald­urs­ins verið hröð og fjöl­mörg ríki hafa gripið til umfangs­mik­illa ráð­staf­ana til að hefta hana. Þær aðgerðir hafa víð­tæk áhrif á efna­hags­horfur, allt atvinnu­líf, heim­ili og ein­stak­linga,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Stjórn­völd hafa átt sam­ráð við Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja og Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða um þá stöðu sem upp er komin og þau við­brögð sem rétt er að grípa til í því skyni að milda áhrif á heim­ili og fyr­ir­tæki. Er Sam­keppn­is­eft­ir­litið upp­lýst um það og gerir stofn­unin ekki athuga­semdir við að aðilar á lána­mark­aði eigi með sér sam­starf um und­ir­bún­ing að sam­komu­lagi um fyr­ir­greiðslur í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er. Slíkt sam­komu­lag er þó háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Af þessu til­efni vilja rík­is­stjórn Íslands, Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja og Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða upp­lýsa um eft­ir­far­andi:

Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja og Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða munu birta opin­ber­lega sam­ræmd við­mið um greiðslu­fresti á lánum og frek­ari fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja sem verða fyrir tekju­falli vegna far­ald­urs­ins.

Rík­is­stjórnin hefur leitað heim­ildar Alþingis til að veita fyr­ir­tækjum í vanda við­bót­ar­lán, í sam­starfi við Seðla­banka Íslands. Kveðið verður á um nán­ari skil­yrði og útfærslu þessa úrræðis í samn­ingi við Seðla­bank­ann, en því er ætlað að styrkja enn frekar getu lána­stofn­ana til að mæta aðsteðj­andi vanda.

Fyr­ir­vara­lítið tekju­fall heim­ila skapar þeim vanda og mikla óvissu. Lán­veit­endur sem eiga aðild að Samtökum fjár­mála­fyr­ir­tækja eða Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða munu bregð­ast við með úrræðum til að styðja við heim­ili sem eiga við greiðslu­vanda að stríða. Vel verður fylgst með stöðu heim­ila og ein­stak­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár