Mynd: Bjarg

Í Reykjavík búa 36 prósent landsmanna – Þar eru byggðar 71 prósent almennra íbúða

Frá árinu 2016 hefur rík­is­sjóður úthlutað 18 millj­örðum króna í stofn­fram­lög í almenna íbúða­kerfið, sem er ætlað að sjá fólki með lægri tekjur fyrir öruggu hús­næði og er rekið án hagn­að­ar­sjón­ar­miða.

Alls hefur Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) úthlutað 18 millj­örðum króna fyrir hönd rík­is­sjóðs frá árinu 2016 til að kaupa eða byggja alls 2.981 íbúðir í almenna íbúð­ar­kerf­inu, sem eru leigðar til tekju­lægri hópa á hag­stæðum kjörum. Um tvö þús­und íbúðir af þeim sem hafa fengið fjár­fram­lögin eru enn í bygg­ingu eða á teikni­borð­inu en búið er að taka rúm­lega eitt þús­und íbúðir í notkun.

Af því fjár­magni hafa 13,2 millj­arðar króna farið í kaup eða nýbygg­ingu á íbúðum í Reykja­vík þar sem alls 2.123 íbúðir hafa verið keyptar, byggðar, eða eru í bygg­ingu. Því munu alls 71,2 pró­sent allra hag­kvæmra íbúða sem hafa annað hvort verið keyptar, byggðar eða eru í bygg­ingu frá því að upp­bygg­ing almenna íbúða­kerf­is­ins hófst fyrir fimm árum síðan rísa í Reykja­vík. Af því fé sem var úthlutað í fyrra fór 74 pró­sent til kaupa eða upp­bygg­ingar á íbúðum í Reykja­vík.

Alls voru íbúar Reykja­víkur 135.220 í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins og því 36 pró­sent þeirra 374.830 manns sem bjuggu á Íslandi á þeim tíma. Því er ljóst að Reykja­vík er að taka á sig næstum tvö­faldan hluta af upp­bygg­ingu almenna íbúða­kerf­is­ins en hlut­fall íbúa borg­ar­innar segir til um.

Þetta kemur fram í tölum frá HMS sem voru upp­færðar á vef stofn­un­ar­innar í gær.

85 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu

Þar kemur enn fremur fram að nær öll upp­bygg­ingin á almenna íbúða­kerf­inu á sér stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Alls hefur stofn­fram­lögum vegna 2.525 íbúða verið úthlutað til sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 85 pró­sent allra fram­laga. Þar af hefur 84 pró­sent fram­laga sem ratað hafa inn á það svæði verið úthlutað vegna kaupa eða bygg­inga á íbúðum í Reykja­vík, en íbúar borg­ar­innar eru 56 pró­sent þeirra sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Íbúða­­kerfið er fjár­­­magnað þannig að ríkið veitir stofn­fram­lag sem nemur 18 pró­­sent af stofn­virði almennra íbúða. Stofn­virði er kostn­að­­ar­verð íbúð­­ar­inn­­ar, sama hvort það er við bygg­ingu hennar eða vegna kaupa á henni. Sveit­­ar­­fé­lög veita svo 12 til 16 pró­­sent stofn­fram­lag til verk­efn­anna. Þau geta falist í beinu fjár­­fram­lagi en eru oftar en ekki í formi úthlut­unar á lóðum eða lækk­­unar eða nið­­ur­­fell­ingar á gjöldum sem þyrfti ann­­ars að greiða til sveit­­ar­­fé­lags­ins. Reykja­vík­­­ur­­borg hefur meðal ann­­ars úthlutað Bjargi íbúð­­ar­­fé­lagi lóðir undir mörg hund­ruð íbúðir á stöðum eins í Úlf­­arsár­dal, Bryggju­hverf­inu og Hraun­bæ, en líka á þétt­ing­areitum í gamla hluta borg­­ar­innar á borð við Kirkju­sand, Voga­­byggð og Skerja­­byggð.

Heild­ar­fjár­fest­ingin í þessu nýja opin­bera hús­næð­is­kerfi um allt land síð­ustu fimm árin nemur nú tæp­lega 93 millj­örðum króna, þegar fram­lög rík­is­sjóðs, sveit­ar­fé­laga og láns­fjár­mögnun lána­stofn­ana eru talin saman.

Markmiðið að bæta húsnæðisöryggi hinna tekjulægri

Lög um almennar íbúðir voru sam­­þykkt sum­­­arið 2016. Hið nýja íbúða­­­kerfi er til­­­raun til að end­­­ur­reisa ein­hvern vísi að félags­­­­­lega hús­næð­is­­­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­­­­­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­­­­­legum íbúðum fækk­­­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

Mark­mið þeirra laga var að bæta hús­næð­is­ör­yggi þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­­ar­­mörkum með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi leig­u­hús­næði. Þannig sé stuðlað að því að hús­næð­is­­kostn­aður sé í sam­ræmi við greiðslu­­getu þeirra sem leigja hús­næðið og fari að jafn­­aði ekki yfir 25 pró­­sent af tekjum þeirra.

Lögin byggja á yfir­­lýs­ingu sem þáver­andi rík­­is­­stjórn Sig­­mundar Dav­­íðs Gunn­laugs­­sonar gaf út í tengslum við kjara­­samn­inga sem voru und­ir­­rit­aðir í maí 2015. Í henni var gert ráð fyrir að 2.300 íbúðir yrðu byggðar á árunum 2015 til 2018.

Lengri tíma tók hins vegar að klára lögin og fyrstu úthlut­­anir á grund­velli þeirra fóru ekki fram fyrr en á árinu 2016.

Greiðslbyrði margra íþyngjandi

Í árlegri leigukönnun sem mark­aðs­rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Pró­sent gerði fyrir (HMS 10. júní til 14. sept­em­ber síð­ast­lið­inn kom fram að 84 pró­sent þeirra sem leigja íbúð af óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum eru ánægðir með hús­næðið sem þeir leigja. Þeir eru ánægð­astir allra á leigu­mark­að­i og hjá þeim mælist mesta hús­næð­is­ör­yggið.

Í sömu könnun kom fram að hlut­­fall ráð­­stöf­un­­ar­­tekna allra leigj­enda sem fer í leigu er nú 45 pró­­sent. Sam­­kvæmt HMS gefur það hlut­­fall til kynna mjög mikla greiðslu­­byrði að með­­al­tali sem telj­­ast megi íþyngj­andi.

Þar sagði einnig að 44 pró­sent leigj­enda hjá einka­reknum leigu­fé­lögum greiddu yfir 50 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu. Til sam­an­burðar greiddu 26 pró­sent þeirra sem leigðu af óhagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lagi meira en helm­ing ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í leigu.

Um 13 pró­sent leigj­enda einka­rek­inna leigu­fé­laga eða á almenna mark­aðnum greiða yfir 70 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu en átta pró­sent þeirra sem leigja af óhagn­að­ar­drifnum félögum.

Lækk­uðu leig­una

Íbúð­­irnar sem hafa fengið stofn­fram­lög eru ætl­­aðar fyrir allskyns hópa sem eru með lágar tekj­­ur. Þar ber fyrst að nefna þá félags­­hópa sem eru undir skil­­greindum tekju- og eign­­ar­við­mið­­um. Þau eru 554 þús­und krónur að með­­al­tali á mán­uði fyrir ein­stak­l­ing og 776 þús­und krónur á mán­uði fyrir hjón eða sam­­búð­­ar­­fólk. Fyrir hvert barn eða ung­­menni að 20 ára aldri sem býr á heim­il­inu bæt­­ast við 138.583 krónur á mán­uði sem má hafa í tekj­­ur. Heild­­ar­­eignir heim­il­is­ins mega þó ekki vera hærri en sem nemur 7.179.000 krón­­um. Stór hluti þess­­arar upp­­­bygg­ing­­ar, sem er afar umfangs­­mik­il, er á vegum Bjargs íbúða­­fé­lags, sem var stofnað af ASÍ og BSRB fyrir nokkrum árum síð­­an, og er rekið án hagn­að­­ar­­mark­miða.

Í maí síð­ast­liðnum til­­kynnti Bjarg að það hygð­ist lækka leigu hjá um 190 leig­u­­tökum félags­­ins. Með­­alleig­u­greiðslur leig­u­­taka áttu sam­kvæmt þeirri ákvörðun að lækka um 14 pró­­sent, úr um 180 þús­und krónum í 155 þús­und. Þetta var gert í kjöl­far end­­ur­fjár­­­mögn­unar og end­­ur­­skoð­unar rekstrar fjöl­býl­is­húsa Bjargs við Móa­­veg og Urð­­ar­brunn í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár