Lögmaður Sepp Blatter ver Mike Pence

Lögmaður Sepp Blatters aðstoðar vara­for­seta Banda­ríkj­anna vegna rann­sóknar á leyni­makki með Rússum.

Mike Pence er varaforseti Bandaríkjanna í stjórn Donalds Trump. Pence hefur staðið fast að baki Trump.
Mike Pence er vara­for­seti Banda­ríkj­anna í stjórn Donalds Trump. Pence hefur staðið fast að baki Trump. Mynd: EPA

Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, hefur ráðið sér per­sónu­legan lög­mann til þess að hjálpa sér við að svara spurn­ingum rann­sóknar Robert Mueller á hugs­an­legu leyni­makki milli rúss­neskra yfir­valda og for­seta­fram­boðs Donalds Trump.

Í yfir­lýs­ingu frá skrif­stofu vara­for­set­ans segir að Pence hafi rætt við nokkra lög­menn áður en hann valdi Richard Cullen, lög­mann sem sér­hæfir sig í vörn emb­ætt­is­manna og opin­berra per­sóna.

Cullen var verj­andi Sepp Blatter, fyrr­ver­andi for­seta alþjóða knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA, þegar Blatter var til rann­sóknar hjá banda­rískum yfir­völdum vegna spill­ing­ar­mála.

Með þessu er Pence að taka svipuð skref og Donald Trump, sem hefur þegar ráðið sér per­sónu­legan lög­mann til þess að ann­ast fyr­ir­spurnir vegna rann­sóknar á meintum Rússa­tengslum.

Pence hefur staðið fast að baki Trump síðan þeir sóru emb­ætt­is­eið 20. jan­úar síð­ast­lið­inn. Um ákvörðun for­set­ans að víkja James Comey úr starfi for­stjóra alrík­is­lög­regl­unnar FBI sagði Pence, til dæmis, að Trump hafi „tekið rétta ákvörðun á réttum tíma“. Hann lof­aði Trump svo fyrir að sýna „styrka og ein­beitta for­ystu sem end­ur­nýjar traust og trúnað Banda­ríkja­manna á FBI“.

[adspot]

Mueller rannsakar tengsl og yfirhylmingar

Robert Mueller rann­sakar nú hver, ef ein­hver, tengsl for­seta­fram­boðs Donalds Trump var við rúss­nesk yfir­völd og við­brögð for­set­ans og stjórnar hans við rann­sókn FBI á tengsl­unum.

[links]Markmið rann­sókn­ar­innar er, sam­kvæmt heim­ildum Reuters, að kom­ast að því hvort ein­hver úr fram­boði Trumps eða úr við­skipta­veldi hans hafi átt í ólög­legum sam­skiptum við rúss­neska emb­ætt­is­menn eða haft önnur tengsl við stjórn­völd í Kreml.

Þá er það einnig mark­miðið að kom­ast að því hvort ein­hver brot hafi verið framin og hvort Trump sjálfur eða aðrir hafi reynt að hylma yfir brot sín og ætlað þannig að hindra rann­sókn­ina á ein­hvern hátt.

Það þykir mjög ólík­legt að sitj­andi for­seti muni nokkurn tíma verða leiddur fyrir dóm­ara vegna þeirra brota sem nú er kannað hvort hafi verið framin. Ef vís­bend­ingar finn­ast um að slík brot hafi verið framin gæti það hins vegar orðið grund­völlur fyrir því að banda­ríska þingið ákveði að víkja Donald Trump úr emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna. Það er hins vegar mjög ólík­legt að þingið ákveði að grípa til þess að víkja for­set­anum úr emb­ætti, enda ráða flokks­fé­lagar Trumps meiri­hlut­anum í full­trúa­deild þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár