Rannsóknirnar eru „nornaveiðar“, segir Donald Trump

Forseti Banda­ríkj­anna kallar rann­sókn á hugs­an­legu leyni­makki Rússa með for­seta­fram­boði sínu vera „norna­veiðar“. Pútín hefur boðið James Comey póli­tískt hæli ef hann verður sóttur til saka fyrir að leka upp­lýs­ingum.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er nú sjálfur til rannsóknar fyrir að hafa hugsanlega hindrað framgang réttvísinnar.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, er nú sjálfur til rann­sóknar fyrir að hafa hugs­an­lega hindrað fram­gang rétt­vís­innar. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, líkir rann­sókn lög­gæslu­yf­ir­valda á mál­efnum sínum við norna­veiðar og segir slæmt fólk sem er ósam­kvæmt sjálfu sér standa fyrir henni.

[links]The Washington Post greindi frá því að Robert S. Mueller, sér­stakur sak­sókn­ari, fari nú með rann­sókn á tengslum Rússa við fram­boð Donalds Trump síð­asta haust. Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins miðar rann­sóknin að meintum afskiptum Rússa af for­seta­kosn­ing­unum og hvort Trump hafi á ein­hvern hátt hindrað fram­gang rétt­vís­innar.

Trump lýsti því yfir á Twitter að banda­rískur almenn­ingur væri nú að fylgj­ast með „mestu norna­veiðum í banda­rískri stjór­mála­sögu“.

Fram til þessa hefur ekki verið litið svo á að Trump sjálfur sé til rann­sóknar en James Comey, sem Trump rak úr for­stjóra­stóli FBI, sagði eið­svar­inn frammi fyrir þing­nefnd að hann vissi ekki til þess að Trump sjálfur hefði verið til rann­sókn­ar. Staðan hefði ekki verið þannig, þegar hann hætti sem for­stjóri.

The Washington Post vitnar til emb­ætt­is­manna sem blaðið hefur fengið upp­lýs­ingar um rann­sókn­ina frá.

[adspot]

Trump heldur því enn fram að tengsl Rússa við for­seta­fram­boðið sé upp­spuni „falskra frétta­miðla“ og að ásak­anir um að hann hafi hindrað fram­gang rétt­vís­innar sé enn eitt útspilið til þess að koma höggi á hann.

Pútín hæðist að Bandaríkjunum og býður Comey hæli

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, var í viku­legu fjöl­miðla­spjalli sínu í morgun þar sem hann gerði meðal ann­ars grín að banda­ríska stjórn­kerf­inu. Frá þessu er greint á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC.

„Hver er mun­ur­inn á yfir­manni FBI og [Edward] Snowden?“ velti Pútín fyrir sér. Hann sagði að sú stað­reynd að James Comey, fyrrum for­stjóri banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar, hafi lekið leyni­legum upp­lýs­ingum til fjöl­miðla geri hann að upp­ljóstr­ara, rétt eins og Snowden sem þiggur nú póli­tískt hæli í Rúss­landi.

„Ef hann [Comey] verður sóttur til saka vegna þessa, þá erum við til­búin til þess að veita honum póli­tískt hæli líka,“ sagði Pútín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár