450 afbrigði greinst á landamærunum – aðeins þrettán innanlands

Aðgerðir á landa­mærum Íslands hafa borið mik­inn árangur og því er ekki ástæða til að loka þeim líkt og margar nágranna­þjóðir okkar eru að gera þessa dag­ana. Vel kemur til greina að aflétta aðgerðum inn­an­lands á næst­unni.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Alls hafa 48 greinst með breska afbrigði kór­ónu­veirunnar hér á landi, þar af átta manns inn­an­lands sem allir tengj­ast fólki sem greind­ist á landa­mær­unum. Breska afbrigðið er meira smit­andi en flest önnur. Það er þó ekki talið valda alvar­legri veik­indum. Útbreiðsla þess skýrir mikla fjölgun smita í flestum nágranna­löndum okkar og hertar aðgerðir sem þar hefur verið gripið til.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­æknir segir að yfir­völd „séu á tánum“ vegna þessa afbrigðis veirunnar og að til mik­ils sé að vinna að koma í veg fyrir að það breið­ist út í sam­fé­lag­inu. „Við teljum fulla þörf á því að fara mjög var­lega svo að við fáum ekki hol­skeflu yfir okkur eins og nágranna­þjóð­irnar eru að sjá núna.“

[adspot]

Með aðgerðum okkar á landa­mærum, sem fel­ast í því að fólk þarf að fara í tvær sýna­tökur með nokk­urra daga milli­bili, hefur verið sýnt fram á mik­il­vægi slíkra aðgerða í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn að mati Þórólfs. Flestar þjóðir hafa farið aðrar leiðir og eru nú í þeirri stöðu að þurfa að loka landa­mærum sínum nán­ast að fullu. „Aðgerðir okkar á landa­mær­unum hafa veri árang­urs­ríkar til að halda afbrigðum veirunnar frá land­inu,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag og benti á, máli sínu til stuðn­ings, að frá því að tvö­föld sýna­taka hófst við landa­mærin 19. ágúst hafi um 450 mis­mun­andi afbrigði veirunnar greinst þar en á sama tíma ein­ungis þrettán inn­an­lands.

[links]Þar sem okkar aðgerðir hafi reynst vel telur Þórólfur ekki til­efni til að loka landa­mærum Íslands frekar – að minnsta kosti ekki að svo stöddu.

Þó að enn séu að grein­ast örfá smit inn­an­lands dag frá degi telur sótt­varna­læknir ekki tíma­bært að slaka frekar á aðgerðum. Hins vegar segir hann vel koma til greina, ef fram heldur sem horfir, að gera það fyrir 17. febr­úar þegar núgild­andi aðgerðir falla úr gildi. Hann ítrekar að mjög var­lega þurfi að fara í allar til­slak­anir. Það hafi reynsla síð­ustu mán­aða sýnt okkur.

Af þeim níu­tíu manns sem greinst hafa hér á landi í jan­úar hafa flestir verið með bláa afbrigði veirunnar, afbrigði sem kom hingað til lands í ágúst með frönskum ferða­mönnum. Það afbrigði „réði ríkjum“ alla þriðju bylgj­una, eins og Þórólfur orðar það, og hafa til­tölu­lega fá önnur afbrigði verið að grein­ast inn­an­lands síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár