Blaðamenn og kvikmyndastjörnur í klandri: lögregla stendur vörð um olíuleiðslu

Frægð­ar­fólk hefur flykkt sér á bak við mót­mæl­endur og fylgj­endur þeirra í Norður-Dakóta í Banda­ríkj­unum. Þeir krefj­ast þess að landið verði virt og ótt­ast að drykkj­ar­vatn þeirra meng­ist þegar löng olíu­leiðsla verður tekin í gagnið.

Mótmælendur mótmæla olíuleiðslunni í Norður-Dakóta fyrir framan Hvíta húsið í Washington í september 2016.
Mót­mæl­endur mót­mæla olíu­leiðsl­unni í Norður-Dakóta fyrir framan Hvíta húsið í Washington í sept­em­ber 2016. Mynd: EPA

Mikil upp­þot hafa orðið eftir að mót­mæl­endur komu séu upp búðum við jaðar vernd­ar­svæðis frum­byggja í Ameríku til þess að lýsa and­stöðu við olíu­leiðslu í Norður-Dakóta í Banda­ríkj­unum. Tugir manns söfn­uð­ust einnig saman fyrir framan Hvíta húsið í sept­em­ber til að mót­mæla olíu­leiðsl­unni sem mun liggja í gegnum fjögur fylki í Banda­ríkj­unum og sam­kvæmt þeim hafa nei­kvæð áhrif á fólk og vist­kerfi á svæð­inu.

En ekki hafa ein­ungis mót­mælin kom­ist í heims­press­una heldur hefur athyglin beinst að blaða­mönnum og töku­fólki sem hyggst hefur skrá­setja mót­mælin sjálf. Yfirvöld á staðnum hafa brugð­ist ókvæða við og sakar þetta fólk um ýmiss konar lög­brot. Mikil spenna hefur ríkt milli lög­reglu og mót­mæl­enda og þannig hafa blaða­menn og mót­mæl­endur ýmist verið hand­teknir eða ákærðir fyrir mis­al­var­leg brot og gefnar hafa verið út hand­töku­skip­anir á þá.

Heilagt land og mikilvægt vatn

Forsagan er sú að mót­mæl­endur lýstu and­stöðu sinni við olíu­leiðslu frá Kanada til Banda­ríkj­anna í Norður-Dakóta fylki. Áætluð leiðsla mun liggja við Standing Rock Sioux-vernd­ar­svæði frum­byggja Ameríku. Mót­mæl­endur telja að leiðslan fari inn á heil­agt svæði og muni getað mengað drykkj­ar­vatn á svæð­inu.

Aðallega er um að ræða fólk sem býr á svæð­inu og frum­byggja, þrátt fyrir að margir hvaðanæva af land­inu hafi sleg­ist í för með þeim. Margir þeirra hafa nú komið sér fyrir sitt hvoru megin við Cannonball-ána sem rennur þar hjá. Sumir líta svo á mót­mælin snú­ist ekki bara um þetta svæði eða þessa olíu­leiðslu heldur horfa þeir á hlut­ina í stærra sam­hengi þar sem mót­mælin standi fyrir almennum nátt­úru­vernd­ar­gildum.

Eins og fyrr segir hafa mót­mælin staðið yfir í marga mán­uði og virð­ist ekk­ert lát vera á þeim. Nýtt sam­fé­lag hefur mynd­ast og margir hafa byggt sér skýli og athvörf til að við­haf­ast í.

Á yfir höfði sér þungan dóm

Heim­ilda­mynda­gerð­ar­konan Deia Schlosberg hefur verið hand­tekin en hún tók upp mót­mæli sem áttu sér stað á þriðju­dag­inn í síð­ustu viku í Norður-Dakóta í Banda­ríkj­unum. Hún hefur verið kærð fyrir þrjú alvar­leg brot gegn lögum og gæti átt yfir höfði sér margra ára­tuga fang­els­is­dóm verði hún fundin sek. Mynda­vélin hennar og allar upp­tökur voru gerðar upp­tækar en hún hefur ekk­ert getað tjáð sig um hand­tök­una.

Fjöl­margir hafa skrifað undir opið bréf til Barack Obama þess efnis að hand­takan væri „ósann­gjörn, órétt­lát og ólög­leg.“ Söngv­ar­inn Neil Young og leik­ar­inn Mark Ruffalo hafa tekið þátt í umræð­unni og skorað á að Schlosberg verði látin laus fyrir þær sakir að hún hafi ein­ungis verið að vinna vinn­una sína. Leikkon­urnar Daryl Hannah og Frances Fisher hafa einnig skrifað undir bréfið ásamt fjölda ann­arra rit­höf­unda, kvik­mynda­gerða­manna og blaða­manna. Í bréf­inu segir:

„Blaða­mennska, sér­stak­lega heim­ilda­mynda­gerð, er ekki glæpur. Hún er skylda. Frelsi fjöl­miðla er grund­vall­ar­réttur okkar í frjálsu sam­fé­lagi. Ákær­urnar gegn henni eru órétt­látar og það verður að fella þær niður strax.“

Yfirvöld halda því fram að ekki hafi verið um frið­sam­leg mót­mæli að ræða heldur sak­næmt athæfi. Lög­reglu­yf­ir­völd hafa boð­ist til að skila tækjum Schlosberg því að ekki hafi verið mark­miðið að koma í veg fyrir skrá­setn­ingu atburð­anna. 

Tjáningarfrelsi í hættu

Blaða­kon­unni Amy Goodman átti einnig yfir höfði sér ákærur fyrir að taka þátt í óeirðum í sept­em­ber eftir að hafa kvik­myndað mót­mælin. Lög­reglu­yf­ir­völd gáfu út hand­töku­skipun á hendur henni. Þetta kom fram á BBC en þar kemur fram að hún seg­ist ásótt fyrir það eitt að vinna vinn­ana sína sem blaða­maður. Hún sagði að hún hefði ekki farið í óleyfi inn á land­svæðið og hefði ekki tekið þátt í óeirðum, eins og yfir­völd saka hana um. Hún hefði verið að vinna sem blaða­maður með því að skrá­setja það ofbeldi sem frum­byggjar í Ameríku hafi þurft að þola.

Nýlega féll þó dómur á þann veg að slíkar ákærur væru ekki rétt­læt­an­legar þar sem sann­anir vant­aði fyrir þeim. Mikil ánægja hefur verið með dóm­ar­ann sem tók þessa ákvörðun og segir Goodman að dóm­ur­inn hafi verið í þágu tján­ing­ar­frelsis fjöl­miðla.

Hér fyrir neðan má sjá eina umfjöllun Goodman um mót­mælin.

Hollywood-stjarna handtekin

Leik­konan Shailene Woodley tók þátt í frið­sælum mót­mælum í byrjun októ­ber. Hún var hand­tekin ásamt 26 öðrum og ákærð fyrir minni­háttar brot. Henni hefur nú verðið sleppt. Woodley tók upp hand­tök­una á Facebook en hana má sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár