Þingmenn segja nauðsynlegt að breyta lögum um mannanöfn

Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis vill að rík­is­stjórnin fjalli um breyt­ingar á lögum um manna­nöfn og vís­aði frum­varpi um breyt­ing­arnar til rík­is­stjórn­ar­innar í gær. Öll þing­nefndin var sam­mála um að það skyldi gert og að nauð­syn­legt sé að breyta lög­unum.

Óttar Proppé var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins um breyt­ingar á lög­unum, en mark­mið þess var að und­ir­strika þá meg­in­reglu að almennt séu nöfn leyfð, for­eldrum treyst til að velja börnum sínum nöfn og að jafn­ræð­is­regla stjórn­ar­skrár­innar sé virt. Samkvæmt frum­varp­inu verður manna­nafna­nefnd lögð niður og kvaðir um ætt­ar­nöfn felld burt.

Í nefnd­ar­á­liti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar kemur fram að allir gestir sem fyrir nefnd­ina komu voru sam­mála um að það sé full þörf á því að ráð­ast í end­ur­skoðun laga um manna­nöfn, en þau voru síð­ast end­ur­skoðuð fyrir tutt­ugu árum. Allir voru sam­mála um að auka þurfi frjáls­ræði í þessum málum, en ekki allir sam­mála um hversu langt skal ganga.

Vinna er þegar hafin í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu við skoðun á því hvort þörf sé á end­ur­skoðun lag­anna og alls­herjar- og mennta­mála­nefnd fagnar því og leggur áherslu á að nauð­syn­legt sé að gera breyt­ingar.

Í áliti nefnd­ar­innar kemur einnig fram að á tíma­bil­inu 2005 til 2014 voru fram­kvæmdar rúm­lega 25 þús­und nafn­breyt­ingar í þjóð­skrá. Langstærstur hluti var breyt­ingar á kenni­nafni, þannig að kenn­ing til föður verði kenn­ing til móður og öfugt, ætt­ar­nöfn eru tekin upp eða felld niður og ætt­leidd börn fá kenn­ingu til kjör­for­eldris. Alls voru rúm­lega 17 þús­und slíkar breyt­ingar gerðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár