Sjaldan meiri ánægja með forsetann

Ánægja með for­seta Íslands mæld­ist í hæstu hæðum í byrjun apríl sam­kvæmt nýrri könnun.

60,7% segj­ast vera ánægð með störf for­seta Íslands, Ólafs Ragnars Gríms­sonar, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR. Könnunin var gerð dag­ana 4. og 5. apríl, mánu­dag og þriðju­dag þegar hann synj­aði Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, um þing­rof. Hún tekur því á engan hátt til ákvörð­unar for­set­ans í gær um að bjóða sig fram aftur.

Ánægja með störf for­seta hefur ekki mælst meiri síðan árið 2013. 15% þeirra sem svör­uðu sögð­ust vera óánægð með störf for­set­ans en 60,7% voru ánægð með störf hans, sem var aukn­ing sem nemur um 13 pró­senta­stiga aukn­ingu frá síð­ustu könnun sem var gerð 18. des­em­ber.

Ánægja með störf Ólafs Ragnars er afar mis­mun­andi eftir stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka, en 99% þeirra sem sögð­ust myndu kjósa Fram­sókn­ar­flokks­ins ef kosið væri í dag eru ánægð eða mjög ánægð með störf Ólafs Ragnars. 27% þeirra sem segj­ast myndu kjósa Sam­fylk­ing­una voru ánægð með for­set­ann. 79 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru ánægðir með störf for­set­ans, 38% kjós­enda VG, 39% kjós­enda Bjartrar fram­tíðar og 54% kjós­enda Pírata.

Minni stuðn­ingur er við for­set­ann meðal háskóla­mennt­aðra en ann­arra.

Svar­fjöldi í könn­un­inni var 987 ein­stak­lingar, og 98% tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar. Vikmörk í könnun sem þess­ari geta verið allt að 3,1%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár