Stefnt að sölu Íslandsbanka til erlenda aðila í næstu viku

Veð­skulda­bréf að and­virði 119 millj­arðar króna verður gefið út af Glitni til íslenskra stjórn­valda, verði 95% hlutur slita­bús­ins í Íslands­banka seldur inn­lendum aðilum. Sölu­virði bank­ans myndi því renna til íslenskra stjórn­valda, yrði hann seldur inn­lendum aðilum fyrir þá fjár­hæð. Eigið fé bank­ans er í dag rúm­lega 180 millj­arðar krónar en það verður lækkað í um 119 millj­arða fyrir sölu hans. Lækkunin verður gerð með um 37 millj­arða króna arð­greiðslu sem rennur til rík­is­ins. Arð­greiðslan er hluti af alls 58 millj­örðum króna sem Glitnir greiðir til rík­is­ins, sam­kvæmt til­lögum sem hluti kröfu­hafa Glitnis hafa lagt fyrir fram­kvæmda­hóp um losun hafta. Verði bank­inn hins vegar seldur til erlendra fjár­festa á sama verði mun íslenska ríkið fá tæp­lega 71,4 millj­arða króna í sinn hlut, í erlendum gjald­eyri, auk áður­nefndra arð­greislna. Samkvæmt til­lögum fær ríkið 60 pró­sent af sölu­and­virði verði bank­inn seldur erlendum aðilum, upp að 60 pró­sent af bók­færðu virði bank­ans.

Búist er við því að erlendir fjár­festar í Íslands­banka verði kynntir til leiks í næstu viku, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Viðræður við nokkra hópa hafa staðið yfir um nokk­urra mán­aða skeið og þeir sem hafa sýnt mestan áhuga koma ann­ars vegar frá löndum við Persaflóa í Mið-Aust­ur­löndum og hins vegar frá Kína. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er um að ræða risa­stór fyr­ir­tæki sem eiga þegar hluti í alþjóð­legum bönkum. Ein­hverjir hópanna rit­uðu undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á bank­anum í febr­úar síð­ast­liðnum.

[caption id="attachment_18324" align="alignnone" width="624"] Steinunn Guð­bjarts­dóttir, for­maður slita­stjórnar Glitnis.[/caption]

Veðskuldabréf ef kaupendur eru innlendir


Fyrir liggur ramma­sam­komu­lag við kröfu­hafa föllnu bank­anna. Innihald þess hefur verið birt opin­ber­lega á heima­síðu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Á meðal þess sem kemur fram í því sam­komu­lagi gagn­vart slita­búi Glitnis er að Íslands­banki verði seldur fyrir árs­lok 2016 ef mark­aðs­að­stæður verði ákjós­an­legar.

Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis.
Steinunn Guð­bjarts­dóttir, for­maður slita­stjórnar Glitnis.

Í sam­komu­lag­inu er einnig til­greint hvað íslenska ríkið fær í sinn hlut ef Íslands­banki, sem er í 95 pró­sent eigu Glitnis og fimm pró­sent eigu íslenska rík­is­ins, verður seldur til inn­lendra aðila og hversu mikið það fær ef erlendir aðilar kaupa hann.

Verði bank­inn seldur til inn­lendra aðila verður gefið út veð­skulda­bréf til rík­is­ins að and­virði 119 millj­arðar króna. Skulda­bréfið er till þriggja ára og ber 5,5 pró­sent vexti. Ríkið fær þriðj­ung þess sölu­hagn­aðar sem verður til á bil­inu 85 til 119 millj­arðar króna. Upphæðin hækkar síðan eftir því sem Íslands­banki selst fyrir meira fé.

Eigið fé Íslands­banka er í dag 181,5 millj­arðar króna. Það verður aftur á móti lækkað í 119 millj­arða áður en að sölu kemur, sam­kvæmt til­lögum kröfu­hafa. Um 38 millj­arðar verða greiddir í arð og rennur til rík­is­ins sem hluti af 58 millj­arða lausa­fjár­fram­lagi. Það er hluti af svoköll­uðu stöð­ug­leika­skil­yrði. Auk þess verða um 17 millj­arðar króna, í erlendum gjald­eyri, greiddir út í arð þannig að eigið fé verður sam­tals um 119 millj­arðar og eig­in­fjár­hlut­fall 23 pró­sent.

[caption id="attachment_31031" align="alignnone" width="640"] Áætlun stjórn­valda um losun hafta var kynnt í Hörpu í gær.[/caption]

Ríkið fær 71,4 milljarða ef bankinn er seldur útlendingum


Verði Íslands­banki hins vegar seldur til erlendra aðila mun „60 pró­sent sölu­and­virð­is­ins renna til stjórn­valda í erlendri mynt“. Í sam­komu­lag­inu segir þó að sú upp­hæð verði aldrei meira en sem nemur um 60 pró­sent „af bók­færðu virði bank­ans miðað við skráð gengi evru 5. júní 2015“. Þetta kemur fram á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Þessu til við­bótar renna áður­nefndar arð­greiðslur til rík­is­ins, rétt eins og ef bank­inn verður seldur inn­lendum aðilum.

Áætlun stjórnvalda um losun hafta var kynnt í Hörpu í gær.
Áætlun stjórn­valda um losun hafta var kynnt í Hörpu í gær.

Til við­bótar er sér­stak­lega tekið fram stjórn­völd geti gert kröfu um „nánar til­greindar tak­mark­anir á ráð­stöf­un­ar­heim­ildum nýrra erlendra eig­enda Íslands­banka vegna áhrifa á greiðslu­jöfnuð.“ Það þýðir á manna­máli að nýir erlendir eig­endur Íslands­banka geti ekki greitt sér út arð nema að þær greiðslur ógni ekki greiðslu­jöfn­uði.

Ath.

Fréttin hefur verið upp­færð og tölum um mögu­legan hagnað rík­is­ins á sölu til inn­lendra og erlendra aðila breytt frá upp­haf­legu frétt­inni. Hún byggði eft­ir­far­andi á eft­ir­far­andi máls­grein í frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um til­lögur kröfu­hafa föllnu bank­anna: "Verði Íslands­banki seldur til inn­lendra aðila skal skipta afkomu milli stjórn­valda og Glitnis með eft­ir­far­andi hætti: (i) afkoma á bil­inu umfram 85 til 119 millj­arðar skal rennur einn þriðji til stjórn­valda, (ii) afkoma umfram 119 millj­arða allt að 136 millj­örðum rennur til helm­inga til stjórn­valda og (iii) afkoma umfram 136 millj­arðar rennur að þremur fjórðu hlutum til stjórn­valda." Sú máls­grein er ekki að öllu leyti nákvæm og því hafa töl­urnar verið upp­færðar í sam­ráði við sér­fræð­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár