Utanríkisráðuneytið: ítrekaðar rangfærslur í málflutningi sjávarútvegsins

Utan­rík­is­ráðu­neytið setur fram harða gagn­rýni á Jens Garðar Helgason, for­mann Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, í til­kynn­ingu sem það sendi frá sér rétt í þessu. Ráðu­neytið fer yfir mál­flutn­ing Jens í Viku­lok­unum á Rás 1 um helg­ina og hrekur 13 stað­hæf­ingar sem hann setti þar fram um við­skipta­þving­anir gegn Rússum og inn­flutn­ings­bann þeirra á móti.

Ráðu­neytið segir ýmsar stað­hæf­ingar hans ekki stand­ast, þær séu órök­studdar og hann haldi áfram að fara með rang­færslur þrátt fyrir að þær hafi verið leið­réttar.

Meðal ann­ars hafi Jens sagt að íslenska þjóð­ar­búið sé að taka á sig hlut­falls­lega tutt­ugu­falt stærri skell en hin hart­nær 40 ríkin sem standa að þving­un­ar­að­gerð­unum. Það er órök­stutt, segir utan­rík­is­ráðu­neytið, og vert „að benda á að afkoma sjáv­ar­út­vegs árið 2015 er meðal þess besta í lýð­veld­is­sög­unni auk þess sem útflutn­ings­verð­mæti upp­sjáv­ar­af­urða á árinu 2015 er litlu minna en árið 2014.“

Þá stand­ist ekki sú stað­hæf­ing hans að utan Rúss­lands finn­ist eng­inn mark­aður fyrir frystar loðnu­af­urðir. „Fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2015 var seld fryst loðna og loðnu­hrogn til Kína fyrir um 1,3 millj­arða króna. Á árunum 2012 og 2013 var fryst loðna seld til Úkraínu fyrir hátt í 4 millj­arða. Á árunum 2014 og 2015 var sama vara seld á Úkra­ínu­markað fyrir um hálfan millj­arð króna.“

Jens sagði einnig að helm­ingur mak­ríl­sölu Íslands hafi verið til Rúss­lands, og Íslend­ingar verið stærsti útflytj­andi mak­ríls til Rúss­lands. Í því sam­hengi segir utan­rík­is­ráðu­neytið að rétt sé að benda á það að Íslend­ingar sátu nán­ast einir að mak­ríl­mark­aðnum í Rúss­landi frá ágúst 2014 til ágúst 2015, en á þeim tíma hafði Ísland ekki verið sett á inn­flutn­ings­banns­lista Rússa á meðan flest önnur ríki voru það. „Íslenskir útflytj­endur, auk fær­eyskra og græn­lenskra, sátu því einir að Rúss­lands­mark­aði í tólf mán­uði áður en inn­flutn­ings­bann Rússa var útvíkkað og Ísland sett á bann­lista og juku veru­lega útflutn­ing sinn til Rúss­lands.“

Aðgerðir ekki vopnasölubann og víst samstaða

„Ítrekað kemur fram í máli for­manns SFS að þving­un­ar­að­gerð­irnar gagn­vart Rússland séu vopna­sölu­bann. Aðgerð­irnar sem studdar eru af nærri 40 ríkjum eru mun víð­tæk­ari,“ segir ráðu­neytið og nefnir að framan af hafi þær einkum snú­ist um tak­mark­anir á ferða­frelsi og fryst­ingu fjár­muna ákveð­inna ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Eftir að far­þega­flug­vél var skotin niður yfir Úkraínu var hert á aðgerð­unum og fleirum var bætt á bann­lista auk þess sem „aðgangur rúss­neskra aðila að lána­mörk­uðum tak­mark­aður, við­skipti með her­gögn bönnuð, við­skipti bönnuð með vörur sem hafa tví­þætt nota­gildi og við­skipti tak­mörkuð varð­andi þýð­ing­ar­mikla tækni, m.a. í olíu- og orku­geir­anum.“

Einnig hafi Jens Garðar haldið því fram að engin sam­staða sé um aðgerð­irnar meðal Evr­ópu­ríkja og ein­stök ríki eigi blóm­leg við­skipti við Rússland þrátt fyrir aðgerð­irnar. Um það segir utan­rík­is­ráðu­neytið að „Evr­ópu­sam­bandið hefur ein­róma sam­þykkt allar aðgerðir sem farið hefur verið í, nú síð­ast með fram­leng­ingu aðgerð­anna í des­em­ber 2015. Öll Evr­ópu­ríki eiga áfram í veru­legum við­skiptum við Rússland enda bein­ist inn­flutn­ings­bann Rússa að mat­vælum. Aðgerðir Rússa ná ekki til fjölda vara, t.a.m. til þjón­ustu nema að tak­mörk­uðu leyti. Þetta á líka við um Ísland sem á áfram í nokkrum við­skiptum við Rússland eins og sjá má t.d. í þess­ari frétt.“

Þá sé það ekki rétt að hags­muna­að­ilar og Alþingi hafi ekki frétt af stuðn­ingi Íslands við þving­un­ar­að­gerð­irnar fyrr en löngu síðar. Tveir fundir hafi verið haldnir með hags­muna­að­ilum á fyrri stigum um þróun mála. Þá hafi síðar verið haldnir fleiri fundir í kjöl­far frétta­flutn­ings.

Grundvallarmisskilningur um NATO og rangfærslur um Bandaríkin

„Formaður SFS stað­hæfir að þving­un­ar­að­gerð­irnar gagn­vart Rúss­landi séu ekki aðgerð Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og að það sé t.a.m. ástæða þess að Tyrkir séu ekki í hópi þeirra ríkja sem beita Rússland aðgerðum. Þá standi Sam­ein­uðu þjóð­irnar ekki að aðgerð­unum,“ segir ráðu­neytið og telur þetta byggj­ast á grund­vall­armis­skiln­ingi. „Atlands­hafs­banda­lagið (NATO) getur ekki beitt efna­hags­legum þving­un­ar­að­gerðum enda varn­ar­banda­lag. Það getur hins vegar stutt þving­un­ar­að­gerðir ESB, Banda­ríkj­anna og ann­arra ríkja.“ Það hafi verið gert. „Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna stendur ekki að þving­un­ar­að­gerð­unum, enda er Rússland með neit­un­ar­vald í ráð­inu.“

Þá hafi því verið haldið fram af Jens að Banda­ríkja­stjórn hafi gefið út und­an­þágu á þving­un­ar­að­gerð­irnar vegna sölu á vara­hlutum í rúss­neskar her­þyrlur. „Þetta er ekki rétt. Sól­ar­hring áður en þætt­inum Í viku­lokin var útvarpað leið­rétti sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi rang­færslur SFS sem birt­ust í blaða­grein varð­andi sölu vara­hluta í þyrlur til Afghanistan. Í grein sendi­herr­ans kemur skýrt fram að það hafi ekki haft neitt með þving­anir gegn Rússum að gera. Samt heldur for­maður SFS áfram að fara með rang­færslur.“

Það sé líka rangt að eng­inn hátt­settur banda­rískur ráða­maður hafi komið til Íslands í mörg ár, eins og Jens hafi haldið fram. „Síðast í sept­em­ber heim­sótti Robert Work, vara­varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Ísland og í októ­ber var Benjamin Ziff, aðstoð­ar­ráð­herra úr utan­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna staddur hér á landi í til­efni af Hring­borði norð­ur­slóða,“ segir ráðu­neytið, og að hring­borðið hafi dregið ráða­menn að ítrekað. „Einnig má nefna að Condoleezza Rice, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna heim­sótti Ísland árið 2008 og Colin Powell, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, árið 2002 í tengslum við utan­rík­is­ráð­herra­fund NATO. Hins vegar er ljóst að ein­staka stefnu­mál Íslands, líkt og hval­veiðar, hafa haft áhrif á tíðni heim­sókna banda­rískra ráða­manna. Ísland rekur hins vegar sjálf­stæða utan­rík­is­stefnu og lætur ekki undan þess konar þrýst­ingi, enda grund­vall­ast íslensk utan­rík­is­stefna á virð­ingu fyrir alþjóða­lögum. Það á við um bæði rétt til hval­veiða sem og fram­ferði rúss­neskra yfir­valda í Úkraínu.“

Yfir­lýs­ingin frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu er hér að neðan í heild sinni.

Utan­rík­is­ráðu­neytið telur ástæðu til að minna á nokkrar stað­reyndir um þving­un­ar­að­gerðir og Rússland vegna full­yrð­inga for­manns Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) í umræðu­þætt­inum Í viku­lokin á RÚV laug­ar­dag­inn 9. jan­úar sl.

Fram kemur í máli for­manns SFS að hags­muna­að­ilar og Alþingi hafi ekki frétt að Ísland styddi þving­un­ar­að­gerðir gegn Rúss­landi vorið 2014 fyrr en 4-5 mán­uðum síðar. Einnig að Alþingi og hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi hafi fyrst heyrt af því í rúss­neskum fjöl­miðlum í ágúst 2015 að Ísland hafi fram­lengt þving­un­ar­að­gerðir gagn­vart Rúss­landi.

Dagana 6., 17. og 20. mars 2014 til­kynntu Banda­ríkin um þving­un­ar­að­gerðir gegn Rúss­landi vegna Úkra­ínu­deil­unnar. Hinn 12. mars 2014 átti utan­rík­is­ráðu­neytið sam­ráðs­fund með fram­kvæmda­stjóra SFS og 14. mars 2014 var fjallað um málið í rík­is­stjórn. Hinn 17. mars 2014 gaf utan­rík­is­ráðu­neytið út frétta­til­kynn­ingu þar sem lýst er stuðn­ingi við þving­un­ar­að­gerðir Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins gegn Rúss­landi vegna Úkra­ínu­deil­unnar og til­kynnt að Ísland muni einnig beita slíkum þving­un­ar­að­gerðum að höfðu sam­ráð við utan­rík­is­mála­nefnd. Það sam­ráð fór fram næsta dag, 18. mars. Hinn 21. mars 2014 voru fyrstu þving­un­ar­að­gerðir Íslands vegna Úkra­ínu­deil­unnar birtar í Stjórn­ar­tíð­indum.

Auk fund­ar­ins 18. mars 2014 hefur ráðu­neytið upp­lýst utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis reglu­lega um fram­vindu mála í Úkraínu. Þátttaka í alþjóð­legum þving­un­ar­að­gerðum hefur verið rædd á fjöl­mörgum fundum með nefnd­inni og ein­dreg­inn stuðn­ingur verið í utan­rík­is­mála­nefnd við stefnu stjórn­valda. Tilkynnt var opin­ber­lega um stuðn­ing við aðgerð­irnar í mars 2014, auk þess sem fjallað var um hann á þingi og í fjöl­miðlum, t.d. í tengslum við ferð ráð­herra til Úkraínu í sama mán­uði.

Hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi voru upp­lýstir á fyrri stigum um þróun mála, stefnu Íslands og ákvarð­anir, m.a. átti utan­rík­is­ráð­herra sér­staka fundi með þeim. Haldnir voru tveir fundir með hags­muna­að­ilum og Íslands­stofu um mögu­legar aðgerðir ef mark­aðir í Rúss­landi skyldu lok­ast. Í jan­úar 2015 varð frétta­flutn­ingur í Rúss­landi t.d. til að auka áhyggjur um að Ísland kynni að verða fyrir barð­inu á við­skipta­banni Rússa líkt og Noregur og var þá fundað með útflytj­endum. Sam­svar­andi fundur var hald­inn 5. ágúst 2015 þar stjórn­völd ítrek­uðu vilja sinn til að aðstoða við að leita uppi nýja mark­aði og greiða fyrir við­skiptum.

Ítrekað kemur fram í máli for­manns SFS að þving­un­ar­að­gerð­irnar gagn­vart Rússland séu vopna­sölu­bann.

Aðgerð­irnar sem studdar eru af nærri 40 ríkjum eru mun víð­tæk­ari. Framan af sner­ust þær einkum um tak­mark­anir á ferða­frelsi til­tek­inna ein­stak­linga og fryst­ingu fjár­muna þeirra og til­tek­inna fyr­ir­tækja, en eftir að far­þega­vélin var skotin niður yfir Úkraínu var hert á aðgerð­unum. Ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum var bætt á bann­lista, aðgangur rúss­neskra aðila að lána­mörk­uðum tak­mark­aður, við­skipti með her­gögn bönnuð, við­skipti bönnuð með vörur sem hafa tví­þætt nota­gildi og við­skipti tak­mörkuð varð­andi þýð­ing­ar­mikla tækni, m.a. í olíu- og orku­geir­anum.

Ítrekað kemur fram í máli for­manns SFS að engin sam­staða sé um þving­un­ar­að­gerð­irnar meðal Evr­ópu­ríkja og ein­stök ríki eigi blóm­leg við­skipti við Rússland þrátt fyrir þving­un­ar­að­gerðir og gagn­að­gerðir Rússa í formi inn­flutn­ings­bann.

Evr­ópu­sam­bandið hefur ein­róma sam­þykkt allar aðgerðir sem farið hefur verið í, nú síð­ast með fram­leng­ingu aðgerð­anna í des­em­ber 2015. Öll Evr­ópu­ríki eiga áfram í veru­legum við­skiptum við Rússland enda bein­ist inn­flutn­ings­bann Rússa að mat­vælum. Aðgerðir Rússa ná ekki til fjölda vara, t.a.m. til þjón­ustu nema að tak­mörk­uðu leyti. Þetta á líka við um Ísland sem á áfram í nokkrum við­skiptum við Rússland eins og sjá má t.d. í þess­ari frétt.

Í máli for­manns SFS kemur fram að Banda­ríkja­stjórn hafi gefið út und­an­þágu á þving­un­ar­að­gerð­irnar vegna sölu á vara­hlutum í rúss­neskar her­þyrlur.

Þetta er ekki rétt. Sól­ar­hring áður en þætt­inum Í viku­lokin var útvarpað leið­rétti sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi rang­færslur SFS sem birt­ust í blaða­grein varð­andi sölu vara­hluta í þyrlur til Afghanistan. Í grein sendi­herr­ans kemur skýrt fram að það hafi ekki haft neitt með þving­anir gegn Rússum að gera. Samt heldur for­maður SFS áfram að fara með rang­færslur.

Formaður SFS full­yrðir að auk inn­flutn­ings­banns Rússa muni Tolla­banda­lag Rúss­lands, Belarus og Kákasus (vænt­an­lega er átt við Kasakstan) loka á inn­flutn­ing frá Íslandi.

Ekki liggur fyrir að svo muni að fara auk þess sem slík lokun sem vísað var til myndi bein­ast að til­teknum fyr­ir­tækjum en ekki þjóð­ríkjum. Fjöldi ann­arra fyr­ir­tækja geta haldið áfram að eiga við­skipti við Belarus og Kasakstan líkt og þau eiga við Rússland í dag. Dæmið sem vísað er til í við­tal­inu sýnir þó greini­lega hversu ótraustur mark­að­ur­inn er á þessu svæði og hve mjög mark­aðs­að­gangur er háður duttl­ungum emb­ætt­is­manna.

Formaður SFS stað­hæfir að þving­un­ar­að­gerð­irnar gagn­vart Rúss­landi séu ekki aðgerð Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og að það sé t.a.m. ástæða þess að Tyrkir séu ekki í hópi þeirra ríkja sem beita Rússland aðgerðum. Þá standi Sam­ein­uðu þjóð­irnar ekki að aðgerð­unum.

Um grund­vall­armis­skiln­ing er að ræða. Atlands­hafs­banda­lagið (NATO) getur ekki beitt efna­hags­legum þving­un­ar­að­gerðum enda varn­ar­banda­lag. Það getur hins vegar stutt þving­un­ar­að­gerðir ESB, Banda­ríkj­anna og ann­arra ríkja. Allir þjóð­ar­leið­togar Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, þ.m.t. Tyrk­lands, sam­þykktu t.a.m. ein­róma loka­yf­ir­lýs­ingu síð­asta leið­toga­fundar NATO, haustið 2014, þar sem lýst er yfir stuðn­ingi við allar þving­un­ar­að­gerðir gegn Rúss­landi.

Banda­ríkin urðu fyrst til þess að beita Rússland þving­un­ar­að­gerðum vegna Úkra­ínu­deil­unnar í mars 2014, og hafa Banda­ríkin, ESB og fleiri ríki átt náið sam­ráð um umfang og tíma­setn­ingu þess­ara aðgerða. Í mars 2014 til­kynntu Banda­ríkin, ESB og Kanada öll hlið­stæðar þving­un­ar­að­gerðir gegn Rúss­landi en áður hafði verið gripið til ákveð­inna aðgerða gagn­vart ein­stak­lingum í Úkraínu. Alls standa nú tæp­lega fjör­tíu ríki að aðgerðum gegn Rúss­landi. Banda­ríkin, Kanada, 28 ríki Evr­ópu­sam­bands­ins, Ísland, Noregur, Japan, Ástralía, Liechtenstein og Svart­fjalla­land. Sviss inn­leiðir sömu aðgerðir og Tyrkland sætir nú einnig gagn­að­gerðum Rúss­lands.

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna stendur ekki að þving­un­ar­að­gerð­unum, enda er Rússland með neit­un­ar­vald í ráð­inu.

Í máli for­manns SFS kemur fram íslensk stjórn­völd haldi því fram að aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu kynni að vera í upp­námi ef landið styddi ekki þving­un­ar­að­gerðir.

Þetta er ekki rétt, stjórn­öld hafa ekki haldið slíku fram.

Það að rjúfa sam­stöðu vest­rænna ríkja hlyti hins vegar að telj­ast meiri­háttar frá­vik frá utan­rík­is­stefnu Íslands. Það væri ábyrgð­ar­hluti sem kall­aði, í besta falli, á gagn­rýnar spurn­ingar nán­ustu sam­starfs­þjóða um veg­ferð íslenskra stjórn­valda í alþjóða­sam­skiptum og trú­verð­ug­leika sem banda­manns. Slíkt hefði vafa­laust nei­kvæð áhrif á sam­skipti við okkar helstu banda­menn, þ.e. þær þjóðir sem Ísland á mesta sam­leið með og sam­eig­in­lega hags­muni. Viðbrögð sam­starfs­ríkja gætu einnig verið harð­ari. Það liggur t.a.m. fyrir að Banda­ríkin hafa víð­tækar laga­heim­ildir til að þess að beita fyr­ir­tæki sem eru í sam­skiptum við rúss­nesk fyr­ir­tæki á bann­lista Banda­ríkj­anna við­ur­lögum og úti­loka þau frá við­skiptum við banda­rísk fyr­ir­tæki. Kunnugt er um dæmi þess að sænsk og finnsk fyr­ir­tæki hafi verið sett bann­lista í Banda­ríkj­unum og allar eigur þeirra í Banda­ríkj­unum frystar. Enginn banda­rískur aðili getur átt við­skipti við þessi fyr­ir­tæki. Ekki er hægt að úti­loka að slíkt gæti einnig beðið íslenskra fyr­ir­tækja ef horfið er frá þátt­töku í þving­un­unum.

Í máli for­manns SFS er dregið í efa að Ísland hafi sjálf­stæða utan­rík­is­stefnu og að ákvarð­anir stjórn­valda séu byggðar á hags­munum Íslands

Slíkur mál­flutn­ingur dæmir sig sjálfur. Ísland hefur sann­ar­lega sjálf­stæða utan­rík­is­stefnu og á henni bygg­ist einmitt sú ákvörðun að styðja þving­un­ar­að­gerðir gegn Rúss­landi vegna fram­ferðis Rúss­lands­stjórnar gagn­vart Úkraínu.

Á sömu sjálf­stæðu utan­rík­is­stefnu hafa byggst ótal ákvarð­anir allt frá stofnun lýð­veld­is­ins sem snerta alþjóða­mál og sam­starf við vest­rænar þjóðir, t.d. útfærslur land­helg­innar, aðild að við­skipta­samn­ingum, veiðar á alþjóð­legum hafs­svæðum og svo mætti lengi telja. Þessi dæmi hafa verið grund­völlur íslensks sjáv­ar­út­vegs til lengri og skemmri tíma.

Í máli for­manns SFS kemur fram að 50% af mak­ríl­sölu Íslands hafi verið til Rúss­lands og að Íslend­ingar hafi verið stærsti útflytj­andi af mak­ríl til Rúss­lands í heim­inum.

Rétt er að benda á að á tólf mán­aða tíma­bili, frá ágúst 2014 til ágúst 2015 beittu Rússar gagn­að­gerðum í formi inn­flutn­ings­banns á mat­væli gegn hart­nær öllum þeim tæp­lega 40 ríkjum sem í ríkja­hópnum eru, nema Íslandi. Íslenskir útflytj­endur, auk fær­eyskra og græn­lenskra, sátu því einir að Rúss­lands­mark­aði í tólf mán­uði áður en inn­flutn­ings­bann Rússa var útvíkkað og Ísland sett á bann­lista og juku veru­lega útflutn­ing sinn til Rúss­lands.

Í máli for­manns SFS kemur fram að utan Rúss­lands finn­ist eng­inn mark­aður fyrir frystar loðnu­af­urðir.

Þessi stað­hæf­ing stenst ekki. Fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2015 var seld fryst loðna og loðnu­hrogn til Kína fyrir um 1,3 millj­arða króna. Á árunum 2012 og 2013 var fryst loðna seld til Úkraínu fyrir hátt í 4 millj­arða. Á árunum 2014 og 2015 var sama vara seld á Úkra­ínu­markað fyrir um hálfan millj­arð króna.

Formaður SFS stað­hæfir að Norðmenn hafi fengið nið­ur­fell­ingu á tollum inn í Evr­ópu­sam­bandið fyrir mak­ríl­af­urðir en að Ísland hafi ekki fengið slíka nið­ur­fell­ingu þrátt fyrir umleit­anir þar um.

Þetta er ekki rétt. Evr­ópu­sam­bandið féllst á að skipta á toll­kvótum Noregs í síld gegn auknum kvóta í mak­ríl. Á sama tíma var samið um aukna kvóta í öðrum teg­undum fyrir Ísland sem m.a. mun styðja við land­vinnslu á karfa.

Formaður SFS segir íslenska þjóð­ar­búið vera að taka á sig hlut­falls­lega tutt­ugu­falt stærri skell en hin hart­nær 40 ríkin sem standa að þving­un­ar­að­gerðir gagn­vart Rúss­landi.

Aldrei hefur verið dregið í efa að við­skipta­bann Rúss­lands gegn Íslandi hafi nei­kvæðar afleið­ingar hér á landi. Að þær afleið­ingar séu tutt­ugu­falt stærri en áhrifin á önnur ríki er órök­stutt. Vert er að benda á að afkoma sjáv­ar­út­vegs árið 2015 er meðal þess besta í lýð­veld­is­sög­unni auk þess sem útflutn­ings­verð­mæti upp­sjáv­ar­af­urða á árinu 2015 er litlu minna en árið 2014.

Formaður SFS segir að til Íslands hafi eng­inn hátt­settur banda­rískur ráða­maður komið í mörg ár.

Hér er ekki rétt með farið. Síðast í sept­em­ber heim­sótti Robert Work, vara­varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Ísland og í októ­ber var Benjamin Ziff, aðstoð­ar­ráð­herra úr utan­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna staddur hér á landi í til­efni af Hring­borði norð­ur­slóða. Það hefur raunar ítrekað dregið að banda­ríska ráða­menn áður, t.d. öld­ung­ar­deild­ar­þing­mann­inn Lisu Murkowski og Papp aðmírál, sér­stakan full­trúa Banda­ríkja­for­seta í mál­efnum norð­ur­slóða. Orku­nefnd banda­rísku öld­ung­ar­deild­ar­innar heim­sótti Ísland á síð­asta ári og Victoria Nuland, varaut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna sömu­leiðis.

Einnig má nefna að Condoleezza Rice, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna heim­sótti Ísland árið 2008 og Colin Powell, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, árið 2002 í tengslum við utan­rík­is­ráð­herra­fund NATO.

Hins vegar er ljóst að ein­staka stefnu­mál Íslands, líkt og hval­veiðar, hafa haft áhrif á tíðni heim­sókna banda­rískra ráða­manna. Ísland rekur hins vegar sjálf­stæða utan­rík­is­stefnu og lætur ekki undan þess konar þrýst­ingi, enda grund­vall­ast íslensk utan­rík­is­stefna á virð­ingu fyrir alþjóða­lögum. Það á við um bæði rétt til hval­veiða sem og fram­ferði rúss­neskra yfir­valda í Úkraínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár