30 mega koma saman á barnum – ekki frá Þórólfi komið

Breyt­ingar á reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir, sem aug­lýstar voru í Stjórn­ar­tíð­indum í vik­unni, eru ekki byggðar á minn­is­blaði eða ráð­legg­ingum sótt­varna­læknis.

Til­slak­anir á sam­komu­tak­mörk­unum sem settar eru fram í reglu­gerð­ar­breyt­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og hafa þegar tekið gildi eru hvorki byggðar á minn­is­blaði sótt­varna­læknis né ráð­legg­ingum hans. Í breyt­ing­unum fellst til dæmis að þrjá­tíu í stað tutt­ugu áður mega vera í sama rými á veit­inga­stöðum með vín­veit­inga­leyfi, svo sem á kaffi­húsum, krám og skemmti­stöðum. Þessir staðir mega eftir sem áður ekki hleypa nýjum gestum inn eftir kl. 21 og skulu þeir hafa yfir­gefið stað­inn eigi síðar en kl. 22.

Þá mega 100 manns vera við­staddir athafnir trúar- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga í stað 30 í áður. Sama fjölda gesta er heim­ilt að vera við­staddur sviðs­listar-, menn­ingar- og íþrótta­við­burði, sem og ráð­stefnur, fyr­ir­lestra eða aðra sam­bæri­lega við­burði að upp­fylltum skil­yrðum á borð við skrán­ingu á nafni og kenni­tölu, grímunotkun og að 1 metra fjar­lægð milli ótengdra gesta sé tryggð.

Þessar breyt­ingar á reglu­gerð á tak­mörk­unum á sam­komum, sem gildir til 5. maí, voru í aug­lýstar í Stjórn­ar­tíð­indum á mið­viku­dag. Fleiri breyt­ingar voru gerðar. Í þeirri grein sem fjallar um tak­mark­anir á lík­ams­rækt­ar­stöðvum er fellt út ákvæði um að bún­aður skuli ekki fara á milli not­enda í sama hóp­tíma og skuli sótt­hreins­aður fyrir og eftir æfingu.

Þá er bætt við máls­grein um að tjald­svæðum sé heim­ilt að taka við helm­ingi af hámarks­fjölda mót­töku­getu hvers svæðis.

Reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir var síð­ast end­ur­skoðuð og upp­færð 13. apríl og þá í sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­læknis. Helsta breyt­ingin þá var að 20 máttu almennt koma saman í stað tíu áður.

Níutíu greindust á fimm dögum

Fljót­lega eftir að þær tóku gildi fór enn á ný að síga á ógæfu­hlið­ina í far­aldr­inum er hópsmit kom upp á leik­skóla í Reykja­vík. Á fimm dögum greindust 90 manns inn­an­lands, m.a. fjöldi barna, og mátti rekja nær öll smitin til far­þega sem komu til lands­ins en virtu ekki reglur um sótt­kví og/eða ein­angrun.

Hingað til hefur heil­brigð­is­ráð­herra farið nær alfarið eftir ráð­legg­ingum Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis í tengslum við aðgerðir í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. Spurður hvort að þessar breyt­ingar á sam­komu­tak­mörk­unum í vik­unni séu byggðar á minn­is­blaði eða ráð­legg­ingum sótt­varna­læknis svarar Þórólfur: „Þetta er frá ráðu­neyt­inu.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár