Segir borgarskipulag hafa mikil áhrif á lífshætti

Borg­ar­stjóri fjall­aði um áhrif borg­ar­skipu­lags á heilsu á fundi lækna­ráðs og hversu mik­il­vægt það væri að skipu­lagið hvetti til hreyf­ingar.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, segir að með sam­spili borg­ar­mynd­unar og ójafn­aðar þá sé að teikn­ast upp ný mynd af far­öldrum. Hann segir að offita sé einn þeirra far­aldra en fimmt­ungur full­orð­inna Íslend­inga þjá­ist nú af offitu. Hann telur því að mik­il­vægt sé að borg­ar­skipu­lag hvetji til hreyf­ingar.

Þetta kom fram í máli borg­ar­stjóra á fundi lækna­ráðs sem fjallað erum í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Ofþyngd nátengd stétt og stöðu

Á fund­inum sagði Dagur að þó að það væri ekki endi­lega vin­sælt að berj­ast fyrir auknu heil­brigði í sam­hengi við skipu­lag borga og bæja þá það væri það gríð­ar­lega gagn­legt.

„Það má segja að við séum í end­ur­skoð­un­arfasa þegar kemur að lækn­is­fræði og borg­ar­skipu­lagi. Við erum að ræða og fjalla um áhrif skipu­lags á heilsu og þurfum að hafa heil­brigð­is­gler­augu á öllu sem við gerum,“ sagði Dagur.

Hann rakti hvernig lands­menn voru á hrað­ferð í átt að ofþyngd á árunum 2010 til 2011 miðað við tölur OECD en að hins vegar voru ákveðnar vís­bend­ingar um að margir áhættu­þættir heil­brigðis hafi batnað eftir hrun. „Það vekur mikil við­brögð í sam­fé­lag­inu hvernig við tölum um þetta eða hvort við tölum um offitu sem heil­brigð­is­vanda,“ sagði Dagur og benti á að ofþyngd væri nátengd ójöfn­uði.

Mikilvægt að borgarskipulag hvetji til hreyfingar

Þá hefur borg­ar­skipu­lag mikil áhrif á lífs­hætti, líkt og hreyf­ingu, sam­kvæmt Degi og vís­aði hann þar í nið­ur­stöður banda­rísku stofn­un­ar­innar Clean Air Act. „Þau sýna að það skiptir máli í hvernig borg­ar­hverfi þú býrð fyrir það hvernig þú hreyfir þig,“ sagði Dagur og að það hafi síðan áhrif á heilsu, þar á meðal ofþyngd og þung­lyndi.

Stofn­unin sýndi fram á að línu­legt sam­band væri á milli hreyf­ingar og þess hvort þú býrð í þéttri og bland­aðri byggð eða dreifðri. Til að mynda skiptir máli hvað skólar eru langt frá heim­il­inu og hve langt er í næsta græna svæði.

Líkurnar á því að hreyfa sig auk­ist um 20 pró­sent ef úti­vist­ar­svæði er innan 1 kíló­metra fjar­lægðar frá heim­il­inu, um 21 pró­sent ef skóli er innan þessa marka, 23 pró­sent þegar þétt­leiki byggðar eykst um fjórð­ung og 19 pró­sent þegar þjón­ustan eykst um fjórð­ung.

Dagur sagði að þetta væri ástæða þess að vilji sé fyrir því að innan aðal­skipu­lags Reykja­víkur sé úti­vist­ar­svæði innan 300 metra frá sem allra flestum heim­ilum. Samkvæmt honum á það við um 93 pró­sent heim­ila í Reykja­vík­ur­borg.

Fimmtungur fimmtán ára unglinga yfir kjörþyngd

[links]Í nýrri skýrslu Efna­hags- og fram­fara­­stofn­un­­ar­innar um heilsu­far Íslend­inga kom fram að offita væri orðið umfangs­mikið lýð­heilsu­vanda­mál hér á landi en þeim sem þjást af offitu hefur fjölgað til muna síð­ustu ártaugi.

Í skýrsl­unni kemur fram að full­orðnir Íslend­ingar sem þjást af offitu hefur fjölgað til muna síð­asta ára­tugi, hlut­fallið hefur farið úr 12 pró­sentum árið 2002 í 27 pró­sent árið 2018.

Þá voru fimmt­ungur 15 ára gam­alla íslenskra drengja og stúlkna yfir kjör­þyngd á árunum 2013 til 14, en það var þriðja hæsta hlut­fallið í Evr­ópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár