Menntaðri Íslendingar lifa lengur

Munur á lífslíkum eftir mennt­unar- og tekju­stigi hefur auk­ist til muna frá árinu 2011. Þá hafa þeir tekju­lægstu þurft að neita sér mun oftar um lækn­is­þjón­ustu vegna kostn­aðar en þeir tekju­hæstu.

Lífslíkur fólks á Íslandi hafa auk­ist og eru þær tals­vert meiri en að með­al­tali innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Aftur á móti hefur félags­legur ójöfn­uður leitt til þess að munur á lífslíkum er að aukast eftir mennt­un­ar­stigi og tekjum. Til að mynda eru lífslíkur þrí­tugra karl­manna sem ekki hafa lokið fram­halds­skóla­menntun næstum fimm árum lægra en þeirra karl­manna sem lokið hafa háskóla­menntun.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar um heilsu­far þjóða.

Efnahagsleg staða hefur áhrif á lífslíkur

Í lands­skýrslu stofn­un­ar­innar um Ísland kemur fram að ekki sé ein­göngu hægt að rekja ójafnar lífslíkur hér á landi til kynja­mis­munar heldur einnig til félags- og efn­hags­legar stöðu, þar með talið mennt­unar- og tekju­stigs.

Allt frá árinu 2011 hefur munur á lífslíkum eftir mennt­un­ar­stigum auk­ist hér á landi. Þeir sem eru með minni menntun hafa dreg­ist aftur úr þeim sem eru með meiri menntun. Á átta árum breikk­aði bilið í lífslíkum milli þeirra með minnstu og þeirra með mestu menntun um eitt og hálft ár, þar sem nán­ast engin aukn­ing átti sér stað hjá þeim með minnstu mennt­un­ina.

Í fyrra var staðan sú að lífslíkur þrí­tugra karl­manna með lægsta mennt­un­ar­stigið var næstum fimm árum lægra en þeirra sem sátu á toppnum að þessu leyti. Þessi munur á lífslíkum eftir menntun var lægri á meðal kvenna, eða 3,6 ár.[adspot]

Í skýrsl­unni segir að þennan mun á lífslíkum eftir mennt­un­ar­stigi má að hluta til útskýra með því að hópar eru mis­út­settir fyrir mis­mun­andi áhættu- og lífstíls­þáttum, þar með talið hærri reyk­inga­tíðni, lak­ari nær­ing­ar­venjur og hærra offitu­hlut­falli meðal karla og kvenna með lægra mennt­un­ar­stig.

Auk þess teng­ist þessi munur á lífslíkum mis­mun­andi tekju­stigi og lífs­kjörum, sem svo aftur leiðir til auk­inna áhrifa frá öðrum áhættu­þáttum og aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu.

Töluverður munur á milli tekjuhópa

Í skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að flestir Íslend­ingar telja sig vera við góða heilsu eða alls þrír fjórðu hlutar íbú­anna, sem er nokkru hærra en ESB-með­al­talið sem stendur í 70 pró­sent.

Engu að síður, þá er eins og í öðrum löndum, fólk með lægri tekjur síður lík­legt til að segj­ast vera við góða heilsu. Á meðal þeirra tekju­lægstu segj­ast 70 pró­sent vera við góða heilsu sam­an­borið við 84 pró­sent þeirra tekju­hæsta.

Tekjulægri þurfa oftar að neita sér um læknisaðstoð

Þrátt fyrir að mik­ill meiri­hluti Íslend­inga finni lítið fyrir skorti á lækn­is­þjón­ustu hér á landi, sam­kvæmt skýrsl­unni, þá er tölu­verður munur í svörum á milli tekju­hópa. Hlutfall þeirra Íslend­inga sem sögð­ust hafa þurft að neita sér um lækn­is­þjón­ustu vegna kostn­aðar, fjar­lægðar og bið­tíma, var í kringum 3 pró­sent árið 2016.

Hins vegar náði þetta hlut­fall á meðal þeirra sem komu úr þeim fimmt­ungi sem tekju­lægstir eru nærri því 5 pró­sent, sem var rúm­lega tvö­falt hærra heldur en á meðal hinna tekju­hæstu 2 pró­sent. Þetta bil á milli tekju­hópa er mun breið­ara hér á landi en á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Í skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að þörf eftir þjón­ustu sem ekki er komið til móts við er í meira mæli þjón­usta sem sjúkra­trygg­ingar ná ekki til. Þar á meðal eru tann­lækn­ingar en árið 2016 sögð­ust 8 pró­sent Íslend­inga þurfa að búa við óupp­fylltar þarfir um tann­lækn­ingar.

Fjór­faldur munur er hins vegar til staðar þegar kemur að tekju­hópum en næstum 15 pró­sent af tekju­lægsta hópnum sögð­ust búa við óupp­fylltar þarfir þegar kæmi að tann­lækn­ingum. Á meðan að sam­svar­andi hlut­fall meðal hinna tekju­hæstu var aðeins 3 pró­sent. Þetta hlut­fall um óupp­fylltar þarfir á meðal hinna tekju­lægstu er miklu hærra en á nokkru hinna Norð­ur­land­anna..

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár