Eitt af hverjum sex dauðsföllum tengt matarvenjum

Offita er orðið umfangs­mikið lýð­heilsu­vanda­mál á Íslandi en alls þjást um fimmt­ungur full­orð­inna Íslend­inga af offitu.

Hegð­un­ar­tengdir áhættu­þættir leiða til rúm­lega þriðj­ungi allra dauðs­falla á Íslandi. Þarf af veldur sívax­andi offita sér­stökum áhyggjum. Þrátt fyrir að reglu­legar lík­am­legar æfingar séu algengar á meðal Íslend­inga þá leiða slæmar neyslu­venjur til þess að offitu­hlut­fallið helst hátt hér á landi. Íslend­ingar neyti allt of lítið af græn­meti og ávöxtum og of mikið af sykruðum vörum. 

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar um heilsu­far þjóða.

Offita er meiriháttar lýðheilsuvandamál á Íslandi

Offita leiðir til auk­innar áhættu á háum blóð­þrýst­ingi, syk­ur­sýki, hjarta­á­falli og ann­arra hjarta- og æða­sjúk­dóma, auk þess að vera áhættu­þáttur fyrir ákveðnar krabba­mein­steg­undir. 

Í skýrsl­unni kemur fram að full­orðnir Íslend­ingar sem þjást af offitu hefur fjölgað til muna síð­asta ára­tugi, hlut­fallið hefur farið úr 12 pró­sentum árið 2002 í 27 pró­sent árið 2018.

Þá voru fimmt­ungur 15 ára gam­alla íslenskra drengja og stúlkna yfir kjör­þyngd á árunum 2013 til 14, en það var þriðja hæsta hlut­fallið í Evrópu. Í skýrsl­unni segir að þetta stang­ast á við það að einn af hverjum fimm 15 ára ung­lingum tekur þátt í miðl­ungs- eða erf­iðum lík­ams­æf­ingum, sem er all­nokkru hærra en ESB-með­al­talið sem er 15 pró­sent. [adspot]

Þá er mik­ill munur á lík­ams­æf­ingum stúlkna sem mælist 14 pró­sent en 25 pró­sent hjá drengjum. Þrátt fyrir að reglu­legar lík­am­legar æfingar séu algeng­ari meðal íslenskra barna, og reyndar full­orð­inna líka, en tíðkast í flest­öllum ESB-ríkj­unum, þá leiða slæmar neyslu­venjur til þess að offitu­hlut­fallið helst hátt.

Í skýrsl­unni kemur fram að árið 2017 greindu meira en helm­ingur allra full­orð­inna frá því að þeir borði ekki svo mikið sem einn ávaxta­bita á degi hverjum, sem er hærra hlut­fall en í flest­öllum ESB-ríkj­unum. Þá segj­ast þriðj­ungur full­orð­inna Íslend­inga ekki borða einn græn­met­is­skammt á dag, sem er í námunda við ESB-með­al­talið. Enn fremur neyti Íslend­ingar of mikið af sykri og salti sam­kvæmt skýrsl­unni.

15 prósent dauðsfalla má rekja til reykinga

Aðrar hegð­un­ar­tengdir áhættu­hættir eru meðal ann­ars tóbaks­notkun og áfeng­is­neysla. Innan við tíundi hver full­orð­inna reykir dag­lega, sem er aðeins helm­ingur miðað við ESB-ríkin. Áfeng­is­neysla full­orð­inna Íslend­inga telst einnig ein­hver sú allra minnsta sem þekk­ist í Evrópu, þar sem hún er um 20 pró­sent minni en með­al­talið í Evr­ópu­ríkj­unum.

Þó er ætlað er að tóbaks­notkun (jafnt beinar sem óbeinar reyk­ingar) hafi leitt til 15 pró­sent af öllum dauðs­föll­unum hér á landi. Hins vegar leiddi áfeng­is­neysla, að því að talið er, aðeins til um 1 pró­sent dauðs­fall­anna, sem er langt innan við ESB-með­al­talið sem nam 6 pró­sentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár