Óljósar ábendingar til ráðuneytis og réttarfarsnefndar tilefni til lagabreytinga

Drög að breyt­ingum á lögum um rétt­ar­far og dóm­stóla sem nýlega voru lögð fram í sam­ráðs­gátt voru sögð fram sett m.a. vegna ábend­inga sem borist hefðu ráðu­neyti og rétt­ar­fars­nefnd. Engar skrif­legar ábend­ingar hafa þó borist, sam­kvæmt dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Ekki er unnt að fá upp­lýs­ingar um það hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu hverjir það eru sem hafa á und­an­förnum árum sett fram ábend­ingar til ráðu­neyt­is­ins eða rétt­ar­fars­nefndar um ýmsa þætti í dóms­kerf­inu, þrátt fyrir að þessar ábend­ingar séu nefndar á meðal ástæðna fyrir því að fyr­ir­hugað er að ráð­ast í breyt­ingar á lögum um með­ferð einka­mál og saka­mála og lögum um dóm­stóla.

Í umfjöllun um til­efni og nauð­syn laga­setn­ingar í frum­varps­drögum sem birt voru í sam­ráðs­gátt stjórn­valda á Þor­láks­messu segir að dóms­mála­ráðu­neyt­inu og rétt­ar­fars­nefnd hafi und­an­farin fjögur ár borist „ábend­ingar um ýmis atriði sem reynslan hefur leitt í ljós að betur megi fara í hinu nýja hinu nýja reglu­verki um máls­með­ferð fyrir þessum dóm­stólum og um önnur atriði sem ekki tengj­ast nýlegum breyt­ingum á dóm­stólum og rétt­ar­fari.“

Engar fundargerðir og engin skrifleg erindi

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og bað um að fá upp­gefið hvaða ábend­ingar þetta væru og frá hverjum þær hefðu borist. Einnig bað blaða­maður um að fá afrit allra fund­ar­gerða frá rétt­ar­fars­nefnd ef þær gætu varpað ljósi á það hvaða ábend­ingar væri um að ræða og frá hverjum þær hefðu borist.[links]

Í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við þess­ari bón blaða­manns var lítið af upp­lýs­ingum. Þar var því komið á fram­færi að rétt­ar­fars­nefnd héldi ekki fund­ar­gerðir og því væri „engum slíkum til að dreifa.“

„Engin skrif­leg erindi eða ábend­ingar liggja til grund­vallar þeim frum­varps­drögum sem lögð hafa verið fram,“ segir einnig í svari ráðu­neyt­is­ins og hljóta ábend­ing­arnar sem minnst er á í frum­varps­drög­unum því að hafa borist ráðu­neyt­inu eða rétt­ar­fars­nefnd­inni með ein­hverjum öðrum hætti.

„Nefndin og ráðu­neytið hafa það hlut­verk að hafa vak­andi auga með fram­kvæmd og máls­með­ferð í íslensku rétt­ar­fari. Að eigin frum­kvæði eru tekin til skoð­unar atriði sem hugs­an­lega mættu betur fara, án þess að erindi eða ábend­ingar hafi sér­stak­lega borist um þau. Frum­varps­drögin þarf því ein­fald­lega að meta á eigin verð­leikum og með hlið­sjón af þeim rök­stuðn­ingi sem fylgir,“ segir til við­bótar í svari ráðu­neyt­is­ins.

Fjórir dómarar í réttarfarsnefnd

Í svar­inu var einnig farið yfir hlut­verk rétt­ar­fars­nefndar, sem er það að vera ráð­herra til ráð­gjafar á sviði rétt­ar­fars. Helstu verk­efni nefnd­ar­innar eru þau að vera dóms­mála­ráð­herra til ráð­gjafar um samn­ingu frum­varpa og ann­arra reglna á sviði rétt­ar­fars, að semja frum­vörp og aðrar reglur að beiðni ráð­herra á því sviði og í sam­ræmi við áætlun og áherslur ráð­herra og að veita umsagnir um frum­vörp og aðrar til­lögur er varða rétt­ar­far.

[adspot]

Í rétt­ar­fars­nefnd sitja þau Sigurður Tómas Magn­ús­son, dóm­ari við Hæsta­rétt Íslands og for­maður stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar, sem jafn­framt er for­maður, Ása Ólafs­dóttir, dóm­ari við Hæsta­rétt, Ragn­heiður Harð­ar­dóttir, dóm­ari við Lands­rétt, Stefán Már Stef­áns­son, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands og Benedikt Bogason, dóm­ari við Hæsta­rétt.

Frum­varps­drögin fóru sem áður segir inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda á Þor­láks­messu og rann umsagn­ar­frest­ur­inn út þann 10. jan­úar. Fáar umsagnir bár­ust um efn­is­at­riði þess og hefur Kjarninn heyrt frá ein­stak­lingum í lög­manna­stétt sem hrein­lega heyrðu ekki af fram­lagn­ingu frum­varps­drag­anna fyrr en umsagn­ar­frest­ur­inn var runn­inn út.

Nýdoktor gerði athugasemdir

Haukur Logi Karlsson nýdoktor í lög­fræði við Háskóla Íslands gerði, eins og Kjarninn sagði frá fyrr í vik­unni, athuga­semdir við tvær breyt­ingar sem lagt er til að gerðar verði vegna frum­varps­ins, en báðar varða þær það hvernig dóm­arar eru skip­aðir á Íslandi.

Hann sagði báðar breyt­ing­arnar, ann­ars vegar um að dóm­stóla­sýslan fái heim­ild til þess að til­nefna starf­andi dóm­ara sem sinn full­trúa í dóm­nefnd um hæfi umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara og hins vegar um aft­ur­hvarf til fyrri starfs­hátta hvað val á vara­dóm­urum varðar, vera til þess fallnar að auka um of völd dóm­ara­stétt­ar­innar til þess að hafa áhrif á hverjir verði skip­aðir í emb­ætti.

Það væri síðan aftur lík­legt til þess að rýra traust almenn­ings til þess hvernig dóm­arar eru skip­aðir á Íslandi og þar með dóm­stóla.

Fréttin hefur verið upp­færð. Í fyrri útgáfu sagði að Ása Ólafs­dóttir væri dós­ent við HÍ en hún er dóm­ari við Hæsta­rétt síðan árið 2020. Stuðst var við óupp­færðar upp­lýs­ingar af vef rétt­ar­fars­nefndar í fyrri útg. fréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár