Tíu allsberir karlar fengu ókeypis síma

Símabúð í Reykja­vík bauð þeim sem afklædd­ust síma að launum. Aðeins tíu fengu far­síma en tíu aðrir fóru tóm­hentir. Neyt­enda­sam­tökin og lög­reglan fóru í málið.

Í lok nóv­em­ber árið 1995 vakti aug­lýs­ing frá Antoni Skúla­syni mikla athygli. Anton boð­aði að þeir sem kæmu naktir í verslun hans í Aust­ur­veri við Háleit­is­braut fengju ókeypis síma. Við­brögðin létu ekki á sér standa. „Eigum til Alkatel-, Nokia-, Panasonic-, Motorola- og Nokia-síma ásamt fylgi­hlutum. Ekkert bónu­s­kjaftæði, við erum ódýr­astir,” sagði í aug­lýs­ing­unni. Um 20 manns ber­hátt­uðu sig í versl­un­inni í þeirri trú að far­símar væru í boði. En vand­inn var sá að ein­ungis 10 manns fengu far­síma. Það hafði ekki verið tekið fram í aug­lýs­ing­unni sem birt­ist í Helg­ar­póst­inum. Hlutust af því eft­ir­mál þar sem Neyt­enda­sam­tökin töldu að brotið hefði verið gegn þeim nöktu sem fóru tóm­hentir heim. 

Helg­ar­póst­ur­inn var mættur á vett­vang þegar versl­unin opn­aði á aug­lýstum tíma. Einungis voru mættir naktir karl­menn. Tekin voru við­töl við þá nöktu sem létu vel af sér. 

„Fínt að fá síma fyrir að klæða sig úr,“ segir Jón Már Svav­ars­son 16 ára. Hann sipp­aði sér úr föt­unum og lét sig ekki muna um það — fannst þetta ekk­ert til­töku­mál. Aðspurður hvers vegna engir kven­menn væru þarna gerir Jón Már ráð fyrir að þær hafi ekki þorað. Hann segir að það hafi mynd­ast hópefli meðal drengj­anna og neitar því að hafa sært blygð­un­ar­kennd almenn­ings. „Þeir sem horfðu gerðu það af fúsum og frjálsum vilja.“ 

„Þetta er lif­andi sönnun þess að Helg­ar­póst­ur­inn er ekki dauður mið­ill. Þetta svín­virk­aði,“ segir Anton, sem bjóst við að ein­hverjir væru til í að leggja það 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár