Demókratar velja vopnin gegn Trump

Spennan magn­ast í banda­rískum stjórn­málum, þessa dag­ana. Bryndís Ísfold Hlöðvers­dóttir hefur fylgst með gangi mála úr návígi í New York, þar sem hún er búsett. Allt stefnir í tví­sýna bar­áttu hjá Demókrötum.

,,We love you Hillary” gólar mað­ur­inn mér á hægri hönd að flat­skjánum sem hangir yfir írskum bar í miðbæ Man­hattan á köldu sunnu­dags­kvöld í jan­úar. Konan hans tekur undir, “Love Yoooou”. Þriðju og síð­ustu kapp­ræður fram­bjóð­enda Demókrata eru í gangi og við vin­kon­urnar erum staddar í kapp­ræðupartýi á vegum kosn­inga­bar­áttu Hillary Clinton. Hjónin snúa sér að okkur og segja frá því í óspurðum fréttum að þau hafi haft ómælda ást á Hillary frá því hún var bara konan hans Bill, við kinkum kolli vand­ræða­lega og segjum að okkur þyki hún ágæt líka.

Magnþrungin spenna

Nú, nokkrum dögum síðar stytt­ist óðum í fyrsta for­val hjá Demókrötum fyrir for­seta­kosn­ing­arnar sem haldnar verða í nóv­em­ber. Hver frétta­tími rekur annan og umræðu­efnið er nær ein­göngu um nýj­ustu könn­un­ina eða síð­ustu upp­á­tæki Trumps. Fyrstu kosn­ing­arnar fara fram í Iowa næsta mánu­dag, því næst er kosið í New Hamps­hire þann 9. febr­úar og svo í Nevada ríki, 20. febr­úar. Öll þessi ríki eru svokölluð ,,swing states” sem þýðir að þau hafa sögu­lega sveifl­ast á milli þess að kjósa Demókrata og Repúblik­ana í for­seta­kosn­ingum og því ein­stak­lega mik­il­væg fyrir loka­nið­ur­stöðu kosn­ing­anna. Sum þykja sögu­lega mik­il­væg­ari en önnur. Sem dæmi hefur Nevada ríki alltaf kosið þann fram­bjóð­anda, Demókrata eða Repúblik­ana, sem hefur svo orðið for­seti síðan árið 1912, með aðeins einni und­an­tekn­ingu.

Spennan er mikil þessa dag­ana og fram­bjóð­endur eru á útopnu dag og nótt í þeim fylkjum sem fyrst eru í röð­inni. Bernie Sanders, sem er öld­ung­ar­deild­ar­þing­maður frá Vermont og kennir sig við sós­í­al­isma, hefur komið einna mest á óvart síð­ustu mán­uði. Nú lítur allt út fyrir að hann sigri í New Hamphire og jafn­vel í Iowa, þar sem fyrstu for­kosn­ing­arnar eiga sér stað. Hillary Clinton, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, öld­unga­deild­ar­þing­maður og for­seta­frú, er þó langt frá því að vera af baki dottin og nú kepp­ast sam­tök á borð við Planned Parenthood við að lýsa yfir stuðn­ingi við hana, sem og fjöld­inn allur af áhrifa­fólki eins og þessi listi hér sýnir. Þriðji fram­bjóð­and­inn er hinn geð­þekki Martin O’Malley, fyrrum borg­ar­stjóri í Baltimore og fylk­is­stjóri Maryland, sem er einna þekkt­astur fyrir að vera efni­viður í þætt­ina óvið­jafn­an­legu The Wire, en til­vera hans í kosn­ing­unum mælist hins vegar vart í könn­unum.

Í boltann eða manninn?

Í sam­an­burði við fram­bjóð­endur Repúblik­ana eru fram­bjóð­endur Demókra­ta­flokks­ins eins og vel upp­alin börn í skóla­bún­ing sem fara alltaf rak­leiðis í bolt­ann en aldrei í mann­inn eins og góðra stjórn­mála­manna er siður, þó það sé sjald­séð nú til dags. Harkan í kapp­ræðum milli Repúblik­ana fram­bjóð­end­anna er öllu meiri og óvægn­ari þar fer Donald Trump fremstur í flokki en hann trónir á toppnum í könn­unum og mælist með 35,8% á lands­vísu. Nýjasta útspil Trumps er að neita að mæta í kapp­ræður sem voru á sjón­varps­stöð­inni FOX nú í vik­unni af því honum þótti spurn­ingar sjón­varps­kon­unnar Megan Kelly frá fyrri kapp­ræðum dóna­legar og lét svo hafa eftir sér að hún hlyti að hafa verið á blæð­ingum. Kelly gerð­ist sek um að spyrja hann út í ósmekk­leg ummæli sem hann hafði átt um konur í for­tíð­inni og hvort honum þætti þau sæm­andi fyrir for­seta Banda­ríkj­anna.

Þrátt fyrir allt með mikið forskot

Þrátt fyrir hegðun Trumps er hann með um 18 pró­sentu stiga for­skot á næsta mann sem er öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Ted Cruz frá Texas. Fyrir skemmstu sagð­ist Trump ætla meina múslimum inn­göngu í landið, jafn­vel sem ferða­mönnum, yrði hann for­seti og und­ir­strik­aði það í fyrstu aug­lýs­ingu sinni að auki sem hann segir þar frá fyr­ir­ætlan sinni ,,að skera haus­inn af ISIS”, sem og að byggja múr við landa­mæri Mexíkó. Aug­lýs­ingin endar svo á slag­orði her­ferð­ar­innar sinnar “We will make America great again”.

Mikið vatn runnið til sjávar

Margt hefur því breyst frá því þegar flestir kosn­inga­spek­ingar hér vestra spáðu því í upp­hafi að Hillary Clinton myndi sigra for­völin með glæsi­brag án þess að fá mikla sam­keppni frá þeim Sanders og O’Malley og lík­legur and­stæð­ingur hennar yrði Jeb Bush sem varla mælist núna í könn­unum. Enn er þó Hillary með um 19 pró­sentu­stiga for­skot á lands­vísu, en aðstæður gætu breyst ef Sanders nær að sigra fyrstu fylkin. Því þar með eykst trú­verð­ug­leiki hans sem fram­bjóð­anda til muna og lík­legt að fleiri fari að skoða alvar­lega hvor fram­bjóð­end­anna sé lík­legri til að sigra Trump. En eins og staðan er núna virð­ist fátt geta komið í veg fyrir að Trump verði full­trúi Rebúp­lik­ana.

Í könnun í lok des­em­ber var stór hópur kjós­enda spurður hvern þau myndu kjósa ef nið­ur­staða for­vals flokk­ana end­uðu á þessa vegu:

Trump/ Hillary

Hillary 47%

Trump 40%

Þegar spurt var um það, ef valið stæði á milli Trump og Sanders, þá var Sanders með afger­andi for­ystu.

Trump / Sanders

Sanders 51%

Trump 38%

Hnífjafnt var hins vegar þegar Hillary Clinton og Cruz var stillt upp sem val­kostum.

Hillary / Cruz

Hillary 44%

Cruz 44%

Og nán­ast sama staða var uppi þegar Sanders og Cruz voru val­kost­irnir, en Cruz var þó með aðeins meira fylgi.

Sanders / Cruz

Sanders 43%

Cruz 44%

Sanders sterkari gegn Trump

Það sem vekur athygli í þess­ari könnun er að Sanders mælist sterk­ari gegn Trump en Hillary, en hér er um að ræða könnun yfir allt landið sem tekur ekki til­lit til hins flókna kosn­inga­kerfi Banda­ríkj­anna sem byggir á svoköll­uðu kjör­manna­kerfi. Nið­ur­stöður kosn­inga eru alls ekki alltaf þær sömu og ef hvert atkvæði væri talið, eins kom svo eft­ir­minni­lega í ljós þegar Al Gore var með fleiri atkvæði en George W. Bush í for­seta­kosn­ing­unum árið 2000, en Bush fékk fleiri kjör­menn og hlaut for­seta­emb­ættið, þó sú nið­ur­staða hafi verið umdeild. Könnunin gefur þó sterka vís­bend­ingu um hvernig kjós­endur vega og meta mögu­lega fram­bjóð­endur flokk­anna á kjör­dag.

Nýjasta könn­unin frá Quinnipiac Uni­versity á lík­legum kjós­endum í for­vali Demókrata í Iowa, þar sem fyrst verður kosið, mælir Sanders með meira fylgi en Hillary. Mun fleiri karlar styðja Sanders eða 63%, en aðeins 32% karla styðja Hillary. Konur eru hlið­holl­ari Hillary eða 54% og 40% þeirra segj­ast munu styðja Sanders. Þá er Sanders miklu vin­sælli meðal yngri kjós­enda en Hillary hefur sterk­ari stuðn­ing meðal minni­hluta­hópa. Útkoman er þá þessi:

Sanders 49%

Hillary 45%

O’Malley 4%

Í sam­an­burði við kann­anir á lands­vísu eru þó lík­urnar á því að Hillary sigri Sanders enn yfir­gnæf­andi ef marka má heild­ar­tölur úr sam­an­safni kann­ana hjá töl­fræði­gúrúnum Nate Silver.

Hillary 53,4%

Sanders 34,1%

O’Malley 3%

En óneit­an­lega minnir þessi staða á upp­haf for­vals­ins árið 2008 hjá Demókrötum þegar óþekktur öld­unga­deilda­þing­maður frá Chicago, Barack Obama kom flestum á óvart þegar hann sigr­aði Hillary í hverju rík­inu á fætur öðru.

Svipar til stefnunnar hjá Obama

Í nýlegri grein í vefrit­inu Politico er bent á hversu mikið stra­tegíu Sanders svipar til þeirrar sem Obama lagði svo listi­lega upp árið 2008 sem end­aði með sigri hans. En Sanders hefur lagt ofurá­herslu á þau fylki sem byggja á svoköll­uðum Caucus eða sem er í mjög stuttu máli kjör­fundir þar sem fólk mætir á stað og hópar sig saman með sínum fram­bjóð­anda og því ekki um leyni­legar hefð­bundnar kosn­ingar að ræða. Í slíkum til­fellum eru það áköf­ustu stuðn­ings­menn­irnir sem eru lík­leg­astir til að mæta. Ólíkt þegar um er að ræða hefð­bundna leyni­lega kosn­ingu sem er í mörgum til­fellum opin öllum kjós­endum þess flokks sem kosið er fyrir.

Þetta vill greina­höf­undur meina sé lík­legt til árang­urs fyrir Sanders, en auk þess sé sam­setn­ing kjós­enda í fyrstu fylkj­unum í for­val­inu honum einnig hlið­holl, en í þeim er meiri­hlut­inn hvítt milli­stétta­fólk. Hillary sækir fylgið sitt til breið­ari hóps, sér í lagi til kvenna og minni­hluta­hópa. Búist er við því að hún styrki stöðu sína til muna þegar líður á for­valið þegar fylkin sem hún hefur yfir­gnæf­andi meiri­hluta­stuðn­ing í, kjósa. Mikil vel­gengni Sanders í upp­hafi gæti þó haft áhrif á stöðu hennar í þeim ríkjum sem hún er nú mælist með lang­mesta fylgið.

En eins og sagan hefur sýnt gæti margt enn gerst, sem gæti snar­lega breytt stöð­unni. Það, hversu stór hópur kjós­enda ákveður að mæta á kjör­stað hefur mikið að segja, en að jafn­aði kýs aðeins rétt um helm­ingur kjós­enda í for­seta­kosn­ing­unum sjálfum.

Flóknari staða með nýjum manni

Til að flækja málið enn meira hefur hinn vin­sæli fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri New York borgar Michael Bloomberg verið að viðra þá hug­mynd að bjóða sig fram sem óháður. Ef Bloomberg býður sig fram munu að öllum lík­indum snar­aukast lík­urnar á þeim mögu­leika að Trump geti raun­veru­lega orðið for­seti Banda­ríkj­ana, þ.e. ef Hillary fær útnefn­ingu Demókrata, þar sem Bloomberg er tal­inn lík­legur að sækja fylgi í sama hóp og hún. Þannig myndi fylgi hennar minnka og að hluta fær­ast yfir til Bloombergs og lík­urnar á að Trump nái yfir þriðj­ung atkvæða aukast. Varn­ar­menn Bloombergs benda á að hann fari að öllum lík­indum ekki fram nema Sanders fái útnefn­ingu Demókrata.

Miðjuaflið komi og bjargi málunum

Verði það hins vegar raunin að Sanders og Trump fái útnefn­ing­arnar spái menn fyrir um að Bloomberg komi inn í for­seta­kosn­ing­arnar sem miðju aflið til að bjarga land­inu frá öfg­unum úr báðum áttum. Þetta telur hinn þekkti hag­fræð­ingur Paul Krugman vera full­komna upp­skrift að sigri Trump, þar með fær­ist hluti Demókrata yfir á Bloomberg og þar með dreif­ist fylgið svo að Trump fær flest atkvæði. Svona má lengi halda áfram með spek­úla­sjónir og það gera fjöl­miðla­menn hér vestra allan lið­langan dag­inn í spjall­þáttum.

Endurtekur sagan sig?

Af ótta við að sagan frá 2008 end­ur­taki sig er skilj­an­legt að nú virð­ist allt ætla um koll að keyra í her­búðum Hillary. Nú fá stuðn­ings­menn tvo til þrjá tölvu­pósta á dag um ástand mála í Iowa og New Hamps­hire og ekk­ert verið að spara yfir­lýs­ing­arnar. Tölvu­póst­ur­inn sem mér barst fyrir allar aldir í morgun var undir yfir­skrift­inni: “We are runn­ing out of time, Bryndís”. Áður en ég átt­aði mig á sam­hengi hlut­anna var ég komin með hnút í mag­ann og búin að sann­færa sjálfa mig að nú hefði ég gleymt ein­hverju mik­il­vægu.

En inni­haldið var að minna mig á að ég hefði ekki gefið krónu til stuðn­ings Hillary og þau þyrftu níu manns til við­bótar í mínu hverfi að styrkja her­ferð­ina fyrir Iowa for­valið sem eru á mánu­dag­inn næsta. Næsti tölvu­póstur var svo beint úr póst­hólf­inu frá Tim sem stýrir sjálf­boða­starf­inu hjá Sanders í mínu hverfi. Í honum var verið að minna á göngu sem haldin verður á sunnu­dag til heið­urs Sanders hér í New York, bara texti og frekar heim­il­is­legt.

Hvorki Sanders né Hillary gera sér grein fyrir því að það er vita gagns­laust að vera að atast í mér, því ég má hvorki gefa pen­ing né kjósa. En spennan magn­ast og það virð­ist ætla að vera mikil hátíð framundan fyrir áhuga­fólk um banda­rísk stjórn­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár