Framhaldsskólakennarar felldu kjarasamning með því að hafna vinnumati

Fram­halds­skóla­kenn­arar í rík­is­skólum og Tækni­skól­anum felldu nýtt vinnu­mat í atkvæða­greiðslu sem lauk á hádegi í dag. Það þýðir að kjara­samn­ingar fram­halds­skóla­kenn­ara sem gerðir voru síð­ast­liðið vor eru lausir frá og með deg­inum í dag.

53 pró­sent kenn­ara í rík­is­reknum fram­halds­skólum höfn­uðu vinnu­mat­inu, en 44 pró­sent sam­þykktu það. 83,3 pró­sent fram­halds­skóla­kenn­ara í Tækni­skól­anum höfn­uðu vinnu­mat­inu í raf­rænni kosn­ingu en 16,7 pró­sent sam­þykktu það.

Kennarar í Mennta­skóla Borg­ar­fjarðar og Verzlunarskóla Íslands sam­þykktu nýtt vinnu­mat sem þýðir að samn­ingar þeirra halda. 90,9 pró­sent kenn­ara í Mennta­skóla Borg­ar­fjarðar sögðu já við nýja mat­inu en í Verzlunarskóla Íslands voru 87,1 pró­sent kenn­ara fylgj­andi vinnu­mat­inu.

„Okkur hefur verið ljóst allan tím­ann að það yrði naumt á mun­unum í rík­is­skól­unum og sam­komu­lag um nýtt vinnu­mat umdeilt meðal félags­manna. En lýð­ræð­is­leg nið­ur­staða liggur fyrir og verk­efni framundan að ná samn­ingi við okkar við­semj­endur á grund­velli þess­arar nið­ur­stöðu,“ segir í tölvu­pósti sem Guðríður Arn­ar­dóttir, for­maður félags fram­halds­skóla­kenn­ara sendi kenn­urum rúm­lega þrjú í dag. Hún segir hafa óskað eftir fundi með við­semj­endum strax eftir helgi og kallað saman samn­inga­nefnd fram­halds­skóla­kenn­ara til að fara yfir málið.

Vinna við nýja vinnu­matið hefur verið í gangi frá því að kjara­samn­ing­arnir voru sam­þykktir í apríl síð­ast­liðnum. Stór hluti samn­ing­anna snérist um vinnu­matið, sem hefur verið umdeilt meðal kenn­ara frá því að það var kynnt. Í stað þess að fastir tímar séu reikn­aðir á bak við hvern áfanga var hver áfangi fyrir sig met­inn eftir þáttum eins og fjölda nem­enda og umfangi.

Vinnu­matið hefði gefið fram­halds­skóla­kenn­urum 9,3 pró­senta taxta­hækkun, en þeir sem gagn­rýndu vinnu­matið bentu á það að vinnu­krafa í fullu starfi kenn­ara yrði lækkuð hjá þeim sem teld­ust búa við vinnu­þunga áfanga en hækkuð hjá þeim sem væru taldir með vinnu­létta áfanga. Því yrði raun­hækkun mjög mis­mun­andi og jafn­vel engin hjá sumum.

Grunnskólakennarar samþykktu


Atkvæða­greiðslu um nýtt vinnu­mat grunn­skóla­kenn­ara lauk einnig í hádeg­inu í dag. Grunn­skóla­kenn­arar sam­þykktu sitt vinnu­mat sem þýðir að þeirra kjara­samn­ingar halda. Vinnu­matið var sam­þykkt með 57,8 pró­sentum atkvæða en 39,4 pró­sent sögðu nei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár