Yfirstéttarmaður fólksins

Boris Johnson, án efa einn umdeildasti stjórn­málamaður Bretlands síðustu ár, tók á dögunum við embætti forsætis­ráðherra eftir að Brexit-áætlun Theresu May fór úr böndunum. Hans bíður nú það erfiða verkefni að leiða þau mál til lykta en Johnson á að baki langan og skraut­legan feril í stjórn­málum og sem óvænt fjölmiðla­stjarna.

Það voru aðeins 0,13% breskra kjósenda sem greiddu hinum nýja forsætis­ráðherra atkvæði sitt enda var ekki um almenna kosningu að ræða heldur leiðtoga­kjör Íhalds­flokksins. Innan­búðarátök um hvernig ætti að útfæra útgöngu Breta úr Evrópu­sambandinu höfðu gert Theresu May ómögulegt að starfa áfram og Johnson var fremstur í flokki harðlínumanna sem sökuðu hana um að lúffa fyrir Brussel í samninga­viðræðunum. 

Johnson ku vera fyrsti leiðtogi Bretlands sem einnig væri kjör­gengur í forseta­kosningum í Banda­ríkjunum, en hann fæddist í New York árið 1964 og er því með tvöfaldan ríkis­borgararétt þó að foreldrar hans séu breskir. Honum hefur raunar verið líkt við núverandi Bandaríkja­forseta af bæði andstæðingum og stuðnings­mönnum sínum.

„Hann er harður af sér og vel gefinn … þeir kalla hann Trump Bretlands!“ sagði Donald Trump sjálfur þegar hann frétti af sigri Johnsons. „Hann er eins og Trump með samheita­orðabók,“ sagði Nick Clegg, fyrr­verandi leiðtogi Frjáls­lyndra demókrata, nokkrum árum áður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár