Danir banna trúarhópum að slátra eftir helgisiðum

Danir hafa bannað trú­ar­legar slátr­un­ar­að­ferðir á dýrum með lögum sem gera dýra­vernd æðri trú­ar­hefðum. Samfélög gyð­inga og múslima í Danmörku eru mjög ósátt við bannið.

Regl­urnar, sem skylda slát­ur­hús til að svæfa dýrin áður en þeim er slátrað, ná nú einnig yfir trú­ar­hópa og -sam­fé­lög. Trú­ar­hóp­arnir höfðu haft und­an­þágu frá slíkum reglum. Nýju lögin úti­loka þessar und­an­þágur. Dan Jørg­en­sen, land­bún­að­ar­ráð­herra, sagði TV2 að skýrt væri að „dýra­vernd væri æðri trú­ar­hefðum“ í Danmörku.

Slátr­un­ar­að­ferð­irnar sem Danir hafa bannað eru til dæmis þær sem not­aðar eru til að búa til „kos­her“ og „halal“, hefð­bundna rétti gyð­inga og múslima. Báðar fela í sér slátr­anir dýra eftir helgum siðum.

Aðgerð­ar­sam­tökin Danskt halal (d. Dansk Halal) hefur sagt bannið í mót­sögn við trú­frels­is­á­kvæði danskra laga. Ísra­elskur ráð­herra hefur jafn­framt blandað sér í umræð­una og sagt bannið and­semi­tískt. Þá eru nýju regl­urnar taldar hafa áhrif á við­skipti milli Dan­merkur og landa eins og Sádí Arabíu.

Strang­trú­aðir gyð­ingar og múslimar geta ekki borðað kjöt nema dýrið sem afurðin kemur af hafi verið drepið með ein­földum háls­skurði, sem ætl­aður er til þess að tak­marka þján­ingar dýrs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár