Hagstæð veikari króna og minni samdráttur en óttast var

Grein­endur Arion banka segja að tölur Hagstofu Ísland um inn- og útflutn­ing þjóð­ar­búss­ins séu jákvæð­ari en margir spáðu.

Grein­endur Arion banka segja að nýjar tölur Hagstofu Íslands um inn- og útflutn­ing sýni jákvæð­ari mynd en margir þorðu að teikna upp, eftir fall WOW air í lok mars. Sam­drátt­ur­inn í þjón­ustu­af­gang­inum sé lít­ill.

Ástæðan fyrir betri hag­tölum, miðað það sem margir þorðu að spá, er meðal ann­ars veik­ari króna en í fyrra, sem skilar meiri tekjum í krónum talið fyrir gjald­eyri, og síðan minni sam­dráttur í ferða­þjón­ustu, en margir ótt­uð­ust. „Samkvæmt bráða­birgða­töl­unum nam afgangur af þjón­ustu­við­skiptum 52 ma.kr., sem sam­svarar ein­göngu 10% sam­drætti á milli ára, á föstu gengi. Á breyti­legu gengi jókst hins vegar afgang­ur­inn um 700 millj­ónir króna, eða 1,4%, þar sem gengi krón­unnar er tölu­vert veik­ara en það var á 2F 2018,“ segir í grein­ingu Arion banka.

Á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins fluttu Íslend­ingar inn vörur og þjón­ustu fyrir 319,8 millj­arða króna en út fyrir 329,8 millj­arða króna. Vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður var því jákvæður um 9,4 millj­arða króna á öðrum árs­fjórð­ungi 2019.

Þegar krónan var sterk­ust, á vor­mán­uðum í fyrra, kost­aði Banda­ríkja­dalur 97 krónur en hann kostar nú 125 krónur.

Í grein­ingu Arion banka kemur þó fram sá fyr­ir­vari, að grein­endur bank­ans hafi ekki áttað sig almenni­lega á því hvers vegna sam­drátt­ur­inn í inn­fluttri þjón­ustu hafi verið jafn mik­ill og raun ber vitni í tölum Hag­stof­unnar, en fyrir vikið kemur þjón­ustu­hlut­inn betur út fyrir þjóð­ar­búið.

„Samkvæmt bráða­birgða­töl­unum nam afgangur af þjón­ustu­við­skiptum 52 ma.kr., sem sam­svarar ein­göngu 10% sam­drætti á milli ára, á föstu gengi. Á breyti­legu gengi jókst hins vegar afgang­ur­inn um 700 millj­ónir króna, eða 1,4%, þar sem gengi krón­unnar er tölu­vert veik­ara en það var á 2F 2018. Þetta er ívið betri nið­ur­staða en við þorðum að vona, en spá okkar hljóð­aði upp á 26 ma.kr. afgang. Að þessu sinni var það inn­flutt þjón­usta sem kom okkur í opna skjöldu, en hversu mik­ill sam­drátt­ur­inn reynd­ist milli ára er ráð­gáta sem við höfum ekki ennþá kom­ist til botns í,“ segir í grein­ing­unni.

Almennt hafa tölur úr ferða­þjón­ust­unni komið betur út, en margir gerðu ráð fyrir, en korta­velta ferða­manna hefur hald­ist nokkuð há, og verið yfir því sem raunin var í fyrra - mælt á hvern ferða­mann að með­al­tali. „Í ljósi mik­ils korta­veltu­vaxtar á hvern ferða­mann sam­an­borið við árið 2018, lengri dval­ar­tíma og veik­ari krónu var útséð að ferða­lög, eða heild­ar­neysla ferða­manna, myndi drag­ast minna saman en nemur fækkun ferða­manna. Sú varð raunin, og gott betur en það, þar sem neysla ferða­manna jókst um 0,1% milli ára á breyti­legu gengi, þrátt fyrir 19,2% fækkun ferða­manna,“ segir í grein­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár