Faraldurinn hafi opinberað veikleika og styrkleika norræns samstarfs

Norrænu for­sæt­is­ráð­herr­arnir héldu blaða­manna­fund í Kaupa­manna­höfn í morgun þar sem þeir ræddu m.a. hvernig löndin geti bætt sam­starfið þegar krísa skellur á.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var á blaðamannafundi norrænu forsætisráðherranna á þingi Norðurlandaráðs í morgun.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var á blaða­manna­fundi nor­rænu for­sæt­is­ráð­herr­anna á þingi Norð­ur­landa­ráðs í morgun. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mætti á blaða­manna­fund nor­rænu for­sæt­is­ráð­herr­anna í Kaup­manna­höfn í Danmörku í morgun en þing Norð­ur­landa­ráðs stendur nú yfir þar í landi. Hún segir í sam­tali við Kjarnann að ráð­herr­arnir hafi meðal ann­ars rætt sín á milli hvernig Norð­ur­löndin geti byggt sig upp þannig að þau séu sam­stillt þegar vá er fyrir dyrum.

Ráð­herr­arnir sendu frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem þeir lýstu yfir vilja til að dýpka sam­starf Norð­ur­land­anna til að geta verið betur und­ir­búin fyrir krísu á borð við kór­ónu­veiruna. Á þingi Norð­ur­landa­ráðs í dag ræddu þing­menn og ráð­herrar enn fremur skýrslu sem fjallar meðal ann­ars um það hvað hægt sé að læra af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og hvað hefði verið hægt að gera betur.

Katrín segir í sam­tali við Kjarnann að ákveðin mál hafi komið upp í byrjun far­ald­urs sem þurfi að skoða. „Sum lönd eru í ESB og önnur ekki. Það skapar, ja, ég segi ekki vanda­mál – sumir eru í öðru sam­tali þannig að það var úrlausn­ar­efni fyrir okkur en við nutum til dæmis mik­ils aðstoðar Svía í bólu­efna­samn­ingum sem er eitt af því sem við þurfum að vera svo­lítið með­vituð um í nor­rænu sam­starfi. Svo eru sumir í NATO og aðrir ekki. Það er eitt­hvað sem við þurfum líka að vera með­vituð um.“

Katrín segir að yfir­lýs­ing ráð­herr­anna snú­ist um það að fara yfir ákveðna ferla. „Hvað gerum við þegar krísa skellur á og lönd fara til dæmis að loka landa­mærum?“ spyr hún og bætir því við að mikil óvissa hafi skap­ast í kringum ástandið. Hún segir að sú óvissa hafi eig­in­lega verið ónauð­syn­leg þar sem ráð­herrar land­anna þekk­ist vel og hefðu getað verið í meira sam­bandi í byrjun COVID.

Hún segir að far­ald­ur­inn hafi að ein­hverju leyti opin­berað veik­leika í nor­rænu sam­starfi. „En líka má segja að eftir fyrsta áfallið þá hófst rosa­lega þétt sam­tal og borg­ara­þjón­ust­urnar unnu til dæmis mikið saman til að koma fólki heim. Það var mikið sam­tal á milli heil­brigð­is­ráð­herr­anna og utan­rík­is­ráð­herr­anna – þannig að fyrstu við­brögð voru svo­lítið „hver fyrir sig“ en svo hófst mjög þétt sam­tal. Þannig að far­ald­ur­inn opin­ber­aði bæði veik­leika og styrk­leika.“

Hvernig er að koma aftur á þing Norð­ur­landa­ráðs eftir að það féll niður í fyrra vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins?

[links]„Það er rosa­lega gaman og maður skynjar ofboðs­lega stemn­ingu í hús­inu,“ segir Katrín. Hún bendir á að nor­rænu for­sæt­is­ráð­herr­arnir hafi reyndar hist á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í Glasgow í vik­unni en hún tók þátt í hlið­ar­við­burði ráð­herr­anna um grænar fjár­fest­ingar, þar sem meðal ann­ars var greint frá þeirri fyr­ir­ætlan íslenskra líf­eyr­is­sjóða að fjár­festa í grænum verk­efnum.

Kjarninn fjall­aði um málið í gær en þrettán íslenskir líf­eyr­is­sjóðir ætla að setja 580 millj­arða króna í fjár­fest­ingar í hreinni orku og umhverf­is­vænum lausnum til árs­ins 2030. Sjóð­irnir skrif­uðu undir vilja­yf­ir­lýs­ingu þess efnis gagn­vart alþjóð­legu sam­tök­unum Climate Invest­ment Coa­lition (CIC) sem var form­lega kynnt á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Glas­gow í gær. CIC mun fylgj­ast með og mæla hvort þátt­tak­endur í verk­efn­inu standi við yfir­lýst mark­mið og birta nið­ur­stöður sínar árlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nrsession

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár