Ættum að deila bóluefni og björgum með fátækari löndum

Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hélt ræðu á þingi Norð­ur­landa­ráðs í Kaupa­manna­höfn í dag. Hún sagði m.a. að vand­inn vegna heims­far­ald­urs­ins hyrfi ekki fyrr en öll ríki heims hefðu fengið bólu­efni sem nægðu til að bólu­setja flesta íbúa jarð­ar­innar.

Oddný Harðardóttir ávarpaði þing Norðurlandaráðs í dag.
Oddný Harð­ar­dóttir ávarp­aði þing Norð­ur­landa­ráðs í dag. Mynd: Magnus Fröderberg/norden.org

„Kór­ónu­veiran hefur dregið fram veik­leika í innviðum nor­ræna ríkj­anna en við erum ríkar þjóðir og munum vinna bug á vanda­mál­unum. En vand­inn vegna heims­far­ald­urs­ins hverfur ekki fyrr en öll ríki heims hafa fengið bólu­efni sem nægja til að bólu­setja flesta íbúa jarð­ar­innar. Þess vegna ættum við að deila bólu­efnum og björgum með fátæk­ari löndum.“

Þetta sagði Oddný Harð­ar­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á þingi Norð­ur­landa­ráðs sem nú stendur yfir í Kaup­manna­höfn en hún situr í for­sætis­nefnd ráðs­ins fyrir jafn­að­ar­menn.

Spurði hún í fram­hald­inu utan­rík­is­ráð­herrana í Norð­ur­landa­ráði hvernig þeir litu á hlut­verk Norð­ur­landa við að tryggja fátæk­ari ríkjum bólu­efni.

Viðbrögð landanna við faraldrinum sýndu hvar veikleikarnir í samstarfinu liggja

Oddný hóf mál sitt á því að segja að mik­il­vægt væri að utan­rík­is­ráð­herr­arnir settu nor­rænt sam­starf í for­gang. „Sendiráð land­anna gegna mik­il­vægu hlut­verki í utan­rík­is­starfi og við að standa vörð um nor­ræna hags­muni á tímum hnatt­væð­ingar. Við verðum alltaf að gæta að jafn­rétti, lýð­ræði og mann­rétt­indum.

Samstarf okkar byggir á vin­áttu og trausti sem byggt hefur verið upp yfir langan tíma. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og við­brögð land­anna og aðgerðir – sem ekki voru alltaf í takt – sýndi okkur hversu mik­il­vægt nor­rænt sam­starf er og einnig hvar veik­leik­arnir í sam­starf­inu liggja. Af því verðum við að læra,“ sagði hún.

„Verðum að vinna saman gegn því að kapphlaup um auðlindirnar hefjist“

Þá tók Oddný fram að Norð­ur­landa­ráð legði ríka áherslu á að vinna gegn lofts­lagsvá. Áhrif lofts­lags­breyt­inga á norð­ur­slóðum væru mikil og hlýn­unin hrað­ari þar en ann­ars staðar. Áhrifin væru félags­leg, efna­hags­leg, póli­tísk og auð­vitað umhverf­is­leg.

„Þegar ísinn bráðnar á norð­ur­slóðum verða auð­lindir aðgengi­legri. Við verðum að vinna saman gegn því að kapp­hlaup um auð­lind­irnar hefj­ist, kapp­hlaup á milli stórra valda­mik­illa ríkja svo sem Rúss­lands, Kína eða Banda­ríkj­anna. Við fengum nasa­sjón af óásætt­an­legu við­horfi þegar Trump sagð­ist vilja kaupa Grænland.

Velferð íbú­anna á Norð­ur­slóðum á að vera okkur efst í huga og að vinna að lausn mála á frið­sam­legan hátt,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár