Megum engan tíma missa

Lofts­lags- og örygg­is­mál voru áber­andi í ræðu utan­rík­is­ráð­herra á þingi Norð­ur­landa­ráðs fyrr í dag.

Utanríkisráðherra hélt ræðu á þingi Norðurlandaráðs í dag.
Utan­rík­is­ráð­herra hélt ræðu á þingi Norð­ur­landa­ráðs í dag. Mynd: Skjáskot/norden.org

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir að Norð­ur­löndin verði að bregð­ast við áskor­unum í lofts­lags­málum og breyttu lands­lagi í örygg­is­málum „af fullum þunga“. Aðgerðir kalli á inn­leið­ingu til­lagna skýrslu Björns Bjarna­sonar, sem kom út í fyrra, í æðstu stjórn­sýslu, bæði hjá fagráðu­neytum og utan­rík­is­ráðu­neytum. Þær þurfi einnig að sam­þætta sam­starfi þjóð­anna við alþjóða­stofn­anir og önnur ríki.

Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í dag á þingi Norð­ur­landa­ráðs sem nú stendur yfir í Kaup­manna­höfn.

„Norrænt sam­starf er ein­stakt og sem ríkja­hópur eiga Norð­ur­löndin sterka rödd á alþjóða­vett­vangi sem gerir þeim kleift að hafa umtals­verð áhrif í fjöl­þjóð­legu sam­starfi,“ sagði hann.

Árangur næst einungis með öflugri samvinnu

Vitnaði Guð­laugur Þór, eins og áður segir, í skýrslu Björns Bjarna­sonar sem kom út á síð­asta ári og sagði hann skýrsl­una varpar ljósi „á nýjan kafla í nor­rænu sam­starfi þar sem sam­vinna í öryggis- og utan­rík­is­málum þarf í auknum mæli að taka mið af breyttu örygg­is­um­hverfi og þeim áskor­unum sem blasa við okkur í dag“.

[links]„Loft­lags­breyt­ingar og fjöl­þáttaógnir á borð við netárásir og upp­lýs­inga­óreiðu grafa nú undan þeim stöð­ug­leika sem við höfum búið við og ekk­ert ríki getur eitt og sér tekið á þeim áskor­unum. Árangur næst ein­ungis með öfl­ugri sam­vinnu og því er mik­il­vægt að við sam­einum krafta okkar og byggjum á sterkum stoðum nor­rænnar sam­vinnu.

Við eigum þegar far­sælt sam­starf á mörgum mál­efna­sviðum sem til­lögur skýrsl­unnar fjalla um, en það má efla enn frekar með ýmsum hætti. Við getum til að mynda lagt enn meira af mörkum á sviði lofts­lags­mála, til dæmis með auknu sam­ráði á sviði haf­rann­sókna og útflutn­ingi á grænum lausnum,“ sagði hann.

Ákall á ríki heims að þau sýni aukinn metnað í loftslagsaðgerðum

Ráð­herr­ann hélt áfram að tala um skýrslu Björns Bjarna­sonar. „Auk lofts­lags­mála, fjalla til­lög­urnar um lofts­lags­ör­yggi og þró­un­ar­mál, við­búnað vegna heims­far­aldra, sam­starf um utan­rík­is­þjón­ustu og rann­sóknir á sviði utan­ríkis- og örygg­is­mála, svo fátt eitt sé nefnt. Allt eru þetta mik­il­væg mál­efni þar sem nor­ræn sam­vinna getur reynst dýr­mæt eins og reynsla síð­ast­lið­inna sjö ára­tuga hefur sýnt okkur.“

Vék hann máli sínu að lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem nú stendur yfir.

„Vænt­ingar til útkomu hennar eru miklar og ákall er á ríki heims að þau sýni auk­inn metnað í lofts­lags­að­gerðum. Einnig má merkja nýjar áherslur í starfi Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar og almennt í nor­rænu sam­starfi. Bjarna­son skýrslan er mik­il­vægt tól í þessu sam­hengi og ég vil að lokum und­ir­strika þýð­ingu hennar fyrir nor­rænt sam­starf.

Við megum þó engan tíma missa,“ sagði Guð­laugur Þór að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nrsession

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár