Þrettán íslenskir lífeyrissjóðir ætla að setja 580 milljarða króna í fjárfestingar í hreinni orku og umhverfisvænum lausnum til ársins 2030. Sjóðirnir hafa skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC) sem var formlega kynnt í morgun á lofslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem fram fer í Glasgow í Skotlandi. CIC mun fylgjast með og mæla hvort þátttakendur í verkefninu standi við yfirlýst markmið og birta niðurstöður sínar árlega.
Sjóðirnir sem taka þátt í verkefninu eru Almenni lífeyrissjóðurinn, Birta lífeyrissjóður, Brú lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gildi-lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður bankamanna, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífsverk, LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar, SL lífeyrissjóður og Stapi lífeyrissjóður. Um er að ræða þrettán af fjórtán stærstu lífeyrissjóðum landsins sem halda samtals á meginþorra þeirra 6.410 milljarða króna sem íslenska lífeyrissjóðakerfið á í hreinni eign um þessar mundir.
[adspot]Með því að skrifa undir viljayfirlýsinguna bætast sjóðirnir í hóp fjölda norrænna lífeyrissjóða sem hafa gefið út sambærilegar yfirlýsingar á síðustu tveimur árum. Í sameiginlegri tilkynningu frá þeim segir að með yfirlýsingunni nú staðfesti íslensku sjóðirnir þrettán vilja til að stórauka grænar fjárfestingar sínar og styðja þannig við markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. „Þar er meðal annars horft til ákvæða Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Sjóðirnir munu meðal annars horfa til verkefna sem nýta jarðvarma en einnig er stefnan að styðja við aukna notkun annarra sjálfbærra orkugjafa með það að markmiði að stuðla að aukinni notkun hreinnar orku í samgöngum og atvinnustarfsemi.“
CIC eru alþjóðleg samtök en stofnaðilar eru danska umhverfis-, orku og veituráðuneytið, The Institutional Investors Group on Climate Change, Insurance & Pension Denmark (samtök 92 tryggingafélaga og lífeyrissjóða í Danmörku) og World Climate Foundation (samtök sem vinna að orkuskiptum og framþróun lágkolefnishagkerfisins). Markmið CIC er að stuðla að aukinni fjárfestingu í hreinni orku og öðrum umhverfislausnum, svo sem nýtingu jarðhita, vindorku, sólarorku, bættrar orkunýtingar í byggingum og bættri tækni við flutning raforku. Árið 2019 fengu þau danska lífeyrissjóði til skuldbinda sig til að fjárfesta fyrir um 6.500 milljarða króna í grænum lausnum fram til ársins 2030. Í tilkynningu íslensku lífeyrissjóðanna segir að í október í fyrra hafi hafist vinna CIC við að fá stofnanafjárfesta, yfirvöld og aðra hagaðila annars staðar á Norðurlöndunum til að skuldbinda sig á svipaðan hátt. „Sú vinna fór af stað eftir að norrænir forsætisráðherrar ályktuðu á vettvangi Norræna ráðherraráðsins að þeir myndu hvetja til slíkra fjárfestinga.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir