Guðlaugur Þór biðst afsökunar á orðalagi í skýrslunni

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefndar, hefur beðist afsök­unar á því að orða­lag í skýrsl­unni „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari“ sé þannig að hægt sé að skilja það sem „árásir eða gagn­rýni á emb­ætt­is­menn og sér­fræð­inga sem komu að málum og sinntu verkum sínum af sam­visku­semi“. Hann boðar einnig að orða­lag skýrsl­unnar verði end­ur­skoðað. „Gild­is­hlaðin orð eða annað sem valdið getur mis­skiln­ingi fjar­lægt þannig að efn­is­leg umræða fari fram,“ segir Guð­laugur Þór í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag. Aldrei hafi verið ætlun meiri­hluta fjár­laga­nefndar að vega að starfs­heiðri ein­stak­linga sem eiga ekki annað skilið en þakkir fyrir sín störf.

Fjöl­margar ásak­anir eru settar fram í skýrsl­unni. Í henni segir að rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur, og sér­stak­lega fjár­mála­ráðu­neytið undir stjórn Stein­gríms J. Sig­fús­son­ar, í sam­starfi við emb­ætt­is­menn og Seðla­banka Íslands, hafi ákveðið að hefja aðför gegn neyð­ar­lög­unum í febr­úar 2009 með það að mark­miði að færa kröfu­höfum föllnu bank­anna betri end­ur­heimt­ir. Í þess­ari aðför var ákveðið að hundsa þau drög að stof­nefna­hags­reikn­ingum nýju bank­anna þriggja sem birt voru á heima­síðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) 14. nóv­em­ber 2008. Í skýrsl­unni er síðan reiknað út að rík­is­sjóður hafi tekið á sig 296 millj­arða króna í áhættu í þágu kröfu­hafa með þessum aðgerð­um.

Í frétta­til­kynn­ingu vegna útkomu skýrsl­unnar sagði að skýrslan taki „af allan vafa um áhættu skatt­greið­enda sem átti sér stað við afhend­ingu bank­anna til kröfu­hafa.[...]Ekki verður önnur ályktun dregin en að samn­inga­gerðin afi að stórum hluta gengið út á að frið­þægja kröfu­haf­ana með því að afhenda þeim eign­ar­hald á bönk­un­um.“

Þeim ásök­unum sem settar eru fram í skýrsl­unni hefur verið ítrekað verið hafnað af þeim ein­stak­lingum sem þær bein­ast að, þeim stofn­unum sem komu að mál­inu og í áliti sem unnið var fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd fyrir rúmu einu og hálfu ári síð­an.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um skýrsl­una í frétta­skýr­ingu á þriðju­dag.

Vill að óháðir sérfræðingar fari yfir málið

Skýrslan er skrifuð í nafni meiri­hluta fjár­laga­nefndar en Guð­laugur Þór og Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, höfðu veg og vanda að gerð hennar. Þau kynntu einnig til­urð hennar á blaða­manna­fundi á mánu­dag. Þar fékkst ekki upp­gefið hver hefði skrifað skýrsl­una né hverjir hefðu komið að gerð hennar. Guð­laugur Þór og Vigdís greindu hins vegar frá því að þau hafi greitt 90 þús­und króna kostnað vegna skýrslu­gerð­ar­innar úr eigin vasa. Það er for­dæma­laust sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá skrif­stofu Alþingis að nefnd­ar­menn geri slíkt.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag segir Guð­laugur Þór að hann telji nauð­syn­legt að óháðir sér­fræð­ingar verði fengnir til að rann­saka allar hliðar á einka­væð­ingu bank­anna,samn­inga stjórn­valda og kröfu­hafa föllnu bank­anna, sam­hliða því að upp­lýst verði hvernig staðið var að skulda­upp­gjöri ein­stak­linga og fyr­ir­tækja í kjöl­far hruns­ins.

„Skýrsla sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar lagði fram [Einaka­væð­ing bank­anna hin síð­ari og fylgi­skjöl] er rök­stuðn­ingur fyrir því að slík rann­sókn fari fram. Aðeins þannig verður málið upp­lýst og tor­tryggni sem fengið hefur að grafa um sig meðal almenn­ings og for­ráða­manna fyr­ir­tækja, eytt.

Umræða um skýrsl­una hefur verið um form hennar en ekki efni. Þetta er miður enda ljóst að mik­il­vægar nýjar upp­lýs­ingar koma fram í skýrsl­unni og ekki síst á 140 blað­síðum með fylgi­skjölum, sem nær öll koma nú fyrir sjónir almenn­ings í fyrsta skipti.

Við höfum fengið ábend­ingar um að orða­lag í skýrsl­unni sé þannig að hægt sé að skilja það sem árásir eða gagn­rýni á emb­ætt­is­menn og sér­fræð­inga sem komu að málum og sinntu verkum sínum af sam­visku­semi. Það var aldrei ætlun meiri­hluta fjár­laga­nefndar að vega að starfs­heiðri ein­stak­linga sem eiga ekki annað skilið en þakkir fyrir sín störf. Það er rétt og skylt að biðj­ast vel­virð­ingar á slíkum mis­tökum. Í þessu ljósi verður orða­lag skýrsl­unnar end­ur­skoðað. Gild­is­hlaðin orð eða annað sem valdið getur mis­skiln­ingi fjar­lægt þannig að efn­is­leg umræða fari fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár