Fimm atriði í aðdraganda forsetakosninga í Frakklandi

Frakkar velja sér nýjan for­seta í kosn­ingum 23. apríl og 7. maí. Hér eru fimm atriði sem gott er að hafa í huga þegar fylgst er með kosn­ing­unum.

Frakkar kjósa sér nýjan forseta í ár. Kosningarnar eru merkilegar fyrir margar sakir, löngu áður en búið er að telja upp úr kjörkössunum.
Frakkar kjósa sér nýjan for­seta í ár. Kosn­ing­arnar eru merki­legar fyrir margar sakir, löngu áður en búið er að telja upp úr kjör­köss­unum. Mynd: EPA

Frakkar ganga að kjör­borð­inu á sunnu­dag­inn og greiða atkvæði í fyrstu umferð for­seta­kosn­ing­anna þar í landi. Aldrei hefur verið svo mjótt á munum milli efstu fram­bjóð­enda; mun­ur­inn milli fjög­urra vin­sæl­ustu fram­bjóð­anda hefur jafn­vel verið innan vik­marka.

[links]Umræðan í Frakk­landi hefur jafn­framt sjaldan verið eins skautuð. Á það hefur verið bent að þessar kosn­ingar, sem áttu fyrst og fremst að fjalla um fram­tíð­ina og stefnu Frakk­lands, hafa svipt hul­unni af djúp­stæðum göllum í frönsku sam­fé­lagi.

Kosn­ing­arnar eru taldar vera afar mik­il­vægar fyrir fram­tíð Frakk­lands enda fjalla þær um grund­vall­ar­hug­myndir sem snerta hinn almenna sam­fé­lags­sátt­mála og alþjóða­sam­starf.

Franska kosn­inga­kerfið er tölu­vert frá­brugðið því íslenska og stjórn­skipan lands­ins ekki eins og við eigum að venj­ast hér, á Norð­ur­lönd­unum, í Bret­landi eða Banda­ríkj­unum.

[adspot]

Alþjóða­mála­stofnun Háskóla Íslands efnir til opins fundar á morgun, föstu­dag­inn 21. apríl, í Lögbergi klukkan 12. Þar munu Phillipe O'Quin, sendi­herra Frakk­lands á Íslandi, og Gérard Lemarquis, fyrr­ver­andi blaða­maður og kenn­ari, ræða um kosn­ing­arnar með við­stöddum.

Hér eru fimm hlutir sem gott er að hafa í huga þegar við lesum fréttir af frönsku kosn­ing­unum.

Tvær umferðir í kosningum

Þeir sem hafa kynnt sér hug­mynd­irnar sem hafa komið fram í kringum umræðu um nýja stjórn­ar­skrá á Íslandi ættu að kann­ast við ein­hverjar þær hug­myndir sem stuðst er við í Frakk­landi. Ein þeirra hug­mynda var að for­seti Íslands yrði kjör­inn í tveimur umferðum eins og í Frakk­landi.

Í for­seta­kosn­ing­unum í Frakk­landi er for­seti kos­inn til fimm ára í tveimur umferðum. Ef einn fram­bjóð­andi nær ekki meiri­hluta atkvæða í fyrri umferð­inni þá ræður fyrri umferðin því hvaða tveir fram­bjóð­endur eru vin­sæl­astir og fá að vera í kjöri í seinni umferð for­seta­vals­ins. Þetta er gert til þess að kjör­inn for­seti sé val­inn af meiri­hluta þjóð­ar­innar.

Gallinn við að kjósa for­seta í tveimur umferðum getur verið að fram­bjóð­endur reyna að höfða til breið­ari hóps til þess að kjós­endur ann­arra fram­bjóð­enda úti­loki þá ekki í seinni umferð­inni. Svo í stað þess að stíga fram fyrir skjöldu með sín stefnu­mál og áherslur, gætu fram­bjóð­endur reynt að hlífa sér þar til á hólm­inn er komið.

Fyrri umferð kosn­ing­anna fer fram 23. apríl og seinni umferðin fer fram 7. maí.

Forsetaþingræði

Þegar fjallað er um mis­mun­andi form stjórn­skip­unar lýð­ræð­is­ríkja er yfir­leitt fjallað um þrjú meg­in­form. Það eru for­setaræði, þing­ræði og for­seta­þing­ræði. Í Frakk­landi ríkir nefni­lega for­seta­þing­ræði sem er eins­konar blanda af hinu tvennu, þing­ræði og for­setaræði.

Hér á Íslandi ríkir þing­ræði því rík­is­stjórnin situr í umboði þings­ins og þingið hefur úrslita­vald. Í þing­ræð­inu er skilin milli fram­kvæmda­valds og lög­gjaf­ar­valds­ins nokkuð óskýr og þjóð­höfð­ing­inn (for­set­inn) er nærri valda­laus og gegnir aðal­lega tákn­rænu hlut­verki.

Í for­setaræð­inu er þrí­skipt­ing rík­is­valds­ins yfir­leitt nokkuð skýr og for­ysta rík­is­ins er í höndum for­seta sem er jafn­framt þjóð­höfð­ingi. For­set­inn skipar rík­is­stjórn og fer með fram­kvæmda­vald. Banda­ríkin eru nær­tæk­asta dæmið um for­setaræði.

For­seta­þing­ræðið er svo blanda af ofan­greindum stjórn­skip­un­ar­formum. Í Frakk­landi er þing­ræði við lýði en fram­kvæmda­valdið er tví­skipt milli kjör­ins for­seta og rík­is­stjórnar sem situr í umboði þings­ins. For­set­inn er jafn­framt valda­meiri en þekk­ist í þing­ræð­is­ríkjum en hefur minni völd en for­seti í þing­ræði.

Fimm frambjóðendur

Fimm full­trúar fimm stjórn­mála­flokka sem sækj­ast eftir for­seta­emb­ætt­inu hafa ítrekað mælst best í skoð­ana­könn­unum. Jafnvel þó það hafi staðið honum til boða þá ákvað Francois Hollande, sitj­andi for­seti, að sækj­ast ekki eftir end­ur­kjöri. Þetta er í fyrsta sinn í hinu svo­kall­aða fimmta lýð­veldi (sem stofnað var árið 1958) að sitj­andi for­seti sæk­ist ekki eftir end­ur­kjöri. Hollande ákvað þetta í byrjun des­em­ber þegar hann hafði ítrekað mælst vera óvin­sæl­asti for­seti í manna minnum.

Þeir fimm full­trúar sem mæl­ast best í könn­unum eru eft­ir­far­andi

Ellefu fram­bjóð­endur eru í kjöri. Auk þess­ara fimm eru Nicolas Dupont-Aignan, Nathalie Arthaud, Phillipe Poutou, Jacques Cheminade, Jean Lassalle og François Assen­lineau í kjöri.

Emanuel Macron og Marine Le Pen hafa und­an­farnar vikur mælst með mest fylgi fram­bjóð­and­anna og eru lík­leg­ust til þess að verða í kjöri í seinni umferð kosn­ing­anna. Það hefur hins vegar dregið saman með þeim og Francois Fillon og Jean-Luc Mélenchon síð­ustu daga, ef marka má skoð­ana­kann­anir.

Fulltrúar valdaflokka ekki á toppnum

Það er óvana­legt þegar svo stutt er til kosn­inga í Frakk­landi að í það minnsta annar full­trúi hinna hefð­bundnu valda­flokka í Frakk­landi skuli ekki vera meðal tveggja vin­sæl­ustu fram­bjóð­enda. Hvorki Fillon, full­trúi Íhalds­flokks­ins, né Hamon, full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, hafa mælst í efstu sæt­unum á síðan í febr­úar.

Það má kannski benda á það hér að jafn­vel þó Hamon sé tal­inn upp hér að ofan með þeim fimm sem best mæl­ast í könn­unum þá á hann varla séns á að kom­ast í næstu umferð. Fylgi við þennan sam­flokks­mann sitj­andi for­seta er nú um sjö pró­sent.

Frétta­skýrendur telja að inn­an­flokksá­tök og próf­kjör hafi veikt stöðu þess­ara fram­bjóð­enda. Hamon var val­inn í próf­kjöri af flokki sínum í stað þess að sós­í­alistar myndu tefla fram sitj­andi (og óvin­sælum) for­seta en Fillon þurfti að etja kappi við gamlan sjálf­hverfan draug Nicolas Sarkozy að nafni. Draugnum var hins vegar hafnað með afger­andi hætti, en þá hafði hann náð að sá ill­gresi innan flokks­ins sem smit­aði svo út frá sér.

Skandalar Fillon hafa svo ekki bætt úr skák en hann sjálfur hefur sagt þetta vera til­raun póli­tískra and­stæð­inga til þess að koma höggi á sig.

Þjóðernissinnaður íhaldsvængur fær byr

Þjóð­fylk­ingin hefur gengið í end­ur­nýjun líf­daga síðan Marine Le Pen tók við af föður sínum Jean-Marie árið 2011. Orðræðan hefur breyst þannig að hún höfðar betur til almenn­ings í Frakk­landi þó inni­hald stefn­unnar sé það sama.

Mikið hefur verið fjallað um upp­gang Þjóð­fylk­ing­ar­innar í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna undir for­ystu Marine Le Pen. Hún hefur verið nefnd sem þriðji full­trúi hinnar þjóð­ern­issinn­uðu popúlista­bylgju á Vest­ur­löndum sem þegar hefur rekið á strandir Banda­ríkj­anna og Bret­lands.

Marine Le Pen hefur heitið því að boða til atkvæða­greiðslu um áfram­hald­andi þátt­töku Frakk­lands í Evr­ópu­sam­band­inu og knýja þannig á um „Frexit“ í anda hins breska „Brexit“.

Hún hefur einnig viðrað skoð­anir sínar á útlend­ingum og vill loka landa­mærum Frakk­lands fyrir flótta­mönnum; þá sér­stak­lega þeim sem aðhyll­ast Islam.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár