Allt er í heiminum hverfult

Marine Le Pen, sem skoð­ana­kann­anir mæla ítrekað sem vin­sælasta for­seta­fram­bjóð­and­ann fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Frakk­landi, er sökuð um að svíkja út fé frá Evr­ópu­sam­band­inu.

Marine Le Pen, frambjóðandi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi (f. Front Nationale).
Marine Le Pen, fram­bjóð­andi Þjóð­fylk­ing­ar­innar í Frakk­landi (f. Front Nationale). Mynd: EPA

Marine Le Pen er enn og aftur efst allra fram­bjóð­enda í skoð­ana­könn­unum fyrir fyrri umferð for­seta­kosn­ing­anna í Frakk­landi sem fram fara 23. apríl næst­kom­andi. Á fimmtu­dag birt­ust nýjar kann­anir sem sýna að hún er langefst með 26 pró­sent atkvæða ef kosið væri nú og næsta örugg um að kom­ast í aðra umferð­ina 7. maí. Þar á eftir kemur fyrrum við­skipta­ráð­herr­ann, Emmanuel Macron með 23 pró­sent og svo fram­bjóð­andi Repu­blík­ana, François Fillon með aðeins 18,5 pró­sent og hefur tapað sex pró­sentum síðan að launa­greiðslur frá Þjóð­þing­inu til eig­in­konu hans og barna komust í hámæli.

En Adam var ekki lengi í para­dís eða öllu heldur Eva í þessu til­viki. Marine Le Pen hefur sam­kvæmt skjölum frá eft­ir­lits­nefnd Evr­ópu­þings­ins (OLAF), við­ur­kennt að hafa ráðið líf­vörð sinn sem aðstoð­ar­mann á Evr­ópu­þing­inu án þess að hann leysti þar af höndum nokkra vinnu. Einnig er hún sökuð um að hafa gert samn­ing við Catherine Griset sem aðstoð­ar­mann í Brussel en hún var í raun per­sónu­legur aðstoð­ar­maður Le Pen. Griset vann á aðal­skrif­stofu flokks­ins frá 2010 og kom aldrei til Brussel sem er þó skil­yrði fyrir því að þessi laun séu greidd. Þetta þýðir í raun að Marine Le Pen hafi gert fals­aða starfs­samn­inga við starfs­fólk sitt.

Líf­vörð­ur­inn Thierry Légier fékk frá októ­ber til des­em­ber 2011 fjör­tíu og eitt þús­und og fimm­hund­ruð evrur eða litar sjö og hálfa milljón íslenskra króna í laun. Á dög­unum hafði verið talað um að eft­ir­lits­nefndin hefði krafið Le Pen um að end­ur­greiða 330.000 evrur, um fjör­tíu milljón íslenskar krónur, til Evr­ópu­þings­ins. Á þeim tíma­punkti komst það hins vegar ekki í hámæli vegna þess hversu margar mín­útur og dálksenti­metra mál Fillons tóku í fjöl­miðlum og, hugs­an­lega, vegna þess að Le Pen var sökuð um að svíkja út fjár­muni frá Evr­ópu­sam­band­inu en ekki franska þing­inu sem virð­ist hneyksla minna.

Í gær­morgun var hins vegar tónn­inn aðeins annar og í fyrsta skiptið í langan tíma heyrð­ist í Le Pen í morg­un­fréttum útvarps sem og á sjón­varps­stöðvum þar sem hún fór í bull­andi vörn og þurfti að verja gjörðir sínar í stað þess að stjórna umræð­unni. Le Pen er van­ari því að vera í sífelldri sókn og ráð­ast gegn stjórn­mála­mönnum jafnt til hægri sem vinstri og kallar þá alla óhæfa og spillta.

Þetta eru ekki einu málin í kringum Le Pen-fjöl­skyld­una sem er for­rík. Jean-Marie Le Pen, faðir Marine, sem á einnig sæti á Evr­ópu­þing­inu og var áður for­seti Þjóð­fylk­ing­ar­innar og for­seta­fram­bjóð­andi áður en dóttir hans rak hann úr flokknum, hefur einnig verið sak­aður um mis­notkun á fé Evr­ópu­þings­ins. Jafn­framt hafa þau feðgin bæði verið sökuð um að van­telja fast­eignir og að svíkj­ast undan skatti. Það sem er ótrú­leg­ast í mál­inu er að Marine Le Pen, sem telur Evr­ópu­sam­bandið vera ástæðu allra hörm­unga Frakk­lands og þó víðar væri leitað, skuli mis­nota aðstöðu sína til að svíkja út fé, sama stjórn­mála­kona og vill halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um stöðu Frakk­lands innan sam­bands­ins og vill fara ganga úr sam­starf­inu um evr­una.

Einhvern vegin hafa mál Le Pen-fjöl­skyld­unnar aldrei náð að kom­ast almenni­lega í umræð­una en nú gæti orðið breyt­ing þar á. Spurn­ingin er hvort að Marine Le Pen verði næsti fram­bjóð­and­inn sem fellur í skoð­ana­könn­unum vegna spill­ing­ar­mála líkt og François Fillon eða hvort hún nái enn að skauta yfir þau. For­seta­kosn­ing­arnar í Frakk­landi gætu því verið opn­ari en margur hefur haldið hingað til þar sem að Marine Le Pen hefur lengi talið sig örugga um að kom­ast í aðra umferð.

Pistill­inn birt­ist einnig á vef­svæði Berg­þórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár