Hver verður næsti forseti Frakklands?

Fyrri umferð for­seta­kosn­inga í Frakk­landi er 23. apríl. Ef eng­inn fær meiri­hluta­kosn­ingu er kosið aftur 7. maí þar sem tveir efstu fram­bjóð­end­urnir takast á. Spennan er gríð­ar­leg.

Frönsk stjórn­mál eru upp­námi þegar rétt þrír mán­uðir eru til for­seta­kosn­inga. Margir eru log­andi hræddir við vax­andi fylgi hægri-öfga­flokks­ins, Þjóð­fylk­ing­ar­innar, með Marine Le Pen í broddi fylk­ingar. Hún heitir því að Frakk­land yfir­gefi Evr­ópu­sam­bandið og Evruna kom­ist hún til valda. Vin­sældir hennar hafa eflst jafnt og þétt á meðan helstu and­stæð­ingar hennar hafa verið að veikj­ast. 

Fyrri umferð kosn­ing­anna er 23. apríl. Ef eng­inn fær meiri­hluta­kosn­ingu er kosið aftur 7. maí þar sem tveir efstu fram­bjóð­end­urnir takast á. Eins og staðan er núna er lík­legt að það verði Marine Le Pen og íhalds­mað­ur­inn François Fillon. Það er hægri bylgja í Frakk­landi eftir vand­ræða­gang vinstri manna og miklar óvin­sældir for­set­ans François Hollande. En skoðum hvað er í boði – hér er fólkið sem berst um for­seta­stól­inn:

François Fillon

Það þótti nokkuð óvænt þegar Fillon var val­inn fram­bjóð­andi Lýð­veld­is­flokks­ins síð­ast lið­inn nóv­em­ber og skaut sjálfum Nicolas Sarkozy, fyrrum for­seta Frakk­lands, ref fyrir rass. Með þunga íhalds­sama, hægri stefnu og hár­beitta gagn­rýni á sós­í­alist­ann Hollande, óvin­sælasta for­seta sög­unnar, hefur þessi þaul­reyndi þing­maður og fyrrum ráð­herra, en kannski frekar þurri maður, skot­ist upp á stjörnu­him­in­inn og verið vin­sæl­asti fram­bjóð­and­inn í skoð­ana­könn­unum und­an­farna mán­uði. Hann hefur sjálf­sagt talið sig vera kom­inn með annan fót­inn inn fyrir frönsku for­seta­höll­ina – en þá dró skyndi­lega ský fyrir sólu.

Í byrjun árs birti háðsá­deilu­blaðið Le Canard Enchaîné frétt um að eig­in­kona hans, Penelope Fillon, hefði fengið rúm­lega 60 millj­ónir króna fyrir starf sem aðstoð­ar­kona eig­in­manns síns í þing­inu. Starf sem eng­inn virð­ist raunar kann­ast við. Fillon-hjónin hafa marg­sinnis sagt að Penelope sé heið­ar­leg og heima­vinn­andi hús­móðir og ekki úti­vinn­andi. Svo þetta kom á óvart. And­stæð­ingar hans hrópa: póli­tískt hneyksli og spill­ing!

Það lítur þannig út að François hafi búið til þetta starf til mála­mynda fyrir eig­in­konu sína. Hann hefur verið kall­aður til yfir­heyrslu hjá lög­reglu vegna gruns um stjórn­sýslu­brot. Hann neitar öllum ásök­unum og verst af öllum mætti. Segir eig­in­konu sína hafa verið sinn helsti aðstoð­ar­maður í gegnum árin; hún hafi unnið mikið og fórn­fúst starf og sjálf­sagt að hún fái greitt fyrir það. Hann talar auk þess um kven­fyr­ir­litn­ingu og lyga­þvætt­ing. En ef til ákæru kæmi er hann úti sem fram­bjóð­andi Lýð­veld­is­flokks­ins. Þetta mál hefur þá þegar stór­skaðað hann; flokks­fé­lag­arnir eru í óða önn að gera upp við sig hvort þeir eigi að skipti honum út – en þá fyrir hverjum? Tíminn er naumur. Þetta mál geti gjör­breytt stöð­unni í kosn­inga­bar­átt­unni.

Emmanuel Macron

Undra­barnið í frönskum stjórn­málum; ofur­heil­inn Emannuel Macron er 39 ára gam­all, frama­gjarn, klókur og hug­rakkur stjórn­mála­maður. Hann er Svarti Pétur í þessum slag; maður hinna mörgu and­lita. Klauf sig frá sós­í­alistum og hætti sem við­skipta­ráð­herra á kjör­tíma­bil­inu og ákvað að fara sínar eigin leiðir, stofn­aði hreyf­ing­una En Marche! eða Áfram Gakk! Hann var einn helsti aðstoð­ar­maður og náinn sam­starfs­maður for­set­ans. Þetta þótti því djörf ákvörðun.

Fylgi hans hefur farið vax­andi; hann kemur vel fyrir, snjall penni og ræðu­maður. Hann seg­ist hvorki vera til vinstri né hægri, það séu úreltar hug­myndir í stjórn­málum. En vinstri menn segja hann dæmi­gerðan tæknikrata og fyr­ir­gefa honum seint fyrir að vera aðal höf­undur nýrrar, umdeildrar vinnu­lög­gjafar sem var keyrð í gegn með miklum látum. Verka­lýðs­arm­ur­inn í Sós­í­alista­flokknum upp­nefnir hann Brútus og telur hann tæki­fær­is­sinna og furðu­fugl. Hann á hins vegar mögu­leika á að kom­ast áfram í aðra umferð og þannig gætu bæði hægri og vinstri menn sæst á að kjósa hann til að halda Front National frá völdum. Emmanuel Macron yrði þá yngsti for­set­inn í sögu lýð­veld­is­ins.

Marine Le Pen

Eftir vand­ræða­gang sós­í­alista og ófarir Fillon síð­ast liðnu daga vex for­maður Þjóð­fylk­ing­ar­innar eins og púk­inn á fjós­bit­anum. Hún er Donald Trump Frakk­lands; hægri öfga­kona sem talar fyrir rót­tækum breyt­ingum, hert­ari stefnu gegn inn­flytj­endum og múslimum. Hún hefur stillt upp for­seta­kosn­ingum sem val um Evr­ópu­sam­bandið. Hún vill slíta sam­starf­inu og henda evr­unni. Nú sé annað Brexit í upp­sigl­ingu – eða Frexit. Komist hún til valda er því fram­tíð Evr­ópu­sam­bands­ins í algjöru upp­námi.

Hins vegar er staða hennar í flokknum síður en svo trygg. Þar eru erjur og fjöl­skyldu­deilur sem helst minna á sápu­óp­eru. Ber þar hæst dramat­ískar deilur hennar við föður sinn Jean Marie Le Pen. Hann er stofn­andi og heið­urs­for­seti Þjóð­fylk­ing­ar­innar, þrátt fyrir að dóttir hans hafi rekið hann úr flokknum 2015 fyrir enda­lausar upp­á­komur og öfga­full ummæli um gyð­inga og múslima. Hún þykir hóf­sam­ari en hann og hefur þannig náð til breið­ari hóps. Jean Marie Le Pen komst í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna 2002, gegn Jacques Chirac. Þá flykkt­ust vinstri menn og kusu hinn óvin­sæla hægri mann Chirac til þess að halda Le Pen frá völdum.

Eftir að Marine Le Pen rak kall­inn úr flokknum hefur hann unnið gegn dóttur sinni. Gagnrýnt hana harð­lega og lagt ríka áherslu á að hinn rétti og sanni arf­taki hans í flokknum sé litla frænkan Marion Maréchal-Le Pen, rétt rúm­lega tví­tugur þing­maður Þjóð­fylk­ing­ar­innar, sem er mun öfga­fyllri en stóra frænkan sem leiðir flokk­inn.

[adspot]

En Marine Le Pen er for­ing­inn og þekktasta and­lit hægri öfga­flokka í Evrópu. Með 27% fylgi í skoð­ana­könn­unum, sem hefur auk­ist í kjöl­far hryðju­verka. Menn ótt­ast að önnur árás gæti gjör­breytt stöð­unni og hrein­lega fleytt henni í for­seta­höll­ina. Það myndi þýða nýja (og sumir segja ógn­væn­lega) tíma í frönsku þjóð­lífi og jafn­vel Evrópu.

Benoît Hamon

Það kom öllum að óvörum þegar Hamon bar sigur úr býtum í for­vali Sós­í­alista­flokks­ins 29. jan­úar síð­ast lið­inn. Hann er fram­bjóð­andi vinstri manna í for­seta­kosn­ing­unum. Hamon hætti sem mennta­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn­inni fyrir tveimur árum og var þar með gerður útlægur af for­ingj­unum Francois Hollande og Manuel Valls. Nú hefur verið gerð hall­ar­bylt­ing, hann tekið yfir og hent þeim út. Þetta er hálf­gerð ævin­týra­saga í póli­tík­inni. Það getur reynst árang­urs­ríkt þegar menn þora að reiða til höggs, taka áhættu í stjórn­málum. Hamon boðar nýja tíma, nýjar aðferðir og er væg­ast sagt mjög rót­tækur sós­í­alisti.

Sér­fræð­ingar spyrja: Mun fólk almennt kjósa þennan mann? Loksins alvöru sós­í­alisti sem stendur með launa­fólki segja sumir, en brjál­æð­ingur að mati ann­ara. Hann er stundum kall­aður „Bernie Sanders Frakk­lands“. Vill fara aftur í ræt­urnar og talar fyrir hreinni stéttapóli­tík. 49 ára gam­all, vill lög­leiða kanna­bis, skatt­leggja sér­stak­lega fyr­ir­tæki með vit­vélar, inn­leiða borg­ara­laun sem væri þá 750 evrur á mán­uði eða um 100.000 krónur, óháð tekjum. Svo vill hann stytta vinnu­vik­una niður í 32 stundir. Hann er lík­legur til alls og það var í raun ótrú­legt að sjá hann leggja af velli í for­val­inu hinn gríð­ar­sterka sjórn­mála­mann, Manuel Valls – fyrrum for­sæt­is­ráð­herra og um tíma vin­sæl­asti stjórn­mála­maður Frakk­lands.

Sós­í­alistar hafa verið í mik­illi krísu – fylgi þeirra hefur hrunið og hreyf­ingin er marg­klofin, eins og gerst hefur víða í Evrópu. Það er ólga í Frakk­landi; atvinnu­leysi er mikið, ójöfn­uður fer vax­andi og það er mikil gremja víða. Hamon segir að nú sé tími til þess að fara aftur í ræt­urnar og boðar alvöru sós­í­al­isma. Þegar Hamon var mennta­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Hollande var hann afar og gagn­rýn­inn og mót­mælti harð­lega stefnu for­set­ans, þótti hún of hægri sinnuð og gekk úr sam­starf­inu.

Þegar for­valið hófst, fyrir tveimur mán­uðum, þótti Hamon ekki lík­legur til afreka. Ungur, rót­tækur, reynslu­laus. Enginn af topp­unum í flokknum studdi hann. En svo tók hann þetta. Nú hafa margir sós­í­alistar yfir­gefið flokk­inn og fært sig yfir til Þjóð­fylk­ing­ar­innar; yfir í öfga hægrið sem er ráð­gáta fyrir marga stjórn­mála­heim­spek­inga. En Hamon segir að sós­í­alista­flokk­ur­inn franski hafi sjálfur yfir­gefið verka­lýð­inn og nú sé kom­inn tími til að tala aftur við og vinna fyrir almenn­ing. Hann seg­ist ætla nútíma­væða Frakk­land þar sem miklar breyt­ingar eru fram undan; staf­ræna bylt­ingin sé rétt að hefj­ast og róbótar eða vit­vélar eigi eftir að gjör­breyta atvinnu­líf­inu. Margir eigi eftir að missa vinn­una. Þessar breyt­ingar kalli á nýja hugsun. Ef ekk­ert verði gert og það strax taki við hryll­ingur. Frakk­land breyt­ist í þjóð­fé­lag sem helst má finna lík­ingu við í vís­inda­skáld­sögum á borð við 1984.

Hins vegar gæti stefna Hamon haft hrylli­legar afleið­ingar fyrir franskt efna­hags­líf og end­an­lega farið með rík­is­sjóð sem stendur höllum fæti. Eins og staðan er núna er hann ekki lík­legur og skorar ekki hátt í skoð­ana­könn­unum. En fréttir af nýjum for­seta Banda­ríkj­anna eru þá þegar farnar að hreyfa við kjós­endum í Frakk­landi og margir spá því að rót­tæk vinstri stefna eigi jafn­vel eftir að höfða til fólks í auknum mæli í kom­andi kosn­ingum.

Eins og staðan er núna getur því allt gerst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár