Starfsfólki í sendiráðum fækkað mikið og kostnaður dregist saman um 30%

Kostn­aður við rekstur sendi­skrif­stofa Íslands í öðrum ríkjum dróst saman um 30 pró­sent frá 2007 til 2013, sé miðað við þróun gengis og verð­bólgu í þessum ríkjum. 22 sendi­skrif­stofur eru starf­ræktar á vegum Íslands í 18 löndum. Þetta kemur allt fram í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar á sendi­skrif­stofum Íslands í útlöndum, sem var unnin fyrir Alþingi og birt í dag.

Af þessum 22 sendi­skrif­stofum voru 14 starf­ræktar þannig í fyrra að þær voru undir við­miðum um lág­marks­fjölda útsendra starfs­manna. Formlegt við­mið sem Norð­ur­löndin hafa sett sér í þessum málum er að minnst þrír útsendir starfs­menn séu á hverjum stað, það er sendi­herra, vara­maður og rit­ari eða aðstoð­ar­maður, og utan­rík­is­ráðu­neytið seg­ist í svörum sínum að það sé við­mið sem einnig sé starfað eftir í ráðu­neyt­inu. Rík­is­end­ur­skoðun hvetur þó til þess að sett verði form­legt við­mið um mönnun.

Kostn­aður vegna hús­næðis sendi­skrif­stofa nam 860 millj­ónum króna árið 2013, eða um fjórð­ungi af rekstr­ar­kostn­aði þess árs. Rík­is­end­ur­skoðun bendir á það að fast­eigna­við­skipti skekki rekstr­ar­nið­ur­stöðu þar sem kaup eru gjald­færð í bók­haldi en sala ekki tekju­færð þar, heldur renna tekj­urnar beint í rík­is­sjóð. Rík­is­end­ur­skoðun hvetur því til þess að ráðu­neytið óski eftir sér­stökum fjár­laga­lið fyrir fast­eigna­við­skipti til að auka gegn­sæi og fá skýr­ari mynd af eig­in­legum rekstri.

Í skýrsl­unni kemur líka fram að laun og launa­tengd gjöld námu 1,6 millj­arði króna árið 2013, eða 52% af rekstr­ar­kostn­aði. Það ár voru starfs­menn á sendi­skrif­stofum 121 tals­ins en árið 2014 voru þeir orðnir 108. Af þessum 108 voru 48 sendir út af hálfu ráðu­neyt­is­ins en 60 voru ráðnir á hverjum stað. Útsendu starfs­fólki fækk­aði um fjórð­ung milli áranna 2007 og 2014, og stað­ar­ráðnu starfs­fólki um 13 pró­sent.

Þurfa að vinna markvisst að kynjajafnrétti


Þá vekur Rík­is­end­ur­skoðun einnig athygli á því að sendi­herrar og sendi­full­trúar hafi und­an­farin tíu ár verið nær ein­göngu karlar, en í tveimur neðri flokkum diplómat­ískra stöðu­heita, sendi­ráðu­nauta og sendi­ráðs­rit­ara, hafi kynja­hlut­föll verið jafn­ari. Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að karlar hafi verið í miklum meiri­hluta nýráð­inna háskóla­mennt­aðra starfs­manna fyrir 1997, og því séu þeir í meiri­hluta eldri og reynslu­meiri starfs­manna. Þetta muni hins vegar jafn­ast mikið á næstu árum, þar sem að frá 1997 hafi álíka margir karlar og konur verið ráðin. Rík­is­end­ur­skoðun hvetur ráðu­neytið til þess að beita sér sér­stak­lega til að stuðla að því að störf flokk­ist ekki í sér­stök kvenna- eða karla­störf.

Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, segir í frétt um skýrsl­una á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að hún sé í öllum aðal­at­riðum jákvæð og stað­festi að sendi­skrif­stofur Íslands séu vel rekntar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár