Sögðu Sigmund Davíð hafa yfirgefið þingsal í miðjum umræðum til að fá sér köku

Þingmenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna brugð­ust reiðir við þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra yfir­gaf þingsal­inn í dag á meðan að fyr­ir­spurn sem beint var til hans var til umræðu. Sögðu þing­menn­irnir að for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði farið út úr salnum til að fá sér köku og sök­uðu hann um að sýna sam­þing­mönnum sínum óvirð­ingu.

Verið var að ræða vernd afhjúpenda og fyr­ir­spyrj­andi var Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, þegar Sig­mundur Davíð á að hafa yfir­gefið sal­inn. Næst var rætt um fund­ar­stjórn for­seta og þar steig Svandís Svav­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna í pontu. Svandís sagði: „ Ég verð að segja það virðu­legur for­seti að ég held að ég hafi aldrei séð það ger­ast að hæst­virtur þing­maður eigi orða­stað við hæst­virt­ann ráð­herra sem að áður en hann svarar hæst­virtum þing­manni í síð­ari spurn­ingu undir slíkum lið, þá fer ráð­herr­ann út úr þing­sal. Virðu­legi for­seti, var hann að fara til þess að fara á fund? Var hann að fara að tala við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn eða Sam­ein­uðu þjóð­irnar eða hvað?

Hann var að fara að fá sér köku, virðu­legi for­seti. Ég verð bara að segja það að mér finnst þetta með algjörum ólík­indum. Ég spyr for­seta hvort þetta geti talist til sóma í þing­inu?“

Í kjöl­far hennar fylgdu nokkrir þing­menn, meðal ann­ars Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Róbert Marshall, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, og tóku undir mál­flutn­ing Svan­dísar. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, kvaddi sér hljóðs og sagð­ist hafa talið að hann væri hættur að verða hissa yfir fram­komu for­sæt­is­ráð­herr­ans í þing­inu, en í þetta skiptið hafi hann orðið hissa.

Hægt er að hlusta á upp­tökur af ræðum þing­mann­anna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár