Óttinn við frekari vandamál í Kína heldur vöxtum niðri í Bandaríkjunum

Seðla­banki Banda­ríkj­anna ákvað í gær að halda vöxtum við núllið áfram, eins og þeir hafa verið frá því í des­em­ber 2008. Margir höfðu búist við því að seðla­bank­inn hæfi vaxta­hækk­un­ar­ferli enda hafði Janet Yellen, seðla­banka­stjóri, gefið það út í byrjun árs­ins að vextir gætu farið að hækka í kringum „mitt ár“. Síðan hefur nokkur spenna byggst upp enda þykir ákvörð­unin um að hækka vexti vera við­ur­kenn­ing á því að banda­ríska hag­kerfið sé form­lega komið í gegnum öldu­dal, og að heims­bú­skap­ur­inn búi við nægi­legt jafn­vægi svo að þessi stærsta mynt heims­ins séu bundin við hærri vexti.

Þrýstingur um að fara varlega


Það sem kemur í veg fyrir að vextir séu hækk­aðir eru ekki atburðir í Banda­ríkj­unum, heldur á öðrum mörk­uðum. Áhyggjur vegna minnk­andi eft­ir­spurnar, verð­lækk­unar á hrá­vöru­mörk­uðum og óróa í Kína eru frekar ástæðan fyrir því að seðla­bank­inn hikar nú við að hækka vext­ina. Í rök­stuðn­ingi fyrir ákvörð­un­inni segir orð­rétt að gangur efna­hags­mála í heims­bú­skapnum sé lík­legur til að „þrýsta á verð­bólgu niður á við“, frekar en hitt. Því sé mik­il­vægt að stíga var­lega til jarðar, þar sem verð­bólga er nú 0,2 pró­sent. Vaxta­hækkun nú gæti þrýst verð­bólgu í verð­hjöðnun, sem seðla­bank­inn vill forð­ast en verð­bólgu­mark­miðið er tvö pró­sent.

Fed lea­ves inter­est rates unchanged http://t.co/QOnKfoo0Bo pic.twitter.com/7v2iGi4wFN


— NYT Business (@nytimesbusiness) Sept­em­ber 17, 2015

Nýjustu hag­tölur í Banda­ríkj­unum hafa sýnt mikil bata­merki og hefur atvinnu­leysi meðal ann­ars náð þeim lægðum sem það var í þegar best var fyrir hrunið á fjár­mála­mörk­uðum 2007 til 2009. Það mælist nú 5,1 pró­sent og hefur nýjum störfum fjölgað hratt und­an­farin miss­eri, eða um að með­alti 230 þús­und í mán­uði. Hag­vaxt­ar­spáin gerir ráð fyrir tvö til pró­sent hag­vexti á þessu ári. Nei­kvæð­ustu atriðin í hag­kerf­inu snú að lang­tíma­at­vinnu­leysi sem hefur fest sig meira í sessi en dæmi eru um á síð­ustu þrjá­tíu árum. Um 10,3 pró­sent af þeim sem eru án atvinnu eru hættir að leita að vinnu vegna þess að þeir telja ekki lík­legt að þeir fái vinnu og þeir hafa jafn­framt verið án vinnu í meira en sex mán­uði.

Horfa út fyrir landsteinana


Eins og staða mála er nú er Seðla­banki Banda­ríkj­anna frekar með augun á öðrum mörk­uðum en þeim sem er heima fyrir. Vegna þess hve banda­ríski mark­að­ur­inn er áhrifa­mik­ill á heims­vísu, ekki síst þar sem Banda­ríkja­dalur er stærsta mynt heims­ins og vara­sjóður þjóð­ríkja að miklu leyti bund­inn í þess­ari mynt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár