Lögreglan vanrækir lögbundin jafnréttisverkefni

„Þú breytir ekki við­horfi í 85 pró­senta karla­menn­ingu, það er bara ekki hægt því þeir sem eru á annarri skoðun, þeir bara eru undir,“ segir Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Greina má aðgerð­ar­leysi og upp­gjaf­ar­tón í jafn­rétt­is­málum meðal lyk­il­starfs­manna sam­kvæmt nýrri rann­sókn.

Vildi efla stöðu kvenna
Vildi efla stöðu kvenna Sigríður Björk var skipuð lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2014 og hefur ítrekað lýst vilja til að efla stöðu kvenna innan lög­regl­unnar og bretta upp ermarnar í jafn­rétt­is­málum. Mynd: Pressphotos.biz

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki sett sér jafn­rétt­is­á­ætlun og aðgerða­bundna fram­kvæmda­á­ætlun í sam­ræmi við ákvæði jafn­rétt­islaga og ábend­ingar Jafn­rétt­is­stofu. Þá hefur gerð áhættu­mats og heilsu­vernd­ar­á­ætl­unar, sam­kvæmt reglu­gerð um aðgerðir gegn ein­elti og kyn­ferð­is­legri áreitni á vinnu­stöðum, ekki kom­ist til fram­kvæmda innan emb­ætt­is­ins. Þar hefur heldur ekki tíðkast að eyrna­merkja fjár­magn til jafn­rétt­is­vinnu.

Þetta kemur fram í grein Gyðu Mar­grétar Pét­urs­dóttur, dós­ents í kynja­fræði, og Krist­ínar Önnu Hjálm­ars­dóttur kynja­fræð­ings sem birt­ist í nýút­komnu vor­hefti tíma­rits­ins Stjórn­mál og stjórn­sýsla. Þar er fjallað um nið­ur­stöður aðgerða­rann­sóknar sem fram­kvæmd var hjá lög­reglu­emb­ætt­inu. 

Fram kemur að greina megi ráða­leysi og upp­gjöf meðal lyk­il­starfs­fólks lög­reglu í jafn­rétt­is­málum og haft er eftir Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra að það sé „ekki hægt“ að breyta við­horfum til kyn­ferð­is­legrar áreitni innan lög­regl­unnar: „Þú breytir ekki við­horfi í 85% karla­menn­ingu, það er bara ekki hægt því þeir sem eru á annarri skoðun, þeir bara eru undir.“  

Lögbundin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár