Ábyrgð þeirra mikil sem daðra við fordóma

Þing­maður Pírata segir að sögu­lega séð hafi ákveðin póli­tísk öfl beislað for­dóma­fulla umræðu sér í vil með slæmum og oft hörmu­legum afleið­ingum. Mikil sé því ábyrgð þeirra sem daðra við slíka for­dóma – jafn­vel þeirra sem meina vel og daðra óvart við þá.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Ef fólk skilur ekki mik­il­vægi þess að hafa til­lits­semi að leið­ar­ljósi í umræðu um inn­flytj­enda­mál þá liggur vand­inn þar; í skiln­ings­leysi á afleið­ingum for­dóma og óvand­aðrar umræðu gagn­vart hópum sem geta ekki svarað fyrir sig.“

Þetta sagði þing­maður Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í síð­ustu viku. Miklar umræður spruttu upp í kringum frum­varp Ásmundar Ein­ars Daða­sonar félags- og barna­mála­ráð­herra um breyt­ingu á lögum um mál­efni inn­flytj­enda en Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­flokks­for­maður Pírata, gagn­rýndi þing­menn Mið­flokks­ins harð­lega fyrir það hvernig orð­ræðu þeir við­hefðu um útlend­inga­mál hér á landi. Hann sagði hana meðal ann­ars líkj­ast for­dóma­fullri orð­ræðu um sam­kyn­hneigða á tíunda ára­tugi síð­ustu aldar og gyð­inga­hat­ur.

Björn Leví sagði í sinni ræðu að hann ætl­aði ekki að fara nánar út í þá umræðu sem þar fór fram en að eitt þyrfti þó að bæta við og væri það til­lits­semi.

Þýðir ekki hömlur á tjáningarfrelsi eða ritskoðun

„Inn­flytj­endur eru fjöl­breyttur minni­hluta­hópur í íslensku sam­fé­lagi, hvað þá hóp­ur­inn sem hefur komið hingað vegna ofsókna í heima­landi sínu. Þetta er hópur sem getur illa tekið þátt í opin­berri umræðu og á erfitt með að svara fyrir sig af aug­ljósum ástæðum. Þessi stað­reynd hefur ákveðnar afleið­ingar í för með sér fyrir opin­bera umræðu. Hún krefst þess að fjallað sé um mál­efni þessa hóps af þeirri til­lits­semi sem er nauð­syn­leg til að þeir sem geta ekki svarað fyrir sig þurfi ekki að svara fyrir sig. Það þýðir ekki hömlur á tján­ing­ar­frelsi eða rit­skoðun, það þýðir ein­fald­lega að við þurfum að vanda mál­flutn­ing okkar,“ sagði Björn Leví.

[links]Telur hann að óvandað mál gagn­vart þessum hópi geti mjög auð­veld­lega mis­skilist á alla vegu með mjög alvar­legum afleið­ingum.

„Sögulega séð eru nokkrir hópar sem óvönduð og for­dóma­full umræða hefur bitnað sér­stak­lega illa á. Þar eru inn­flytj­endur, trú­ar­hópar og fólk með öðru­vísi húð­lit aug­ljós­ustu dæmin.

Sögulega séð hafa ákveðin póli­tísk öfl beislað for­dóma­fulla umræðu sér í vil með slæmum og oft hörmu­legum afleið­ingum. Mikil er því ábyrgð þeirra sem daðra við slíka for­dóma, jafn­vel þeirra sem meina vel og daðra óvart við þá. Afleið­ing­unum er alveg sama um hversu vel mein­andi for­dóm­arnir voru,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár