Zel­en­skí mun ávarpa alþingismenn og íslensku þjóðina

Forseti Úkraínu mun ávarpa þing­menn og Íslend­inga við sér­staka athöfn á morgun í gegnum fjar­funda­búnað en þetta verður í fyrsta skiptið sem erlendur þjóð­höfð­ingi flytur ávarp í þing­sal Alþingis.

Volodímír Zel­en­skí forseti Úkraínu ávarpaði Dani í gær.
Volodímír Zel­en­skí for­seti Úkraínu ávarp­aði Dani í gær. Mynd: EPA

Volodímír Zelenskí for­seti Úkraínu mun ávarpa alþing­is­menn og íslensku þjóð­ina á morgun, föstu­dag, klukkan 14:00 í gegnum fjar­funda­búnað við sér­staka athöfn í þing­sal Alþingis.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá skrif­stofu Alþingis í dag. Hægt verður að fylgj­ast með ávarp­inu í sjón­varpi, á vef Alþingis og öðrum vef­miðlum.

Í til­kynn­ing­unni segir að ávarp Zelenskís sé ein­stakur við­burður því þetta verði í fyrsta skipti sem erlendur þjóð­höfð­ingi flytur ávarp í þing­sal Alþingis.

Ísland frá upphafi fordæmt innrás Rússa

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis mun stýra athöfn­inni í sal Alþingis og tala í upp­hafi hennar. Þá mælir for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, nokkur orð fyrir hönd íslensku þjóð­ar­innar. Síðan tekur Zelenskí til máls. Að loknu ávarpi Zelenskís ávarpar for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, for­seta Úkraínu.

Í til­kynn­ing­unni segir að Ísland hafi frá upp­hafi for­dæmt til­efn­is­lausa inn­rás Rúss­lands í Úkraínu og lýst yfir ein­dregnum stuðn­ingi við úkra­ínsku þjóð­ina og þar­lend stjórn­völd. „Ísland tekur fullan þátt í alþjóð­legum þving­un­ar­að­gerðum gegn Rúss­landi, styður við mann­úð­ar­að­gerðir Sam­ein­uðu þjóð­anna og ann­arra stofn­ana og tekur á móti fólki á flótta frá Úkraínu. Þá hefur Ísland haft milli­göngu um loft­flutn­inga bún­aðar, þar á meðal her­gagna, í tengslum við varnir Úkraínu. Ísland mun áfram leita leiða til þess að styðja við Úkraínu með öllum þeim ráðum sem stjórn­völdum eru til­tæk og í sam­ræmi við þær þarfir sem uppi eru í Úkraínu,“ segir að lokum í til­kynn­ing­unni.

Forsetinn hlotið lof fyrir hugrekki

[links]Zelenskí hefur vakið gríð­ar­lega athygli í heims­press­unni síðan stríðið braust út við inn­ráð Rússa þann 24. febr­úar síð­ast­lið­inn en hann á óvenju­lega for­tíð að baki af stórn­mála­manni að vera. Zel­en­skí, sem er lög­fræð­ingur og þekktur grínisti í heima­landi sínu Úkra­ínu, lék eitt sinn for­seta í vin­sælum sjón­varps­þáttum og tók svo við því emb­ætti í raun­veru­leik­an­um. Hann hefur hlotið lof og dáð fyrir hug­rekki sitt og föð­ur­lands­ást á umbrota­tímum í Úkraínu.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu um Zelenskí hér.

Fimm Úkraínumenn koma til Íslands á dag að meðaltali

Um 5,5 millj­ónir manna hafa flúið frá Úkraínu til nágranna­ríkja í Evópu frá því stríðið braust út og er ekki fyr­ir­séð hvenær enda­lok þess verða. Hér á landi hafa tæp­lega 900 manns frá Úkraínu sótt um alþjóð­lega vernd vegna inn­rás­ar­innar. Að með­al­tali koma um fimm Úkra­ínu­menn hingað til lands á dag.

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að um 150 atvinnu­rek­endur hér á landi hefðu sýnt því áhuga að ráða flótta­fólk til starfa en þegar hefðu verið gefin út þrjá­tíu atvinnu­leyfi til fólks frá Úkraínu og sífellt fleiri bæt­ast við.

Flótta­menn frá Úkra­ínu þurfa að fá útgefið atvinnu­leyfi til að mega starfa á Íslandi þar sem þeir fá útgefið dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjóð­ar­miða. Atvinnu­rek­andi sem ætlar að ráða flótta­mann frá Úkra­ínu til starfa þarf því að sækja um atvinnu­leyfi og leyfið sam­þykkt áður en starfs­maður má hefja störf.

Unnur Sverr­is­dótt­ir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar sagði í sam­tali við Kjarnann að um væri að ræða störf í ferða­þjón­ustu, bygg­ing­ar­iðn­aði, mat­væla­vinnslu og öldr­un­ar­þjón­ust­u. Flest leyfin hafa farið á suð­vest­ur­hornið en einnig til Akur­eyr­ar, Dal­vík­ur, í Borg­ar­fjörð, Reyð­ar­fjörð og á fleiri staði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár