Einn af hverjum tíu vill að ríkið fjármagni Bændasamtökin

Aðeins ell­efu pró­sent telja að rík­is­sjóður eigi að fjár­magna Bænda­sam­tökin að mestu eða öllu leyti. 71 pró­sent telja að ríkið eigi að litlu eða engu leyti að fjár­magna Bænda­sam­tökin, 18 pró­sent telja að ríkið ætti að fjár­magna um það bil helm­ing starf­sem­innar.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar sem Við­skipta­ráð lét gera á við­horfi almenn­ings til fjár­mögn­unar stofn­ana og emb­ætta á Íslandi.

Tals­verður munur er á svör­unum eftir því hvaða stjórn­mála­flokk við­kom­andi seg­ist myndu kjósa í dag. Stuðn­ings­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins voru lík­legri en aðrir til að vilja að ríkið fjár­magni Bænda­sam­tökin að miklu eða öllu leyti, eða 21,3 pró­sent. 14,2 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar sögð­ust vilja að ríkið fjár­magn­aði sam­tökin, og 10 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

2,9 pró­sent kjós­enda Pírata vilja að ríkið fjár­magni Bænda­sam­tökin, 4,5 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar og 7,3 pró­sent kjós­enda VG.

Meirihluti á móti fjármögnun Þjóðkirkju og Íslandspósts


55,6 pró­sent telja að ríkið eigi ýmist ekki eða að mjög litlu leyti að fjár­magna Þjóð­kirkj­una. 17 pró­sent aðspurðra segja að ríkið eigi að fjár­magna kirkj­una til helm­inga en 27,4 pró­sent telja að Þjóð­kirkjan eigi að miklu eða öllu leyti að vera fjár­mögnuð af rík­is­sjóði. Mikill munur var á svörum eftir aldri, en þeir yngri eru síður hlynntir rík­is­fjár­mögnun kirkj­unnar en þeir eldri.

61,4 pró­sent aðspurðra eru á þeirri skoðun að ríkið eigi að fjár­magna Íslands­póst að litlu eða engu leyti. 20,9 pró­sent telja að ríkið eigi að fjár­magna fyr­ir­tækið að mestu eða öllu leyti og 17,7 pró­sent telja að ríkið eigi að fjár­magna um helm­ing.

38,5 pró­sent aðspurðra í könn­un­inni segja að þeim finn­ist að ríkið eigi að fjár­magna Íbúða­lána­sjóð að öllu eða miklu leyti. 20,5 pró­sent telur að Íbúða­lána­sjóður eigi að vera fjár­magn­aður til helm­ings af rík­inu en 41 pró­sent vilja að ríkið hafi litla eða enga aðkomu að fjár­mögnun sjóðs­ins. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Pírata eru síst hlynntir því að ríkið fjár­magni sjóð­inn, en kjós­endur Vinstri grænna telja fremur en aðrir að ríkið eigi að fjár­magna hann.

46% vilja fjármagna björgunarsveitir


Þá var einnig spurt um fjár­mögnun björg­un­ar­sveita og Rauða kross­ins. 46 pró­sent aðspurðra segj­ast telja að ríkið eigi að fjár­magna björg­un­ar­sveit­anna að öllu eða miklu leyti. 35 pró­sent vilja að ríkið fjár­magni þær um helm­ing og 19 pró­sent vilja enga eða litla fjár­mögnun frá rík­inu.

Skoðanir voru einnig skiptar þegar kom að fjár­mögnun Rauða kross­ins, en 26,2 pró­sent vilja að ríkið fjár­magni starf­semi hans að öllu eða miklu leyti. 36,9 pró­sent aðspurðra vilja að ríkið fjár­magni starf­sem­ina til helm­inga og 36,9 pró­sent vilja að ríkið komi að litlu eða engu leyti að fjár­mögn­un­inni.

Sjá má könn­un­ina í heild sinni hér. Úrtakið í könn­un­inni var rúm­lega 800 manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár