Lögmaður Daniels fullviss um að Trump muni segja af sér

Lögmaður Stormy Daniels, klám­stjörn­unnar banda­rísku sem seg­ist hafa haldið við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta, seg­ist full­viss um að Trump verði gert að segja af sér. Frekari upp­lýs­ingar muni koma fram sem fylli Banda­ríkja­menn við­bjóði.

Stormy Daniels með lögmanni sínum Michael Avenatti.
Stormy Daniels með lög­manni sínum Michael Avenatti. Mynd: EPA

Lögmaður Stormy Daniels, klám­stjörn­unnar banda­rísku sem seg­ist hafa haldið við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta, seg­ist full­viss um að Trump verði gert að segja af sér. Í sam­tali við Guardian segir Michael Avenatti, lög­maður Daniels, að svo mikið af sönn­un­ar­gögnum um mis­ferli for­set­ans og ann­arra í kringum hann eigi eftir að koma upp á yfir­borðið að það verði ómögu­legt fyrir hann að lifa það af.

Skjól­stæð­ingur Avenatti, klám­mynda­stjarnan Stormy Daniels, mun hafa eytt nótt með Trump árið 2006 en lög­maður for­set­ans, Micael Cohen, greiddi henni 130 þús­und Banda­ríkja­dali til að þegja um málið.

Cohen þessi sætir nú rann­sókn vegna þess­arar greiðslu sem átti sér stað í miðri kosn­inga­bar­áttu Trump árið 2016. Þessi þöggun kunni þannig að hafa áhrif á nið­ur­stöðu kosn­ing­ar­innar og sé þar af leið­andi ólög­leg íhlutun í kosn­inga­bar­átt­una.

Avenatti segir að aðeins sé búið að snerta topp­inn á ísjak­anum í þessu máli. Amer­ík­anar muni fyll­ast við­bjóði þegar þeir frétta a fram­ferði Trump og Cohen og að afleið­ing­arnar verði alvar­legar.

Fram­hjá­hald Trump með Daniels hefur valdið honum erf­ið­leikum lengi. Hann sagði frétta­mönnum í apríl að hann hefði ekki vitað af greiðslu Cohen til hennar. Hins vegar sagði Rudy Giuliani, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri New York borgar og einn af nýju lög­mönnum for­set­ans, að ekki aðeins hafi Trump vitað af greiðsl­unni, hann hafi end­ur­greitt Cohen vegna hennar.

Við tók und­ar­legt ferli næstu tvo sól­ar­hring­ana þar sem Trump fyrst við­ur­kenndi það sem Giuliani hafði sagt en síðar dró hann það til baka og sagði borg­ar­stjór­ann fyrr­ver­andi ekki með sitt á tæru.

Í við­tal­inu við Guardian sagði Avenatti að Guiliani hefði eitt sinn verið öfl­ugur lög­maður. Hann sé hins vegar kom­inn af léttasta skeiði sem sjá­ist best á þessum mál­flutn­ingi og vand­ræðum sem orð lög­manns­ins hafa komið for­set­anum í.

Avenatti hefur ýjað að því að það kunni að vera að fleiri konur hafi þegið greiðslu sam­bæri­legri þeirri sem Daniels fékk, jafn­vel margar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár