Slúðurblað greiddi fyrrverandi dyraverði í byggingu Trumps 30,000 dollara

Trump er aftur kom­inn í vand­ræði vegna greiðslu til að þagga niður mál tengt honum. Slúð­ur­blað komst á snoður um að Trump hafi eign­ast barn með einum af starfs­mönnum Trump-turns­ins.

Trump er aftur kom­inn í vand­ræði vegna greiðslu til að þagga niður mál honum tengd. AP frétta­stofan greinir frá því að slúð­ur­blaðið The National Enquirer hafi greitt fyrr­ver­andi dyra­verði í Trump-turn­inum í New York að nafni Dino Sajudin 30,000 doll­ara. Ástæðan fyrir greiðsl­unni er hins vegar óljós. Samkvæmt heim­ildum AP var Sajudin greitt fyrir að þegja yfir sögu­sögnum um að Trump hafi eign­ast barn með einum af starfs­mönnum bygg­ing­ar­innar. Að sögn aðstoð­ar­rit­stjóra The Enquirer greiddi blaðið honum hins vegar fyrir sög­una, því ef hún væri sönn myndi það borga sig marg­falt til baka.

Þau hafi hins vegar fallið frá mál­inu því heim­ild­ar­mað­ur­inn þótti ekki nógu öruggur. Systur­út­gáfa The Enquirer greindi frá greiðsl­unni fyrr í vik­unni og að Enquirer hafi eytt fjórum vikum í að rann­saka málið en hafi fallið frá mál­inu vegna ónægra sönn­un­ar­gagna.

Fyrr­ver­andi blaða­maður The Enquirer segir að óvenju­legum vinnu­brögðum hafi verið beitt við vinnslu á mál­inu en blaðið er þekkt fyrir að ganga langt til að ná draga fram sönn­un­ar­gögn í málum. Blaða­mað­ur­inn fyrr­ver­andi sagði einnig að honum þætti ólík­legt að blaðið myndi eyða þess­ari fjár­hæð í sögu­sagnir án þess að birta nokkuð um málið.

[links]AP frétta­stofan hefur stað­fest­ingu fyrir því að Michael Cohen, lög­fræð­ingur Trumps, hafi rætt við tíma­ritið um mál dyra­varð­ar­ins. Vakna því upp spurn­ingar um tengsl tíma­rits­ins við Trump og lög­fræð­inga hans.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem upp kemst að tíma­ritið hafi greitt ein­hverjum fyrir að þegja yfir upp­lýs­ingum tengdum Trump. Átta dögum fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í nóv­em­ber 2016 greindi The Wall Street Journal frá því að The Enquirer hafi greitt Playboy fyr­ir­sæt­unni Karen McDougal fyrir að þegja yfir sam­skiptum sínum við Trump.

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan, FBI, rann­sakar nú sam­skipti lög­fræð­ings Trumps og stjórn­enda The Enquirer en fyrr í vik­unni var greint frá því að FBI gerði hús­leit á skrif­stofu Cohens. Lög­fræð­ingar eru einnig rann­saka mál lög­fræð­ings Trumps og hvort hann hafi brotið kosn­inga­lög þegar hann greiddi klám­stjörn­unni Stormy Daniels fyrir að þegja yfir sam­skiptum sínum við for­set­ann. Cohen seg­ist hins­vegar hafa greitt henni úr eigin vasa og því ekki brotið nein lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár