Vegakerfið er vanfjármagnað að mati samgöngunefndar

Umhverfis- og sam­göngu­nefnd segir sam­göngu­mál van­fjár­mögnuð í drögum að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um sam­göngu­á­ætlun áranna 2015 - 2018.

Þjóðvegir eru víða slitnir og viðhaldi á þeim ábótavant.
Þjóð­vegir eru víða slitnir og við­haldi á þeim ábóta­vant. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sam­göngu­á­ætlun fyrir árin 2015-2018 er van­fjár­mögnuð með til­liti til þarfa sam­göngu­kerf­is­ins hér á landi. Þannig er ein­róma áliti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis lýst í drögum að ályktun nefnd­ar­innar um sam­göngu­á­ætl­un­ina. Þeir gestir sem komu fyrir nefnd­ina til að veita sitt álit eru einnig á sama máli.

Sam­göngu­á­ætl­unin sem gilda á frá 2015 til 2018 hefur enn ekki verið sam­þykkt en stefnt er að því að klára sam­göngu­á­ætl­un­ina þegar þing kemur saman í haust. Þingi var frestað um mán­að­ar­mótin og mun ekki koma saman aftur fyrr en 15. ágúst. Þing­nefndir störf­uðu hins vegar áfram í viku eftir að þingi var frestað. Á meðan fjög­urra ára sam­göngu­á­ætlun er ekki í gildi ræður sam­göngu­á­ætlun fyrir árin 2011 til 2022.

Í drög­unum sem Hösk­uldur Þór­halls­son, for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar, sendi frá sér fyrir helgi segir að nefndin og gestir hennar hafi verið ein­róma um að áætl­unin væri van­fjár­mögnuð. Varla er hægt að halda sam­göngu­kerf­inu í við­un­andi ástandi miðað við þau fjár­fram­lög sem lögð eru til. Í til­kynn­ingu Hösk­uldar segir að unnið verði að því í sumar að sam­ræma áætl­un­ina við fyr­ir­liggj­andi rík­is­fjár­mála­á­ætlun.

Nefndin hvetur stjórn­völd til að vera við­búin fyr­ir­sjá­an­legum breyt­ingum á tekju­stofnum til sam­göngu­mála. „...einnig [var] fjallað um fjár­mögnun kerf­is­ins til fram­tíðar en nokkur óvissa ríkir um fram­tíð mark­aðra tekju­stofna sem fjár­magna sam­göngu­á­ætl­un­ina,“ segir jafn­framt í drög­unum. Er þar til dæmis vísað til áætl­ana um orku­skipti í sam­göngum og vega minni heimtur af skatt­lagn­ingu á elds­neyti þungt eða um 50 pró­sent. Með breyttri orku­notkun munu tekju­stofn­arnir að óbreyttu rýrna. „Ekki er þó ljóst hversu hratt það muni ger­ast.“

Til þess að mæta þess­ari van­fjár­mögnun er telur nefndin rétt að skoða hvort hækka eigi gjald­skrár svo mark­aðar tekjur til Vega­gerð­ar­innar rýrni ekki enn frekar. Gjald­skrárnar hafi ekki fylgt verð­lags­þróun sem rýrt hefur tekjur Vega­gerð­ar­innar mikið. „Ef gjald­skrár mark­aðra tekna hefðu fylgt verð­lagi líkt og flestar aðrar opin­berar gjald­skrár mundu tekju­stofn­arnir skila hátt í 23 millj­örðum á ári í stað 16 millj­arða nú,“ segir í drög­unum.

[adspot]

Eyrna­merktar tekjur Vega­gerð­ar­innar eru meðal ann­ars af sér­stöku vöru­gjaldi á bensín, olíu­gjaldi, þunga­skatti og af leyf­is­gjöldum flutn­inga- og leigu­bif­reiða. Þá er Vega­gerð­inni árlega ráð­stafað fram­lag úr rík­is­sjóði til við­bótar við mark­aðar tekjur.

Lagt er lagt til að röskum 120 millj­örðum króna verði varið í fram­kvæmdir í sam­göngu­málum á árunum 2015 til 2018. Það er mun hærri upp­hæð en lagt var til fyrir ári síðan þegar lagt var til að 103 millj­arðar yrðu ráð­stafaðir til sam­göngu­mála.

Framlög til sam­göngu­mála hafa á árunum eftir hrun verið lægri en almennt hefur þekkst hér á landi. Samkvæmt drög­unum að nýrri sam­göngu­á­ætlun er gert ráð fyrir að útgjöldin hækki örlítið og verið 1,3 pró­sent af vegri lands­fram­leiðslu næstu tvö ár. Sögulega séð hefur hlut­fallið verið um 1,5 pró­sent en þegar best lét á árunum fyrir hrun var hlut­fallið 2 pró­sent árið 2008. Mat nefnd­ar­innar er að stefna beri að því að fram­lögin nemi um 1,5 til 2 pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Öryggi í fyrirrúmi

Mikil áhersa er lögð á umferð­ar­ör­yggi í drögum nefnd­ar­innar að sam­göngu­á­ætl­un­inni og for­gangs­röðun verk­efna gerð með örygg­is­mál í for­grunni. „Í nýfram­kvæmdum og við­halds­verk­efnum ber þannig að horfa til þeirra vega þar sem bæta þarf umferð­ar­ör­yggi en það er á umferð­ar­mestu veg­unum og þar sem ástand vega er orðið mjög slæmt, þar sem eru hættu­legir veg­ar­kaflar og þar sem eru ein­breiðar brýr,“ segir text­anum.

Ekki síst er það vegna auk­innar umferðar erlendra ferða­manna um landið sem nefndin telur brýnt að huga að örygg­is­málum á vegum. Efla þarf fræðslu og for­varnir gagn­vart erlendum ferða­mönnum sem aka á bíla­leigu­bílum um landið. Bakslag hafi orðið á síð­ustu árum vegna fjölda alvar­legra slysa en kostn­aður sam­fé­lags­ins vegna umferð­ar­slysa er gríð­ar­legur. Er þar vísað í nýlegt rann­sókn­ar­verk­efni við Háskól­ann í Reykavík þar sem segir að kostn­að­ur­inn vegna umferð­ar­slysa árið 2015 hafi verið 48 millj­arðar króna. Beinn kostn­aður heil­brigð­is­kerf­is­ins er um 930 millj­arðar, ef stuðst er við skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands frá 2012.

„Á fundum nefnd­ar­innar kom fram að nokkur helstu umferð­ar­ör­ygg­is­mál á þjóð­vegum lands­ins væru að breyta skiltum þannig að erlendir ferða­menn skildu þau, aðskilja akst­ur­stefnur á umferð­ar­þungum vegum og vinna að því að fækka ein­breiðum brúm,“ segir í drög­unum að sam­göngu­á­ætl­un­inni. Ein­breiðar brýr eru 58 pró­sent allra brúa í þjóð­vega­kerfi lands­ins. Á hring­veg­inum er hlut­fall ein­breiðra brúa 17 pró­sent.

Þeir þjóð­vegir sem breikk­aðir verða á næst­unni eru Vest­ur­lands­vegur á Kjal­ar­nesi þar sem fram­kvæmdir hefj­ast árið 2018, áfram­hald­andi tvö­földun Reykja­nes­brautar, þjóð­veg­ur­inn milli Hvera­gerðis og Selfoss verður breikk­aður og akst­ur­stefn­urnar aðskildar, breikkun veg­ar­ins yfir Hell­is­heiði verður lokið og vegna fyr­ir­hug­aðar upp­bygg­ingar á Mið­nes­heiði verður Reykja­nes­braut tvö­földuð alla leið að flug­stöð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár