Tillaga um frestun á fundum Alþingis komin fram

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um frestun á fundum Alþingis fram til 15. ágúst

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á Alþingi um frestun á fundum Alþingis. Fresta á fundum á morgun, 2. júní, eða síðar ef nauð­syn krefur, að því er fram kemur í til­lög­unni. Í álykt­un­inni er einnig kveðið á um að fundir Alþingis hefj­ist á ný þann 15. ágúst.

Þannig er ekki lokað á þann mögu­leika að þingið komi saman á ný í næstu viku til að afgreiða ein­hver mál, jafn­vel þótt starfs­á­ætlun þings­ins geri ráð fyrir því að morg­un­dag­ur­inn verði síð­asti þing­funda­dag­ur­inn þangað til í ágúst. Þing­fundur var að hefj­ast á Alþingi klukkan þrjú í dag og síð­asti þing­fund­ur­inn á að hefj­ast klukkan 10.30 í fyrra­málið.

Þing­nefndir eiga að starfa í viku í við­bót sam­kvæmt starfs­á­ætl­un­inni. Þær munu líka koma saman á ný þremur dögum áður en þing á að koma saman 15. ágúst. Þá er þing­inu ætlað að funda í tólf daga auk þess að annar eld­hús­dagur verður hald­inn þá. Gert er ráð fyrir því að þingi verði frestað á ný þann 2. sept­em­ber, og þá lýkur kjör­tíma­bil­inu þar sem boða á til kosn­inga í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár