Formaður búvörustarfshóps gekk úr skaftinu

Frestur til að skipa starfs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga rann út í gær, án þess að hóp­ur­inn hafi verið skip­aður. For­mað­ur­inn hætti við og því frestað­ist skipan hóps­ins, segir ráð­herra.

Ekki er búið að skipa sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga, þrátt fyrir að frestur til þess hafi runnið út í gær. Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, seg­ist í sam­tali við Kjarnann gera ráð fyrir því að málið verði klárað á morgun. Ástæða seink­un­ar­innar sé sú að búið hafi verið að finna for­mann sem svo hafi gengið úr skaft­inu.

Tillagan um skipun sam­ráðs­hóps var sett inn í frum­varpið af atvinnu­vega­nefnd þings­ins til þess að hjálpa til við að koma samn­ing­unum þar í gegn. Hún kvað á um að tryggja ætti aðkomu afurða­stöðva, atvinnu­lífs, bænda, laun­þega og neyt­enda að end­ur­skoðun búvöru­samn­ing­anna, og að þeirri end­ur­skoðun ætti að ljúka eigi síðar en árið 2019.

Félag atvinnu­rek­enda benti á það í til­kynn­ingu í dag að ekki væri búið að skipa hóp­inn þrátt fyrir að lögin geri ráð fyrir að því ætti að ljúka í gær. „Skemmst er frá því að segja að ekk­ert erindi hefur borist frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu um skipan hóps­ins og engin til­kynn­ing birst á vef þess, nú dag­inn eftir að lög­bund­inn frestur ráð­herra til að skipa sam­ráðs­hóp­inn rann út,“ segir í til­kynn­ing­unni. Félag atvinnu­rek­anda hafði verið heitið aðild að sam­ráðs­hópnum, ásamt öðrum hags­muna­sam­tökum sem höfðu gagn­rýnt verk­lag og inni­hald samn­ing­anna.

„Við vorum að þetta sé aðeins hand­vömm hjá ráð­herra og að hóp­ur­inn verði skip­aður á allra næstu dögum. Menn hljóta að vilja efna lof­orðin um þjóð­ar­sátt og þjóð­ar­sam­tal fyrir kosn­ingar,“ sagði Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár