Segja frumvarp sem heimilar farveitur „gera út af við“ leigubifreiðaakstur hérlendis

Leigu­bif­reiða­stjórar segja drög að nýju frum­varpi til laga um leigu­bif­reiða­akstur vera „feigð­ar­flan“. Tvö fag­fé­lög leigu­bíl­stjóra leggj­ast alfarið gegn frum­varp­inu sem þau segja sniðið eftir til­lögum Við­skipta­ráðs og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Nýtt frum­varp um leigu­bif­reiða­akstur mun heim­ila rekstr­ar­form sem býður heim ójafnri sam­keppni og hrein­lega „gera útaf við leigu­bif­reiða­akstur hér­lendis“ að mati leigu­bíl­stjóra. „Í frum­varp­inu er enn fremur opnað fyrir los­ara­brag í atvinnu­grein­inni með afnámi vinnu­skyldu og tak­mörk­un­ar­svæða,“ segir í umsögn Bif­reiða­stjóra­fé­lags­ins Frama og Banda­lags íslenskra leigu­bif­reiða­stjóra (B.Í.L.S) um frum­varp til laga um leigu­bif­reiða­akstur sem nú er í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Drög að frum­varp­inu sem um ræðir var birt í sam­ráðs­gátt í júlí. Vonir standa til að frum­varpið muni, verði það sam­þykkt, gera far­veitum á borð við Uber og Lyft kleift að bjóða upp á þjón­ustu sína hér á landi. Til stendur að leggja frum­varpið fram á næsta þing­vetri en það hefur þrisvar sinnum áður verið lagt fram. [adspot]

Þær breyt­ingar á lögum um leigu­bif­reiða­akstur sem finna má í frum­varp­inu eru til þess ætl­aðar að opna mark­að­inn fyrir far­veitum. Til að mynda er lagt til að ekki þurfi starfs­stöð að vera fyrir hendi hér á landi til að geta fengið útgefið rekstr­ar­leyfi eða starfs­leyfi leigu­bif­reiða­stöðvar. Nú geta ein­stak­lingar einir fengið útgefið rekstr­ar­leyfi en í drögum frum­varps­ins er lagt til að einnig verði hægt að veita lög­að­ilum rekstr­ar­leyfi. Þá er einnig sér­stak­lega fjallað um gjald­töku fyrir ferðir, í drög­unum er lagt til að gjald megi vera ýmist áætlað eða end­an­legt þegar samið er fyrir fram um gjald fyrir ekna ferð.

Frumvarpið sé sniðið eftir tillögum VÍ og SKE

Leigu­bíl­stjórar eru mjög ósáttir við efni frum­varps­ins, eins og kemur fram í umsögn­inni. Þar segir að ekki hafi verið tekið til­lit til „marg­hátt­aðra athuga­semda leigu­bif­reiða­stjóra“ við fyrri frum­vörp, stétt­ar­innar sem hafi „mesta þekk­ingu og reynslu í við­kom­andi atvinnu­grein.“ Ekki hafi verið horft til „þeirra hörmu­legu afleið­inga sem afreglu­væð­ing leigu­bif­reiða­akst­urs hefur haft á hinum Norð­ur­lönd­unum,“ segir þar enn fremur.

Í umsögn­inni er því haldið fram að ábend­ingar leigu­bíl­stjóra hafi verið hunds­aðar. „Aftur á móti er frum­varpið sniðið eftir til­lögum Við­skipta­ráðs Íslands og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og lagt til að fyr­ir­tæki megi starf­rækja leigu­bif­reiðar og að engin bönd verði á fjölda bif­reiða. Það vekur upp áleitnar spurn­ingar hvers vegna sjón­ar­miðum sam­taka atvinnu­rek­enda er fylgt til hlítar en rök­semdir og ábend­ingar stéttar leigu­bif­reiða­stjóra og Alþýðu­sam­bands Íslands hunds­aðar.“

Tryggi það að regluverkið samræmist EES-samningum

Í frum­varps­drög­unum segir að starfs­hópur sem vann að til­lögum um heild­ar­end­ur­skoðun á reglu­verki um leigu­bif­reiðar hafi haft það að mark­miði að gera til­lögur til ráðu­neyt­is­ins að nauð­syn­legum breyt­ingum til að tryggja að íslenskt reglu­verk væri í fyllsta sam­ræmi við skuld­bind­ingar íslenska rík­is­ins sam­kvæmt EES-samn­ingnum og að í því væru engar aðgangs­hindr­anir nem þær sem rétt­læt­an­legar væru vegna almanna­hags­muna.

Það hafi verið nauð­syn­legt vegna þess að: „Ráða mátti af sam­skiptum við ESA að stofn­unin teldi líkur á því að íslensk lög­gjöf um leigu­bif­reiðar fæli í sér aðgangs­hindr­anir sem ekki sam­ræmd­ust skyldum íslenska rík­is­ins að EES-rétti,“ segir í þeim kafla grein­ar­gerðar frum­varps­drag­anna sem fjallar um til­efni og nauð­syn laga­setn­ingar.

Segja niðurstöður starfshópsins ómarktækar

Að mati Frama og B.Í.L.S. er aftur á móti ekki nauð­syn­legt að ráð­ast í þær breyt­ingar sem sam­þykkt frum­varp fæli í sér. „Íslenskum stjórn­völdum var í lófa lagið að leita und­an­þága sem þau gerðu ekki. Þau þurfa að svara fyrir eigin mis­tök í því efni og fá þau leið­rétt - ekki er hægt að leggja ábyrgð­ina á þeirri yfir­sjón á herðar stéttar leigu­bif­reiða­stjóra og not­enda þeirrar þjón­ustu er þeir veita,“ segir í umsögn­inni. [links]

Frami og B.Í.L.S. segja enn fremur að starfs­hópur ráðu­neyt­is­ins hafi ekki tekið mið af svartri atvinnu­starf­semi sem skekki mark­að­inn og því séu nið­ur­stöður starfs­hóps­ins ómark­tækar. Það sama megi segja um grein­ar­gerð frum­varps­ins, „þar er talað í álykt­unum og lík­indum, í stað þess að taka til skoð­unar þær afleið­ingar sem nú liggja fyrir af nýlegum laga­breyt­ingum á hinum Norð­ur­löndum sama efnis.“

Samþykkt frum­varps­ins yrði því „feigð­ar­flan“ að mati Frama og B.Í.L.S. sem leggj­ast alfarið gegn því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár